Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 27

Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 27
/Vjý Dögurv- fjóra þætti (2). Hlutana nefndi hann líkams- sjálf, samskiptasjálf, getusjálf og siðferðis- sjálf. Siðferðissjálfið felur í sér tilfinningar til siðferðilegra og andlegra hugsana, t.d. hvort einstaklingnum finnst hann vera gjafmildur eða skemmtilegur. Getusjálfið felur í sér hugmyndir einstakl- ingsins um möguleika sína í daglegu lífi, t.d. hvort hann stendur undir væntingum í vinnu. Samskiptasjálfið inniheldur álit eða hugsanir um samskipti við aðra, t.d. hve marga vini hann á. Líkamssjálfið byggir á líkamsímyndinni og er í nánum tengslum við hana. Líkamssjálfið er viðhorf einstaklingsins til líkamsímyndar- innar og líkamlegrar hæfni svo og hvernig líkami hans stendur í samanburði við kröfur umhverfisins. Sjálfsmatið getur því verið jákvætt eða neikvætt, enda inniheldur það viðhorfið til líkamsímyndarinnar, sem einnig er jákvætt eða neikvætt. Þar sem líkamssjálfið byggir á líkamsímyndinni getur neikvæð breyting á líkamsímyndinni valdið nei- kvæðu viðhorfi til hennar og þar með dregið úr jákvæðu sjálfsmati eða gert það neikvætt. Það getur líka verið á hinn veginn, að neikvætt sjálfsmat geti haft áhrif á líkams- myndina, brenglað hana og sett úr skorðum við raunverulegt ástand líkamans (sbr. lystarstol). Til að verjast neikvæðum breyt- ingum á sjálfsmati hefur einstaklingurinn „Narcassískar birgðir" sem hann aflar sér við að fá jákvæðar strokur og jákvæð viðbrögð við gjörðum sínum. Margir þættir hafa áhrif á þróun sjálfsmats og „Narcas- sískar birgðir" sem þróast í nánu sambandi við líkamsímyndina (2). Oft er talað um neikvæða eða jákvæða líkamsímynd og er þar átt við viðhorfið til hennar, eða líkamssjálfið eins og lýst var hér fyrir ofan. Hér verður hugtakið fyrst og fremst notað í eiginlegri merkingu sinni og gert ráð fyrir að líkamsímyndin standi í rökréttu og beinu samhengi við sjálfan líkamann, útlit og hæfileika hans. L\pprur\\ og Joróur\ líkamsímyndav* Sumir fræðimenn telja að rekja megi þróun líkamsímyndar allt til fósturskeiðs - til frumskynjunar fóstursins í móðurkviði (14). Flestir telja þó að fyrst eftir fæðingu skynji barnið sig ekki sem einstakling, aðgreindan frá umhverfinu. Szasz stillti þróun líkamsímyndarinnar upp í þrjú stig. Fyrsta stigið er þegar barnið fer að greina á milli sjálfs sín og umhverfisins. Það, sem stuðlar að þessari aðgreiningu, eru fyrst og fremst skynhrif sem barnið verður fyrir, en við fæðingu aukast þau skiljanlega til muna. Þau felast í mjög auknum notum hinna fimm skilningarvita og skynjun hita, kulda, sárs- auka o.fl. en einnig koma til tilfinningar innan frá svo sem hungur, kvíði og skynjun þyngdaraflsins. Þessi skynhrif gera yfirborð líkamans að skilum milli líkamans og umhverfisins (4). Mikilvægur þáttur í ákvörðun eigin líkama er tvöföld snerting sem barnið upplifir þegar það snertir sjálft sig en ekki þegar snertingin er við umhverfið (5). Annað stigið felst í því að barnið fer að greina á milli mismunandi þátta sjálfs sín, þar á meðal að flokka skynhrif og tilfinningar. Jafnframt greinir barnið á milli þátta utan sjálfs sín. Þetta gerist á aldrinum 4 til 9 mánaða. Á þriðja stigi hefst tilfinningaþroski og þróun persónuleikans og barnið gengur í gegnum stigin sem Freud lýsti, oral, anal og ödipal stigin, lægðarstigið og gelgjuskeið (7). Því lýkur með fullsköpun egósins. Þannig byggir eitt á öðru til uppbyggingar persónuleikans. Skynhrif marka sjálfið frá umhverfinu og á því byggir líkamsímynd, sem er grundvöllur líkamsegós. Þegar líkamsímyndin er svo orðin að afmörkuðu fyrirbæri, heldur hún áfram að þróast í takt við líkamann og í samspili við umhverfið. Félagslegi þátturinn - samskiptin við aðra - 27

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.