Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 8
/s)ý TDögun.
Fæstir átta sig á því, að það, sem skiptir máli
fyrir syrgjendurna, er návist, það, að vera til
taks jafnvel þó ekkert sé sagt, vera tilbúinn
að hlusta þegar syrgjandinn þarf að tala og
leyfa honum að fá útrás fyrir tilfinningar
sínar.
LA+anaðUomandi s+uðK\m0u>*
Syrgjendum gefst kostur á mismunandi
utanaðkomandi stuðningi. Víða um land
eru starfandi samtök um sorg og sorgarvið-
brögð sem veita bæði f a glega og persónulega
ráðgjöf og stuðning. Prestar, sálfræðingar
og læknar eru einnig möguleiki til s tuðnings
fyrir syrgjendur.
I_okao»*ð
Allir búast við að sjá foreldra sína deyja
einhvern tíma á lífsleiðinni, en enginn býst
við að eiga eftir að sjá barnið sitt deyja. Að
margra mati er barnsmissir sárasti missirinn
sem maðurinn verður fyrir. Fyrir hverjum
og einum er sorg þeirra einstök. Enginn
upplifir sorgina eins.
Að skrifa þessa ritgerð hefur í raun verið
hluti af sorgarferli fyrir mig. Lestur heimild-
anna voru engin ný sannindi og þau ljóstruðu
ekki upp neinum leyndarmálum sem ég
hafði ekki þegar kynnst af eigin raun. Sorg
mín og áfall var í raun tvöfalt þ ví bamið mitt
fæddist með Down's syndróm og var frá
upphafi mjög veikt. Þegar ég hafði svo gert
mér grein fyrir staðreyndum og samþykkt
þær eins og þær voru, missti ég það.
Við að skrifa þessa ritgerð fékk ég einstakt
tækifæri til að skoða stöðu mína í sorgar-
ferlinu og átta mig á hversu vel mér hefur
orðið ágengt í úrvinnslu minni. Þetta er
lífsreynsla, sem ég er að læra að lifa við og
baminu mínu gleymi ég aldrei. Sárin gróa
og örin standa eftir.
Þessi umfjöllun um sorg foreldra við missi
barns er engann veginn tæmandi og óteljandi
atriðum og athugasemdum var sleppt til að
gera hana styttri og hnitmiðaðri. Ég vona
samt að efninu séu gerð hér bærileg skil.
Heimildaskrá
1) Karl Sigurbjörnsson, 1990, Til þín sem átt
um sárt að binda, Reykjavík, Útgáfan
Skálholt. Bls. 3.
2) Bragi Skúlason, 1990, Sorg foreldra,
Ljósmæðrablaðið, Reykjavík,. Bls 4.
3) Gunnar Biering, 1991, Að missa barnið
sitt, Reykjavík, Ríkisspítalar.
S+jóm og va»*as+jót*K\ /Oýrrar Dögumar
Stjóms
Ste-fanfa 'Po>‘g>‘fmsdó+ti>* formaSur, B>*agi SUwlason va>‘afo>*>naðM>‘/
SAa +Ha|liðadó++i>* gjaldUen, Slínborg 3^ónsdó+ti>* >*i+a>*i/
"Rósa ^ónsdót+ii* vawH+ai1!/ Slfsabet .Ungva^sdót+m meðs+jó>*nandi
og C7ngibjö>*g ^óKannsdó+ti>* meðs+jó>*nandi.
Va>*as+jó>*ni
ú\uðbjö>*g 'Pó>*ða>*dó++i>‘/ óauðlawg ú\unna>*sdó++i>*/ íuuðný Slfasdótti>*/
K>*is+fn _Aðalsteinsdót+i>* og Sigu>*ðu>* JJ^Kannsson.
8