Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1981, Blaðsíða 82

Breiðfirðingur - 01.04.1981, Blaðsíða 82
80 BREIÐFIRÐINGUR gestrisni og hlýja í fyrirrúmi, og nærgætni hennar og tillitssemi var við brugðið. Hún mátti ekkert aumt sjá, var ákaflega hjálpfús og greiðvikin, og reiðubúin að rétta hjálparhönd og fórna tíma og fyrirhöfn þeirri lífshugsjón sinni að vilja hjálpa, líkna og lina þjáningar og leggja kærleikshönd sína þar að, sem þörfin var mest og hjálpar var þörf. Þess vegna var oft til hennar leitað, þegar um það var að ræða að hjúkra og líkna þeim, sem við vanheilsu og erfiðleika áttu að stríða, og jafnan var hún reiðubúin til hjálpar - og sá sig raunar aldrei úr færi að leggja gott til þegar á þurfti að halda, því þetta var henni svo í blóð borið. Heimili þeirra Þóreyjar og Arna var ekki alltaf stórt að flatarmáli, einkum fyrstu ár þeirra í Búðardal, en þau áttu þeim mun meira af gestrisni og hlýhug til vina sinna og samferðamanna og húsfreyjan hafði e.t.v. ekki alltaf af miklu að miðla á veraldarvísu, en þeim mun meira var rúm hjartans - og öllum skyldi gott gjöra, svo sem efni og aðstæður leyfðu, og þá var oft hægt að gera mikið úr litlu. Svo nærfærin sem Þórey var, varð það oft hlutskipti hennar að vera við dánarbeð og búa látna til hinztu hvílu hér í þessum heimi. Hún hefur áreiðanlega oft reynt þá guðlegu blessun, sem Guð leggur öllum til í þrautum sínum, að mega við lok þessa lífs sjá ljósið himneska skína inn í mannlega sál og kveikja þar bjarma gleði og vonar á landamærum lífs og dauða. Og trúlega hefur hún oft fundið geislablik kærleikans frá hinum eilífa heimi umlykja þreytta brá og fölan vanga, og þá skilið, hvaðan við fáum þau ljósblik eilífðarinnar, sem veita birtu og yl á kvíðafullri og viðkvæmri skilnaðarstund. Mörg síðustu árin átti Þórey við sjúkleika að stríða. Hún veiktist í janúar árið 1973 og dvaldi þá í Sjúkrahúsi Akraness til vors, síðan var hún í mörg ár á Dvalarheimilinu á Fellsenda, en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Breiðfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.