Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 16
16 9. nóvember 2018
Þ
egar Ellie Holman flaug frá
Lundúnum til Dúbaí í júlí til
að heimsækja vini sína hófst
atburðarás sem hún hefði
gjarnan viljað sleppa við. Ellie er
sænsk-írönsk, 44 ára, tannlæknir
og býr í Kent á Englandi. Fjögurra
ára dóttir hennar, Bibi, var með í
för. Í flugvélinni buðu flugliðar upp
á rauðvín og fékk Ellie sér eitt glas.
Þegar hún kom á flugvöllinn í Dúbaí
reyndist það vera dýru verði keypt
því henni og Bibi var hent í hrylli-
legan fangaklefa þar sem þær þurftu
að dúsa í þrjá daga. Þær urðu að sofa
á gólfinu í illa lyktandi og „ómann-
úðlegum“ fangaklefa þar sem 30 til
viðbótar máttu dúsa. Maturinn sem
fangarnir fengu var myglaður.
„Ég hef aldrei heyrt litlu stúlkuna
mína gráta svona áður. Ég var svo
hrædd við hvað gæti gerst. Ég þorði
ekki að loka augum í þrjá sólar-
hringa,“ sagði Ellie í samtali við sam-
tökin Detained in Dubai eftir að hún
var látin laus. Samtökin aðstoða
Vesturlandabúa sem lenda í útistöð-
um við lögin í þessu litla og forríka
furstadæmi.
Ellie hafði ekki hugmynd um að
það væri stranglega bannað að vera
með minnsta vott af áfengi í blóð-
inu þegar komið er til Dúbaí. Af
þeim sökum þáði hún rauðvínsglas-
ið sem var boðið upp á í fluginu með
ríkisflugfélagi landsins, Emirates
Airways. En þegar hún kom í toll-
inn upphófust vandræðin. Vega-
bréfsáritunin, sem hún var með,
gilti aðeins fyrir för inn í landið.
Landamæravörðurinn gaf henni því
fyrirmæli um að fara beint heim til
Lundúna. Ellie hryllti við tilhugsun-
inni um að þurfa að sitja strax aftur í
átta klukkustundir í flugvél. Hún bað
því um að fá að kaupa ferðamanna-
vegabréfsáritun í flugstöðinni. En
landamæravörðurinn hafnaði því
með öllu og sýndi Ellie ekkert nema
ókurteisi að hennar sögn. Þetta
þróaðist yfir í deilur þeirra á milli
og Ellie byrjaði að taka myndir af
landamæraverðinum til að geta sýnt
hversu dónalegur hann væri. Þegar
hann spurði hana hvort hún hefði
drukkið áfengi sagðist hún hafa
drukkið eitt glas. Þá birtist skyndi-
lega um tugur lögreglumanna og
umkringdi hana. Þeir tóku vega-
bréf hennar og farsíma af henni og
neyddu hana til að láta blóðprufu í
té. Niðurstaða rannsóknar á henni
var að hún var með 0,04 prómill af
alkóhóli í blóðinu. Í þá þrjá daga
sem hún sat í fangaklefanum fékk
hún ekki að hafa samband við neinn
og fjölskylda hennar vissi ekkert um
hrakfarir hennar fyrr en vinir Ellie í
Dúbaí náðu að grafast fyrir um hvað
væri í gangi. Mæðgunum var síðan
sleppt úr haldi en sagt að þær mættu
ekki yfirgefa landið vegna rannsókn-
ar málsins og að Ellie ætti margra ára
fangelsisvist yfir höfði sér.
Ekki einsdæmi
Mál Ellie er ekkert einsdæmi í Dúbaí,
heldur einfaldlega skólabókardæmi
um ótrúlegan lagalegan frumskóg
í landinu. Þessi lög gera að verkum
að fólk á á hættu að vera saksótt fyrir
eitthvað sem það hefur ekki hug-
mynd um að sé ólöglegt. Til dæmis
er fjöldinn allur af hótelum og bör-
um sem selur áfengi á löglegan hátt.
En hins vegar er algjörlega óheim-
ilt að drekka þetta sama áfengi á al-
mannafæri og skiptir þá engu hvort
það er keypt á hóteli eða inni á bar,
hvort tveggja telst almananfæri.
Þetta veldur fólki oft vandræðum
því það telur að það megi drekka
áfengið þar sem það er selt. Oftast
er litið framhjá þessu en ef einhverj-
um misbýður og hringir í lögregluna
hefjast vandræðin og fólk á á hættu
að enda í fangelsi.
Þetta á ekki einungis við um
áfengi því konur hafa lent í vandræð-
um á ströndinni fyrir að vera í bikiníi
en fjöldi kvenna í bikiníi er þar nær
alla daga. Pör hafa verið handtekin
fyrir að haldast í hendur en á sama
tíma má sjá vændiskonur bjóða
þjónustu sína á nær hverju einasta
götuhorni í borginni. Yfirvöld horfa
að jafnaði í gegnum fingur sér með
þetta til að hræða ekki ferðamenn á
brott en landið er markaðssett sem
nútímaleg ferðamannaparadís. En
undir yfirborðinu er hins vegar ótrú-
lega íhaldsamt samfélag. Lögun-
um er ekki breytt því íhaldssömum
ráðamönnum finnst það vera ein-
hvers konar árás á íslömsk gildi.
Ellie var ákærð
Eftir að Ellie var látin laus var
hún ákærð fyrir að hafa drukk-
ið áfengi, fyrir að hafa móðgað
landamæravörð og fyrir að hafa tek-
ið myndir af honum án leyfis. Eftir
fjórar vikur var hins vegar fallið frá
öllum ákærum og henni sagt að hún
gæti farið heim og væri alltaf vel-
komin aftur til Dúbaí. Þá voru tvö
eldri börn hennar kominn til henn-
ar.
„Þeir borguðu flugmiðana, fylgdu
okkur út á flugvöll, voru með rósir
fyrir mig og hamborga handa börn-
unum og báðust margoft afsökunar
á því sem gerðist,“ sagði Ellie í samtali
við Daily Mail eftir heimkomuna. En
allt eru þetta orðin tóm því ekkert
hefur breyst í Dúbaí, engum lögum
og reglum hefur verið breytt og allt
er við það sama. Það er því aðeins
tímaspursmál hvenær næsti ferða-
maður lendir í gildrunni.
Fyrst eftir heimkomuna ræddi
Ellie við fjölmiðla og skýrði frá at-
burðunum í Dúbaí. En í kjölfarið
hófst mikil áróðursherferð á sam-
félagsmiðlum og nú þorir hún ekki
lengur að veita viðtöl vegna máls-
ins. Ellie og hennar fólk er sannfært
um að nettröll á vegum yfirvalda í
Dúbaí séu hér að verki og hafi það
að markmiði að eyðileggja orðstír
Ellie og gera út af við rekstur henn-
ar. Nettröllin hafa sakað hana um að
hafa logið öllu um atburðarásina, að
hún sé ósiðleg. Aðrir skrifa að þeir
voni að börnin hennar deyi og að
hún verði sett í fangelsi til æviloka
eða að glæpamaður nauðgi henni
og hún eignist ógeðslegt barn. Þá
var eitt sinn hringt í hana og sagt
að sprengja væri við hús hennar
og að börnin hennar skyldu deyja.
Meira að segja vinir hennar í Dúbaí
hafa neyðst til að biðja hana að fjar-
lægja allar myndir af Facebook og
Instagram þar sem þeir sjást með
henni.
Þetta ber að varast í Dúbaí:
n Gættu að hvað þú skrifar á samfé-
lagsmiðla. Neikvæð skrif um stjórn-
völd í Dúbaí, um íslamstrú eða íbúa
landsins geta kostað fólk fangelsis-
vist.
n Ýmsar tegundir verkjalyfja, sum-
ar sem eru ekki lyfseðilsskyldar, eru
ólöglegar í Dúbaí sem og rafrettur.
Fólk getur verið handtekið ef það er
með þessi lyf eða rafrettur í fórum
sínum.
n Gættu að þér þegar þú tekur
myndir. Fyrir fimm árum var asískur
maður dæmdur í eins árs fangelsi
fyrir að hafa tekið myndir af íbúa í
Dúbaí að berja indverskan bílstjóra
sinn. Það er bannað að taka mynd-
ir af opinberum byggingum og fólki
nema það veiti samþykki sitt fyrst.
n Það getur varðað sektum, fangelsi
eða brottvísun úr landi að bölva eða
sýna ósæmileg merki með fingrum.
n Það er bannað að borða og drekka
frá sólarupprás til sólsetur þegar
föstumánuðurinn ramadan stend-
ur yfir.
n Ekki klæðast „djarft“, til dæmis
með því að sýna axlirnar. Það getur
endað með fangelsisvist.
n Farðu varlega í að daðra. Bara það
eitt að horfa aðeins of lengi á ókunn-
uga konu getur endað með sekt eða
fangelsisdómi. n
FRÉTTIR - ERLENT
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
n Eitt vínglas í flugvélinni og þú getur lent í fangelsi
ÞÚ FÆRÐ MYNDVARPANN
HJÁ OKKUR
325”
4K
HINAR MÖRGU GILDRUR SEM
BÍÐA FERÐAMANNA Í DÚBAÍ
Lögreglan í Dúbaí.
Ellie Holman
Þriggja daga
vítisvist í Dúbaí.