Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 3
/vjý Dögua
Frá ritstjóra
Ágætu lesendur
Nú kemur út annað tímarit Nýrrar Dögunar,
samtaka um sorg og sorgarviðbrögð í
Reykjavík. Hið fyrra kom út í nóvember í
fyrra. Það kom út í 2000 eintökum og er
uppselt.
Ný Dögun er um þessar mundir að halda
upp á 5 ára afmæli sitt og stendur því á
vissum krossgötum. Samtökin hafa flutt sig
um set út safnaðarheimili Laugarneskirkju,
þar sem við áttum athvarf um nokkurra ára
skeið, en nú erum við staðsett í Þing-
holtsstræti 3, í húsnæði Rauða Krossins.
Síminn þar er: 22230. Þar verða samverur á
þriðjudagskvöldum.
Fræðslustarfsemi samtakanna hefur verið
vel tekið og við höfum flutt fjölda fyrirlestra
um land allt, auk þess sem við höfum staðið
fyrir námskeiðum og námstefnum.
Við höfum meðvitað verið að skoða
hugmyndafræði missis síðustu misserin og
höfum lagt áherslu á, að missisviðbrögð
komi fram ekki einvörðungu við missi í
dauða, heldum líka við aðrar aðstæður í
lífinu. Þetta má sjá í efni þessa tímarits.
Jafnframt erum við upptekin af skoðun á
því, hvernig hjálpar- og stuðningsaðilar taki
á stuðningi við syrgjendur. Er þar bæði átt
við fagfólk annars vegar og fjölskyldu og
samfélag hins vegar.
Ástæða er til að þakka stuðningsaðilum
þessa tímarits sérstaklega, s vo og þeim bæjar-
og sveitafélögum, sem sýnt hafa málefnum
syrgjenda stuðning. Of langt mál yrði að
telja upp alla þessa aðila hér, en þeir standa
hjarta okkar nærri.
Að lokum er vert að geta þess, að Ný Dögun
býður velkomna til samstarfs alla þá, sem
bera hag syrgjenda fyrir brjósti. Okkur vantar
alltaf sjálfboðaliða á opin hús og fagfólk,
sem er tilbúið að leggja okkur til einhvern
hluta af tíma sínum, hugmyndum og orku.
Loks er það von mín, að þetta tímarit verði
hjálplegt innlegg í umræður um málefni
syrgjenda á Islandi.
Njótið heil!
Bragi Skúlason
formaður fræðslunefndar
Nýrrar Dögunar