Breiðfirðingur - 01.04.1984, Blaðsíða 92
90
BREIÐFIRÐINGUR
gamalla Ólsara, eins og hún ævinlega kallaði þá. Leiðin
lá út í Ennisdal, þar voru næg ber og við fylltum föturnar
og vorum glaðar yfir góðum feng. A heimleið nutum við
veðurblíðunnar og tæra fjallaloftsins. Leiðin lá niður urð-
arhóla og niður Bekk að vestanverðu við fossinn, sem
fellur fram af klettabelti fyrir ofan byggðina. Lessi bjarti
og fagri foss, Bæjarfoss, er sagður hollvættur staðarins. í
fögru veðri er útsýn fögur frá þessum stað út yfir Breiða-
fjörð þegar sólargeislar sindra á spegilsléttum haffletin-
um. Óvíða er fegurra sólarlag en í Ólafsvík í slíku veðri.
Lessi ánægjulega berjaferð okkar Jóhönnu endaði með
góðum kaffisopa heima hjá mér. En Reykjavíkurkonan
var undrandi á þessum áttræða unglingi.
Eitt óvænt óhapp dundi yfir blessaða Jóhönnu er hún
var orðin háöldruð. Þá kviknaði í baðstofunni. Orsökin
var sú að hún ætlar að kveikja upp eldinn, hellti steinolíu
í móflögu en falin glóð var þar undir og af þessum neista
varð mikið bál sem kveikti í fötum hennar. Hún brenndist
bæði í andliti og á höndum, búslóð hennar í baðstofunni
stórskemmdist og sumt eyðilagðist. Laufey og Héði komu
henni til hjálpar, svo vel tókst til að eldurinn varð slökkt-
ur í húsinu, en skemmdir urðu í íbúð Héða af reyk og
vatni. Jóhanna var flutt að Hvammi til Baldurs og Pór-
unnar. Par var henni hjúkrað meðan sárin voru að gróa.
Þetta áfall fékk mikið á Jóhönnu og var hún lengi að ná
sér. En mestu undur voru hvað brunasárin gréru fljótt á
svo vinnulúinni og háaldraðri manneskju. Þó Jóhönnu liði
vel í Hvammi og Þórunn væri henni eins góð og best var
á kosið, fór hún eins fljótt og unnt var heim í Bifröst er
bræðurnir Baldi og Héði voru búnir að gera baðstofuna
aftur í stand og nú var sett upp rafmagnseldavél. Þurfti
hún nú ekki lengur að skara í eldinn og því eldgamli
skörungurinn úr gildi fallinn eftir langa og dygga þjónustu
við húsmóður sína. Lítill móhlaði stóð samt í hlöðunni,
heyrði hann fortíðinni til. Hann hefur verið, án efa, síð-
asti móhlaði í Ólafsvík, enda móverk löngu niðurlögð. Er