Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 71

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 71
BREIÐFIRÐINGUR 69 svo þeir lifðu. Jón fískaði alltaf vel nema síðasta sumarið, enda hafði hann venjulega duglega háseta. Það var algengt að hann hafði sömu hásetana 6-9 sumur. Jón var framsýnn, duglegur og góður skipstjóri, laginn stjórnari í vondum veðrum, bæði á þilskipum og opnum bátum. Hásetunum þótti vænt um hann og treystu honum. Það var hans besta skemmtun að sigla skipi í góðu leiði. Hann var einn af þessum breiðfirsku sjógörpum. Hann var „þéttur á velli og þéttur í lund, þrautgóður á raunastund.” Hann var sannur Islendingur í sjón og reynd. Jón Lárusson var svipmikill og svipgóður maður. Svipurinn bar vott um festu og kjark, hreinskilni og heiðarleik mikillrar persónu. Manni gat dottið í hug þessi gamla setning: „Afram bauð hann, ekki víkja, aldrei vildi heitorð svíkja.” Hann var þægilegur í viðmóti, ávarpsgóður, glaðsinna, háttprúður og stillilegur„skemmtilegur en skjaldan reiður.” Hann gat þó orðið skapheitur, ef á hann var ráðist. Hann hélt alltaf fram heilsteyptum málstað byggðum á traustum grundvelli. Eg held að hann hafi alltaf sigrað nema einu sinni, en þá var hann þvingaður með peningavaldi. Hann lagði aldrei illt til nokkurs manns, en rétti hlut hinna minni máttar, sem áttu erfitt á einhvern hátt. Hann var hár vexti, hafði sívalan vöxt, karlmannlegur kraftamaður. Hann var sönn hetja, kjarkmikill, duglegur, orðheldinn og ábyggilegur. Hann vék aldrei fyrir andstæðingi sínum. Hann hafði mikið meira en meðalmannsgreind, var framsýnn, ráðhollur og traustur, ákveðinn og hispurslaus. Hann trúði á Drottin, sem veitti honum styrk í lífsbaráttunni við æðisgengnar ægisdætur, heilsuleysi og dauðsföll ástvina hans, eiginkvenna og barna. Hann tók erfiðleikunum með konunglegri ró og stillingu. Blessuð sé minning þessa mæta manns.

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.