Breiðfirðingur - 01.04.1981, Síða 69
BREIÐFIRÐINGUR
67
Jón útskrifaðist úr Stýrimannaskólanum 22ja ára gamall árið
1901. Það var þó ekki venja, að veita svo ungum manni
skipstjóraréttindi, en Jón hlaut samt skipstjóraréttindi vegna
ágætra vottorða frá þeim skipstjórum, sem hann hafði verið
stýrimaður hjá.
Næsta vetur kvæntist Jón unnustu sinni Lofthildi Pálsdóttur,
6. desember. Þau fengu stofu hjá Lárusi föður Jóns til að búa í
um veturinn. Eg held að Jón hafi verið 3 ár í Arney, áður en
hann fór í Sellón. Hann var 3 ár í Sellóni. Hann hafði
tengdaföður sinn til að hirða jörðina að sumrinu, en var sjálfur
skipstjóri, hirti skepnur sínar á vetrum. Vorið 1907 flutti Jón frá
Sellóni í Arney með konu og 5 börn. Hann fékk jörðina byggða
til 10 ára. Faðir hans hafði búið þar í 17 ár, en hætti núbúskap í
Arney.
Hagur Jóns blómgaðist í Arney, hún var miklu betra ábýli en
Sellón. Jón hafði fólk við heyskap og hirðingu jarðarinnar á
sumrum, en stundaði sjóinn. Jón bjó í Arney í 9 ár og undi þar
vel hag sínum, þó hann yrði þar fyrir ýmsum óhöppum.
Þegar Jón var búinn að vera sjómaður í 17 ár hætti hann
sjórnennsku. Eftir það stundaði hann eingöngu búskapinn í
Arney.
Vorið 1916 flytur Jón að Arnarbæli, eftir 9 ára búskap í
Arney. Hann flytur þangað með gott bú, en 8 börn í ómegð og
heilsulitla konu.
Fyrstu árin í Arnarbæli gekk allt vel, arðsamt bú og gott
heilsufar. Svo koma erfið ár 1917-18, miklar hörkur. Fuglinn
fraus í hel og dúnn minnkaði stórkostlega í Arnarbæli. Sumarið
eftir var vandræðaástand með slægjur í Arnarbæli eins og víðar.
í Arnarbælislandi var álagablettur, hólmi, sem heitir Kerling.
Talið var öruggt, að það fylgdi ógæfa að slá þennan blett. Jón var
ekki trúaður á þetta, slær blettinn og hirðir heyið, 7 hestar. Eftir
þetta missir hann mikið af skepnum, bæði ám, lömbum og