Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 27
KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is VVV Vélar, verkstæði og verktakar SMÁKRANAR: Hífa stærstu rúður á Íslandi Smákranar ehf. er öflugt fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað fyrir 15 árum þegar eigendur þess, Erlingur Snær Erlingsson og Hildur Björg Ingibertsdótt- ir, kynntust nýrri tegund af vinnuvélum – svonefndum smákrönum. Stærð, eða smæð krananna gerir það að verkum að hægt er að fara með þá á afvikna og þrönga staði þar sem önnur tæki komast ekki að, til dæmis inni í byggingum, í görðum, kjallara- byggingum, uppi á þökum háhýsa o.fl. Smákranar veita þannig sérhæfða þjónustu á sviði lyftingatækni þar sem leitast er við að uppfylla þarfir og væntingar viðskiptavina á sem hagkvæmastan hátt. Smáir kranar, risastór verk- efni og risastór gler Stærsti hluti af starfsemi fyrirtækisins frá upphafi hefur verið hífingar á stórum og miklum glerjum allt frá um 150 kílóa rúðum upp í þyngstu rúður sem hafa verið settar upp á Íslandi. Smákranar vinna fyrir aðila sem setja upp stök gler eða heilu glugga- kerfin í húsnæði í einkaeigu eða í eigu opinberra aðila. „Umsvif fyrirtækisins hafa hægt og sígandi aukist og frá því við byrjuðum höfum við tekið þátt í mörgum af stærri framkvæmdum sem hafa verið á Íslandi undanfarinn áratug. Meðal annars má nefna stækkun flugstöðvar- innar í Keflavík, Háskólann í Reykjavík, Hörpuna, H&M í Smáralind, hótel Bláa lónsins og margt fleira,“ segir Erlingur. Fossinn: stærsta rúða á Íslandi „Árið 2007 settum við upp mörg tonn af gleri í Arion bankahúsinu. Þar á með- al hífðum við stærstu og þyngstu rúðu sem hefur verið sett upp á Íslandi,“ segir Erlingur. Um er að ræða verk sem kallast Fossinn en vatn rennur niður glerið og mynd- ar eins konar foss. Rúðan er 3×6 metrar eða 18 fermetrar og vegur hún um 1.800 kíló. Þurfti þá að nota tvo smá- krana og lyftara til þess að setja upp ferlíkið. Tekur 6 tonn í bekk Smákranar hafa enn frem- ur tekið þátt í miklum fjölda verkefna og t.a.m. voru kranar fyrirtækisins notaðir til að hífa upp hvalalíkön fyrir Hvalasýn- inguna Whales of Iceland á Granda. „Í dag erum við með stóran smákrana sem getur farið inn í hús og lyft allt að 6 tonnum. Við notuðum hann nýverið við að hífa innandyra 4,5 tonna flugvélamótor af Boeing 747 sem Air Atlanta gaf flugvirkjanámi Keilis,“ segir Erlingur. Ótrúleg lyftigeta Í dag eru Smákranar með umboð frá þýska fyrirtækinu Robert Kappel sem einblínir á framleiðslu á sogskálum til hífingar og uppsetningar á allt að 6 tonna glerjum. Smákranar eiga fimm sog- skálar með 300–1.500 kílóa lyftigetu. „Við erum í raun eina fyrirtækið á Íslandi sem getur híft þyngri gler en 1 tonn með ábyrgum og öruggum hætti. Ef einhver kemur til okkar og þarf að hífa allt að 6 tonna gler þá gætum við pantað viðeigandi sogskál frá Robert Kappel og híft glerið með ör- uggum hætti,“ segir Erlingur. Einnig bjóða Smákranar upp á leigu á sogskálunum og meðal annars hafa verið sett upp 12–14 fermetra rúða í Brimborg og fjórar 900 kílóa rúður í Hafnartorgi með sog- skálinni góðu. Helstu eiginleik- ar sogskálanna er sá að hægt er snúa glerjunum úr láréttri stöðu í lóðrétta með mótorum sem eru á skálinni í stað þess að nota handafl. Enn fremur er hægt að halla glerjun- um frá því að vera lóðrétt yfir í lárétt með rafstýrðum glussatjökkum. Þetta gerir flutning og hífingar á stórum glerjum töluvert áhættuminni en áður. „Nú síðast nýttum við eiginleika sogskálarinnar til þess að skáskjóta fjórum 500 kílóa rúðum inn um inngang í Smáralindinni fyrir nýjan verslunarglugga þar inni,“ segir Erlingur. Nánari upplýsingar má nálgast á smakranar.is Stórihjalli 15 – 200 Kópa- vogur Sími: 699-4241 Netpóstur: ese@smakran- ar.is.n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.