Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 63
Bœndurnir á Lambeyrum
Dönustaða í Laxárdal er snemma getið í sögum. Steinþór,
sonur Olafs pá í Hjarðarholti bjó á Dönustöðum. Er þess getið í
Laxdælu. í Sturlungu segir frá fjölmennri yfirreið
Guðmundar biskups Arasonar um Dali árið 1230. Gekkst þá
Sturla Sighvatsson fyrir því að bændur legðu biskupi og
fylgdarliði til matföng. Var safnað saman sauðum og þeir reknir
til Hjarðarholts og Dönustaða.
Sendi Sturla biskupi þau orð að hann skyldi ekki fara lengra
en á bæi þessa og síðan skyldi hann fara til Hrútafjarðar. Varð
biskup við þessum tilmælum Sturlu. Var á þeim dögum víða
mikill kurr meðal bænda yfir þessum fjölmennu yfírreiðum
Guðmundar biskups. Bendir þessi frásögn Sturlungu til þess að
þá hafi verið stórbýli á Dönustöðum og húsakostur í meira lagi.
í gömlum máldaga Hjarðarholtskirkju, frá því um 1500 segir,
að kirkjan eigi selför í Kikasel öllu fé sínu.Kirkjan í Hjarðarholti
átti þá eitt hundrað ásauðar og tíu kýr, auk geldneyta, hrossa og
sauða.
í jarðamatinu frá 1703 er getið um margar selstöður í landi
Dönustaða. - Tvær hjáleigur voru á fyrri öldum í landi
jarðarinnar, Hólkot og Dönustaðasel, er varð sérstakt býli 1847
og nefndist þá og síðan Pálssel.
Dönustaðir hafa jafnan verið taldir mikil jörð og góð. - Metin
að fornu - með hjáleigunum tveimur 40 hundruð. Arið 1871
þegar Torfi Bjarnason ílutti frá Varmalæk í Borgarfirði mun