Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 65

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 65
BREIÐFIRÐINGUR 63 1979, þegar þeir reistu fjárhús ásamt votheyshlöðu fyrir um 1000 fjár. Er þar notuð nýjasta tækni við fóðrun fjárins, losun heys úr hlöðu og flutningur í jötur o.fl. Er ánægjulegt að líta þá véltækni alla, sem þar leysir mannshöndina af hólmi eftir nálega óbreytt vinnubrögð margra alda. Ræktun hefur verið aukin jafnt og þétt, þótt nokkuð vanti þar á enn þá. Árið 1942 var taðan af Dönustaðatúni talin 250 hb og var það fimm ára meðaltal. Hey af flæðiengi og annað úthey er þá talið með sama hætti 250 hb. - Sumarið 1980 voru heyjaðir ca. fimmtíu hektarar á túni og heymagn í samræmi við það. Nú í sumar bætast við 5-6 ha túnauki og ca 10 ha standa undir grænfóðri. - Þeir feðgar hafa nú um þúsund fjár á fóðrum og auk þess er rekið myndarlegt alifuglabú með nokkur þúsund hænum. - I dag er því rekið á Dönustöðum eitt af allra stærstu búum á Vesturlandi. Þau Einar og Sigríður hafa eignast og alið upp átta mannvænleg börn. Fjölskyldan stendur fast saman um dagleg störf og nýjar framkvæmdir. Börnin vinna samhent að öllum bústörfum - þau, sem enn eru í foreldrahúsum. I Laxdælu segir frá flutningi Ólafs pá frá Goddastöðum að hinum nýreista bæ hans - Hjarðarholti. Var talið að enginn maður hafi þá verið auðugri í Breiðafirði öllum. Flutti hann kvikfé sitt allt með þeim sérstaka hætti, að skipað var mönnum meðfram öllum hópnum, svo hann skyldi engan krók rista á leiðinni. Er svo sagt, að þegar það fyrsta rann í hlað í Hjarðarholti hafi það síðasta verið að fara frá Goddastöðum. - Giskað hefur verið á, að þarna hafi m.a. verið reknar um 2 þúsund kindur. Hefur því trúlega ekki vantað mikið á s.l. vor að þeir Lambeyrarfeðgar hafi látið þúsund ára sögu endurtaka sig í dalnum, er þeir sáu á eftir fé sínu til fjalls. E.K.

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.