Breiðfirðingur - 01.04.1981, Page 89
BREIÐFIRÐINGUR
87
Jafnframt bjóðum við hinn nýja ritstjóra velkominn og væntum
mikils af störfum hans. Er áætlað að næsta rit komi út á næstu
haustdögum.
Nú hafa margir félagsmenn kvatt þennan heim síðan
Breiðfírðingur kom út síðast og viljum við minnast þeirra með
virðingu og þökk fyrir framlag þeirra til félagsmála. Við
minnumst líka glaðra og góðra samverustunda.
Það er von okkar að félagið megi vaxa og eflast og sem flestir
félagsmenn verði virkir í starfsemi félagsins.
Störfum að einingu andans í bandi friðarins.
Stjórnin.
Úr Ballarárannál anno 1602
Það haust voru héluföll og frost fram að Magnúsmessu. Þá
kom á fjúk og jarðbönn með hallæri og harðindum, svo þá var
svo harður vetur um allt landið, að enginn kann af slíkum að
segja né séð af skrifað síðan Island byggðist... Þá var ég fimm
vetra. Um slíkt ár fínnast engir annálar síðan landið var kristn-
að, að svo hart verið hafi. - I fardögum var sjóís riðinn frá
Kambsnesi að Skoravík í Hvammsfirði.
Ur Hvammsannál anno 1729
..Nýjungar þær komu, að fólk var víða, bæði gipt og ógipt,
registrerað, áhvatt og uppskrifað til Grænlandsferðar, að það
fari þangað á næstkomandi ári til búskapar. Er sagt, að einn
norskur prestur hafi þar verið í næstu 12 ár, og svo nokkuð fólk
annað. En það sem segist af landshætti og Skrælingjum þar er
langt og nokkuð óvíst að skrifa.