Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 40

Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 40
/sjý Dögim Niðurstöður rannsókna sýna, að sorgar- viðbrögð bama eru meðal annars háð aldri, þroska og mikilvægi þess látna í lífi bamsins. Hvernig börn bregðast við missi er einstaklingsbundið, það er ekki til neitt eitt sorgarferli eða ein „rétt" sorgarúrvinnsla. Mikilvægast af öllu er að böm geti fengið útrás fyrir tilfinningar sínar. Sum böm kjósa að tjá tilfinningarnar innan veggja heimilis- ins, önnur fá útrás í skólanum, í formi leiks með jafnöldrum, skrifum ljóða eða sagna, teikningum, eða með því að deila sorg sinni með kennaranum. Algeng viðbrögð barna við missi náins ástvinar ( foreldris eða systkinis). 1) Fyrstu viðbrögð barna við áfalli er oft tilfinningadoði. Þegar barn hefur gert sér grein fyrir raunveruleika missis- ins kemur oft tímabil losts, sem getur varað í lengri eða skemmri tíma. Dæmi: allar hreyfingar barnsins verða vélrænar,það er eins og barnið gangi í leiðslu, það er utan við sig, starir út í loftið, við minnsta áreiti kemur stirnað bros eða því er mjög viðbrigðið og sýnir mikil kvíða og óttaviðbrögð. Barnið getur verið við það að bresta í grát án nokkurs áreitis. 2) Ótti barns við aðskilnað frá fjölskyldu sinni getur gert það : a) hrætt við aðskilnað frá foreldri (um) b) tregt að fara í skólann c) niðurdregið (þunglynt) d) næmt fyrir sýkingum til dæmis: kvefi, eyrnarbólgu og magaóþægindum. e) fer að naga neglur og fær nýja kæki. f) hafi langvarandi svefntruflanir, á borð við martraðir, að eiga erfitt með að sofna og er myrkfælið. g) missi matarlystina, eða borði of mikið. h) verði viðbrigðið. i) verði hrætt við sjúkrahús, lækna og hjúkrunar-starfsfólk. 3) Hvarf aftur til fyrra þroskastigs er algengt. 4) Börn eiga oft erfitt með að einbeita sér við skólaverkefnin. Þau eru utan við sig og fylgjast ekki með því sem fram fer í kennslu- stundinni. 5) Árásargimi, rólegustu börn fara að slást í frímínútum. Stjórnleysið verður allsráðandi. 6) Einangra sig frá umhverfinu, tala lítið og draga sig inn í skel. 7) Börnin verða að fá útrás fyrir hryggð og reiði, en þau eru oft hrædd og óörugg í að fá útrás því þau vita ekki hvað er leyfilegt og hvað ekki. 8) Hræðslan við að spyrja spurninga er algeng. Sum börn geta aðeins talað við þá, sem standa fjær, en önnur börn einungis við sína nánustu um atburð dauðans. Ástæðan er oft sektarkennd. 9) Líkamleg streitueinkenni svo sem höfuðverkur og vöðvaspenna. 10) Það tekur börn álíka langan tíma að syrgja eins og fullorðna eða um það bil tvö ár. Viðbrögð unglinga við missi Á unglingsárunum þarf einstaklingurinn að tengjast jafnöldrum sínum. Unglingar eru oft á tíðum miklar hópsálir. Það, að vera öðruvísi á einhvern hátt, er ekki „leyfilegt innan hópsins". Því reynist það mörgum unglingnum um megn „að vera öðruvísi", sem við öll upplifum við missi ástvinar í dauða. Unglingar einangrast því oft félags- lega, gömlu vinirnir hafa ekki lengur sömu lífsreynslu og því síður skilning á að sorgin tekur langan tíma. Syrgjandinn breytist í hegðan, hann er sorgmæddur og oft leiður 40

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.