Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 70

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 70
68 BREIÐFIRÐINGUR gemlingum, bestu kúna úr fjósinu og hest. Margir kenndu þetta slættinum á álagablettinum. Síðan kemur tæring á heimilið. Halla dóttir Jóns deyr úr tæringu 1922. Árið eftir veiktist kona Jóns og deyr á Vífilsstöðum 21. okt. 1928. Lofthildur Pálsdóttir kona Jóns var sérstaklega heimilisrækin, trygglynd, myndarhúsmóðir og ágætiskona. 1929 andaðist Baldur sonur Jóns. Hann var sá fimmti fullorðinna, sem dó í Arnarbæli á fáum árum. Eftir 14 ára ábúð flytur Jón frá Arnarbæli. Hann var nú orðinn fátækur, fimmtugur og bilaður á heilsu. Sama vorið, áður en Jón flutti frá Arnarbæli seldi hann skepnur sínar, báta og búshluti og flutti til Keflavíkur, skuldlaus. Hann fær sér ráðskonu og hafði gamla konu, sem lengi hafði verið hjá honum. Börnin voru burtflutt og sum dáin. Níels einn eftir heima. Jón tók að sér stúlku Ingibjörgu Árnadóttur, mannkostaríka og mikilhæfa konu. Hún dó eftir stutta sambúð. Eftir lát Ingibjargar fékk Jón eldri konu til sín fyrir ráðskonu, Sigríði Helgadóttur, og var hún hjá honum meðan hann lifði. Hún hirti prýðilega um heimilið og hlúði að honum í veikindum hans af hreinustu snilld. Jón kunni illa við sig í Keflavík og fluttist þaðan til Reykjavíkur eftir fáár. 27. apríl 1935 fluttihann í sínaeigin íbúð á Ásvallagötu 57 og bjó þar til dauðadags. Síðustu 3 ár ævinnar var heilsa hans stórbiluð og sveif þá hugur hans oft til Breiðafjarðar. Breiðif)örður dásamlega fagur í sól á sumrum. Jón Lárusson var skipstjóri í 16 ár. Hann var með skip frá Hafnarfirði, Bíldudal og Stykkishólmi. Hann var heppinn skipstjóri, missti aldrei af sér mann, en bjargaði einu sinni 5 Islendingum af báti með bilaða vél og 3 bátum í sunnan ofsaroki á Grundarfirði á reki til hafs. Öðru sinni bjargaði hann 6 enskum mönnum af skeri, sem voru af enskum togara, sem fórst á Breiðafirði. Þeir misstu frá sér bátinn, en Jón varð þeirra var,

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.