Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 35

Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 35
/s)ý Dögurv Dæmi um áK»*if bmna á líkamsímynd Mikill bruni veldur oft bæði miklum starf- rænum og útlitslegum skaða. Breytingin sem verður við skaðann er mikil og snögg og fá sjúklingar lítinn tíma til þess að aðlaga sig nýrri líkamsímynd eins og alltaf er þegar um snöggar breytingar er að ræða. Gamla líkamsímyndin er „skilin eftir" á meðan líkaminn breytist. Bruni hefur ekki aðeins í för með sér líkam- legar afleiðingar heldur einnig félagslegar og sálfræðilegar afleiðingar. Hluti af með- ferð brunasjúklinga er því að bæta útlitið með lýtaaðgerðum og að hjálpa sjúklingnum að aðlagast breyttu útliti og minni færni. Varanleg útlitsbreyting er mest áberandi afleiðing bruna og þar sem mikil áhersla er lögð á líkamlegt útlit í mannlegu samfélagi þá þarf sá sem er illa brenndur að yfirstíga margar félagslegar hindranir. Andlitslýti er því hemill á eðlilegt líf. Þegar fólki dettur einhver sem það þekkir í hug, þá sér það fyrir sér andlit viðkomandi. Andlitið er tákn fyrir persónuleika hvers og eins. Þegar mikill andlitsskaði verður þá skerðist þetta tákn og hugmyndin um persónu- leikann brenglast. Kallast það á ensku „spoiled identity", þetta geristbæði í augum þess, sem verður fyrir skaðanum og þeim sem umgangast hann. Gagnkvæmt óöryggi er því algengt í sam- skiptum við fólk. Okunnugir verða vand- ræðalegir, stara, þegja, fara hjá sér og eiga erfitt með samræður. Það veldur hins vegar því, að þeim afmyndaða finnst hann vera óeðlilegur og óvelkominn. Umönnun og endurhæfing þessara sjúkl- inga er mjög erfið. Hún er fólgin í sjúkra- þjálfun, iðjuþjálfun, hjúkrun, aðhlynningu sálfræðimeðferð og lýtalækningum. Með- ferðin er löng, flókin og sársaukafull og verður sjúklingur að vera í dauðhreinsuðu umhverfi, í einangrun, þar sem engin snert- ing er möguleg í langan tíma. Oft eiga sjúklingar líka erfitt með að tjá sig munnlega. Það veldur tilfinningalegri einangrun, sem kemur mjög hart niður á sálarlífinu. Meðan á meðferð stendur missir sjúkl- ingurinn stjóm á lífi sínu. Hann á allt undir hjúkrunarliðinu og verður að setja traust sitt á það. Það getur kallað fram bakrásarein- kenni. Einnig er oft um einhvern meiri missi að ræða: Hús viðkomandi gæti hafa brunnið og/eða einhver nákominn gæti hafa látist og kannski olli sjúklingurinn brunanum. Þunglyndi og sjálfsásakanir fylgja því oft í kjölfarið og er nauðsynlegt, að gott samband myndist milli einhvers í hjúkrunarliðinu og sjúklingsins til þess að hann geti tjáð þessar tilfinningar. Það samband má ekki fela í sér sársaukafulla meðferð vegna þess að bruna fylgir mikill og langvarandi sársauki, sem veldur kvíða. Því er nauðsynlegt að einhver sé til staðar, sem sjúklingurinn getur treyst að þessu leyti. Það dregur mjög úr kvíða. Smám saman síast raun veruleikinn um h vað gerst hefur inn í vitund sjúklingsins og er það byrjunin á löngu ferli sem stundum tekur aldrei enda. Nýju líkamsímyndinni verður að koma fyrir í hugskoti einstakl- ingsins og er lokatakmarkið í þessu ferli, að viðkomandi aðlagist ástandi sínu. Nokkrir mánuðir líða þar til sjúklingur sér sig í spegli og er það mikið áfall, sem getur brotist út sem reiði, sem beinist jafnvel að hjúkrunar- fólki. Eftir útskrift einangrast margir félagslega. Viðkomandi tapar þá félagslegri stöðu sinni og fylgir þá þunglyndi í kjölfarið. Af þessu er ljóst hversu mikilvægar lýta- lækningar geta verið þessu fólki enda er ótrúlegt hvað hægt er að gera. Aðal vanda- málið varðandi bruna eru svokallaðir sam- gróningar í ágræddu húðinni og skert húð- skyn. Samgróningar verða vegna þess að hin nýja húð grær mjög óreglulega og togar í aðliggjandi húðsvæði sem hefur mikla afmyndun í för með sér. Eftir útskrift er fólk hvatt til þess að hafa samskipti við annað fólk. T.d. byrja á því að bjóða vinum og ættingjum heim og fikra sig smám saman lengra á þeim vettvangi. Þessu fólki eru einnig veittar ráðleggingar varðandi klæðnað til þess að fela ör og því bent á sérstaka andlitsmálningu og hárkollur. Einnig eru til hópar fyrir brunaskaðaða þar sem fólk getur fundið til samkenndar og dregur það mjög úr einmanaleik, sem er 35

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.