Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 72

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 72
70 BREIÐFIRÐINGUR „Gleðin smækkar, hryggðin stækkar, hróður brást um andans völl. Skáldum fækkar, landið lækkar, loksins sjást hér engin fjöll.” (Rétt er að nefna, að hér er um ýmis atriði stuðst við sjálfsævisögu Jóns, Ævisaga Breiðfirðings, sem kom út 1949. Vísur eftir Jón Lárusson frá Arnarbæli. Einu sinni þegar Jón sigldi skipi sínu til hafnar gerði hann þessa vísu. Sundur fletti dimmri dröfn, drengja eftir lyndi. Stígur létt í ljúfa höfn Lægja í þéttum vindi. Jón var eitt sinn fiskimaður á skipi, sem Hvanney hét. Skipstjórinn hét Hannes Andrésson. Þá kvað Jón. Fiski Hannes manna mest, mæti hann ei skaða. Láti Hvanney knarra best kaldar hrannir vaða. Þessa vísu gerði Jón til föður síns, sem þurfti að ná skipi, sem væntanlegt var til Stykkishólms og hét Lára. Þú mátt fríða vinda upp voð verinn skíða þekki. Láta skríða úr lending gnoð Lára bíður ekki. Jón kvað um skip sitt Austra frá Arnarbæli. Austri hraðar örinni á brimsvaðil skörinni. Lætur vaða úr vörinni vanur svaðilförinni.

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.