Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 17

Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 17
/*0ý IDögun 5. fínattgKuM Oft fer sjúklingur í gegnum annað þung- lyndistímabil um það leiti sem hann út- skrifast frá endurhæfingardeild, en stundum geristþetta í tengslum við fyrsta helgarleyfið, þegar hann mætir fjölskyldunni heima við gjörbreyttar aðstæður, þ.e. bundinn hjóla- stól. Hann kemur þá úr vernduðu umhverfi meðal annarra einstaklinga í hjólastól og starfsfólks sem lítur á hann sem „ venjulegan " einstakling, en ekki bara sem fatlaðan hjóla- stólsbundinn einstakling. Hann dembist nú út í iðu þjóðfélagsins meðal hinna svokölluðu „heilbrigðu" ein- staklinga, þar sem ef til vill er starað á hann, hann er hunsaður og talað er yfir hann, eða hann er jafnvel meðhöndlaður eins og eitt- hvert viðundur eða fyrirbæri. Sem afleiðing af þessu öllu er tilhneigingin sú að hinn fatlaði lokar sig inni, einangrar sig frá öllu samneyti við fólk og frá öllu félagslífi. Það er mjög mikilvægt að yfirvinna þessa hindrun og h vatning frá fjölskyldu og vinum er því nauðsynleg til að hinn fatlaði þori að fara út og taka þátt í félagslífi, fara í bíó, í leikhús, veitingahús o.þ.h. Samningar A tímabili reyna margir að fara samnings- leiðina bæði við guð og menn, þeir biðja til guðs og reyna að semja, bara ef þeir nái bata aftur muni þeir bæta sig og þeir gefa ýmis loforð í því sambandi. Þeir reyna alls konar leiðir, s.s. breytt mataræði, huglækningar, orkusteina, að beðið sé fyrir þeim, að heitið sé á einhvern/eitthvað, bara ef... þeir nái bata að nýju. Á þessu stigi eru þessir sjúklingar e.t.v. mjög virkir og duglegir í endurhæfingu og vinna af hörku, en markmið þeirra eru hins vegar ekki alltaf í samræmi við raunveruleikann og markmið sjúklingsins og þjálfarans fara þá ekki alltaf saman. Oft er það svo að þegar sjúklingurinn sér að samningsleiðin gengur ekki upp og hann nær ekki þeim árangri sem hann ætlaði sér, getur hann orðið þunglyndur og áhugalaus í þjálfun/æfingum, af því að honum finnst að þjálfunin gagni sér ekki og hafi engan tilgang. 6. ýAðlögtm Gagnkvæmt traust er grundvöllur árangurs- ríkrar meðferðar og árangurs í endurhæf- ingu. Það er mjög mikilvægt að starfsfólk sýni mikinn áhuga og hafi þekkingu á starfi sínu til að sjúklingurinn öðlist traust á starfs- fólkinu. Endurhæfingin er flókin og krefst góðrar, faglegrar þekkingar og reynslu og góðrar samvinnu margra faghópa innan heilbrigðis- kerfisins. Viðendurhæfingunaþarfaðleggja áherslu á alhliða og öfluga þjálfun og með- ferð og það er mjög mikilvægt að sjúklingur- inn sjálfur sé virkur og ábyrgur. Með því aukast líkurnar á að hann nái að verða virkur og sjálfbjarga þar sem það er raunhæft og komist aftur út í þjóðfélagið eins fljótt og mögulegt er sem virkur þjóð- félagsþegn. Til að geta unnið árangursríkt starf í hópi er gagnkvæm virðing og skilningur á starfi annarra í hópnum grundvallaratriði. Miðdepillinn í hópnum og mikilvægasti meðlimur hans er auðvitað sjúklingurinn sjálfur. Trúnaðartraust er hægt að byggja upp með umhyggju og heiðarleika. í byrjun endurhæfingatímabilsins er sjúkl- ingurinn venjulega fyrstog fremst upptekinn af eigin ástandi, eigin viðbrögðum við með- ferð og framförum. Það er nauðsynlegt að gefa honum skil- merkilegar skýringar á þeim aðferðum sem notaðar eru og hvers vegna. Hann verður að öðlast skilning á tilgangi meðferðarinnar. Það er mjög mikilvægt að starfsfólkið sé þolinmótt og bjartsýnt þrátt fyrir að sjúkl- ingurinn geti stundum virst kvartsár, hrædd- ur, latur eða vonsvikinn. Við verðum að geta mætt sjúklingnum á því stigi sem hann er, skilið tilfinningar hans og hvers vegna hann bregst við eins og hann gerir. 17

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.