Breiðfirðingur - 01.04.1984, Blaðsíða 77
BREIÐFIRÐINGUR
75
Jóhanna í Bifröst vann, sem fyrr getur, mikið utan
heimilis að hjúkrunar- og félagsmálum, en þess skal getið
að fjölskyldan stóð með henni og studdi að því hún gæti
gert það. Systkinin í Bifröst fóru að heiman, giftust og
eignuðust sín heimili. Oddný giftist Sigurberg Asbjörns-
syni. f>au stofnuðu fyrst heimili í Olafsvík, eignuðust fjór-
ar efnisdætur, Rósu, Matthildi Guðrúnu (nafnið Matthild-
ur var systir Jóhönnu, sem dó 13 ára), Ernu og Erlu.
Ungu hjónin fluttu til Keflavíkur og þar gerðist Sigurberg
skósmiður. Búnaðist þeim þar vel, enda bæði dugleg og
framsækið fólk að bjarga sér þar sem starfsvettvangur var
fyrir þau.
Torfhildur giftist Matta Asbjörnssyni, bróður Sigur-
bergs. Þeir voru tveir af svonefndum Asbjörnshús-
bræðrum í Olafsvík. Þeir bræður voru sex, rómaðir dugn-
aðarmenn, góðir drengir og glaðir í lund. Þessir sóma-
bræður eru nú allir horfnir yfir móðuna miklu, nema
Matti, sem býr í Keflavík ásamt konu sinni, Torfhildi.
Þau stofnuðu sitt heimili þar 1936 og gerðist Matti þar
skósmiður hjá Sigurbergi bróður sínum. Þeirra börn tvö
eru Gunnar Bergsteinn og Oddný Jóhanna Berglind.
Baldur giftist Þórunni Þórðardóttur frá Borgarholti í
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Þau eiga eina dóttur,
Önnu Þóru og ólu upp dreng, Jóhann Jónsson.
Skarphéðinn fór síðastur af systkinunum frá Bifröst.
Hann giftist Laufeyju Þórðardóttur, systur Þórunnar,
konu Baldurs. Þeirra börn eru Vilberg, Guðrún, Hreiðar
og Guðbrandur, sem dó í bernsku.
Baldur reisti sér hús 1930 og nefndi það Hvamm, síðar
byggði Skarphéðinn kvist ofan á það og hóf þar sinn
búskap. Þær fjölskyldur voru ætíð sem einn maður.
Það var mikið mál fyrir Jóhönnu að drengirnir stofnuðu
sín heimili í Ólafsvík. Smáspölur er frá Bifröst að
Hvammi og bæði húsin við Langastíg (nú Grundarbraut).
Bræðurnir Baldi og Héði voru sérstaklega samrýndir. Oft
mátti sjá þá ganga hlið við hlið frá Hvammi upp að Bif-