Breiðfirðingur - 01.04.1981, Side 87
BREIÐFIRÐINGUR
85
Sigmundur
Þorgilsson
frá
Knarrarhöfn.
Ungmennafélagshugsjónin virtist fylgja Sigmundi alla ævi,
og vinsælli mann í átthögum hans var ekki að finna.
Eftirfarandi minningarljóð varð til eftir fráfall Sigmundar.
Fallinn er minn forni vinur.-
Fögur ljómar minning kær.
Aldan þunga undir dynur,-
ofar lygn og mildur sær.
Glóa um flötinn geislabaugar,-
Glóðir augna tindra skært.
Hlýjan vermir hjartataugar,-
Hugardjúpið reynist tært.
Sómadrengur.- Sannur maður.
Svona geymist myndin þín.-
Heiður, djarfur, heill og glaður
hélstu leið, þar birtan skín,-
Siglt var undir sigurfána,
séð í ró um víðan geim.
Friður lék um bjarta brána,-
boðið munans göfgi heim.
Hvar er lífsins lán og gengi
léttara að finna sér,
en að þjálfa þýða strengi,
þá, sem ungur hver einn ber,
og að fórna öllu besta,
eigindum og dagafjöld?-
Trúrra vina tryggðafesta
tryggð þér var um ævikvöld.