Breiðfirðingur - 01.04.1984, Blaðsíða 101
Magnús J. Jóhannsson frá Barðastöðum:
Seinasta förukonan
Jófríður Þorkelsdóttir, sem talin hefur verið seinasta föru-
konan á fslandi, var fædd að Árnesi, sem var hjáleiga frá
Staðarstað á Snæfellsnesi. Kirkjubókum ber ekki saman
um fæðingardag hennar. Á einum stað er hún talin fædd
7. júlí 1865, en á öðrum 23. júlí 1865.
Foreldrar hennar voru Þorkell Jósefsson bóndi að Ár-
nesi og þáverandi ráðskona hans Halldóra Magnúsdóttir,
en áður höfðu þau eignast eina dóttur, Vigdísi Sesselju.
Árið 1866 munu Þorkell og Halldóra hafa gengið í hjóna-
band og eignuðust eftir það eftirfarandi börn, sem mér er
kunnugt um: Jóhannes, Ragnhildi, Jón og Sigríði.
í æsku kynntist ég Jófríði nokkuð, því hún dvaldist
öðru hvoru á heimili foreldra minna að Barðastöðum í
Staðarsveit. í mínum huga er hún einhver eftirminnileg-
asti persónuleiki, sem ég hef kynnst. Jófríður hafði þann
hátt á, að hún ferðaðist milli bæja og dvaldi misjafnlega
lengi hverju sinni. Stundum aðeins næturlangt, en stund-
um svo vikum skipti, allt eftir því hvernig á henni lá
hverju sinni, og hvað henni þótti henta.
í Staðarsveit gengu margar sögur af þessari sérstæðu
konu og þó einkum af fyrri hluta ævi hennar. Hún var
talin hafa verið sérlega glæsileg á yngri árum.
Ekki hefur mér unnist tími til að kynna mér æviferil
hennar og væri þó þarft að halda þeim fróðleik til haga.
Má vera að seinna verði því gerð nokkur skil. Mér er
t. d. ekki kunnugt hvenær hún fór úr foreldrahúsum, en
sjálf sagðist hún hafa farið rúmlega tvítug að aldri, sem