Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 23

Ný Dögun - 01.11.1992, Blaðsíða 23
A)ý Dðgurv sitt úr slíðrum og vildi fyrirfara sér, en Páll stöðvaði hann og síðan var hann skírður og allt hans fólk. Þarna var maður, sem vildi fremur deyja, en að lifa við skömm. Ennfremur er vert að geta um þá skoðun, sem finna má í Nýja testamentinu, að dauð- inn geti verið ávinningur. Ekki þannig, að sjálfsvíg sé lausnin, heldur að það sé svo miklu betra að deyja og fá að vera hjá Kristi. 11. kafla bréfs Páls postula til Filippímanna, versunum 19-26 má sjá þetta. Þar segir m.a.://...lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur. En eigi ég áfram að lifa á jörðinni, þá verður meiri árangur af starfi mínu. Veit ég eigi hvort ég á heldur að kjósa. Ég á úr tvennu vöndu að ráða: Mig langar til að fara héðan og vera með Kristi, því að það væri miklu betra. En yðar vegna er það nauðsynlegra, að ég haldi áfram aðlifa hér á jörðu..." Páll postuli dó píslarvættisdauða. Same.igin\e.gat* áWe.nsiu^ Frásagnir Biblíunnar eiga sér nokkur atriði sameiginleg: 1) Ef sjálfsvíg fylgir hörmungum í stríði, eða niðurlægingu, sem leiðir af sér dauða eða pyntingar, þá flokkast sjálfsvígið undir „dauða með sæmd". 2) Þeir, sem eru vitni að sjálfsvíginu og sá, sem segir frá, líta á sjálfsvígið á sama hátt og önnur dauðsföll. Þar sem talað er um greftrun, þá er það í grafreit fjölskyldunnar, eða á öðrum tilteknum stað. Engin vísbending er um að líkamar þeirra, sem sviptu sig lífi, hafi verið meðhöndlaðir öðru vísi en aðrir líkamar látinna. 3) Engin vísbending er um það í neinum þessara frásagna, að litið sé á sjálfsvíg sem synd. Hvergi er talað út frá fordæmingu á verknaðinum sjálfum. Viðko>*|- og kenm'ngat* wm sjálfsvíg í stærstu trúarritum Gyðinga á eftir Gamla testamentinu, Misna og Talmud, er hvergi talað um að sjálfsvíg hindri fólk í að ganga inn í hinn komandi heim. Oft er vitnað til illra verka og sumir eru tilgreindir sem dæmi um menn, sem fái ekki aðgang að hinum komandi heimi. í þeim hópi er Akítófel nefndur. Ekki vegna þess, að hann svipti sig lífi, heldur vegna þess, að hann sveik konung sinn, Davíð. Siðferðilegt mat virðist ekki lagt á það, hvernig manneskjan deyr, heldur mun fremur á það, hvernig hann/hún lifir lífi sínu. Snemma á 5. öld e. Kr. skrifaði Ágústínus kirkjufaðir um sjálfsvíg. Vert er að geta þess, að fram að þeim tíma hafði það borið við, að kristnir menn og konur, sem sættu ofsókn- um, kysu sjálfsvíg fremur en þjáningar af hendi heiðinna ofsækjenda. Ágústínus taldi slíkt rangt út frá 5. boðorðinu. Hann er sá fyrsti af áhrifamönnum innan kirkjunnar svo vitað sé, að mæla gegn sjálfs vígum út frá 5. boðorðinu. Píslarvætti var algengt á fyrstu öldum kristninnar. Ofsóknirnar voru oft misk- unnarlausar. Til voru þeir, sem töldu píslar- vættisdauðann einu leiðina til aðbera Drottni sannan vitnisburð. Allir postularnir nema Jóhannes dóu píslarvættisdauða, þ.e.a.s. fyrir utan Júdas, sem svipti sig lífi. Tómas Aquinas setti á 13. öld fram 3 megin- atriði, sem undirstrikuðu að sjálfsvíg væri dauðasynd:l )Sjálf s víg er afneitun á ást okkar á eigin lífi, sem hver vera býr yfir, 2) sjálfs víg er afneitun á skyldum manneskjunnar gagn- vart samfélagi sínu, 3) lífið er gjöf Guðs og Guð einn getur tekið það til baka. Þessi atriði hafa mótað kirkjulega umfjöllun um sjálfsvíg síðan. Sem prestur og kristinn maður finn ég hversu mjög þau hafa verið höfð fyrir mér og mótað mig. En röksemdir Tómasar Aquinasar byggja ekki algerlega á kristinni kenningu, heldur má rekja þær að hluta til Aristótelesar-2) og til skrifa Gyðingsins Jósefusar-1) og 3). 23

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.