Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 14
14 9. nóvember 2018
N
iðurstaða þingkosning
anna í Bandaríkjunum á
þriðjudaginn kom almennt
ekki á óvart. Demókratar
náðu meirihluta í fulltrúadeild
þingsins en kosið var um öll
435 sætin í deildinni. Repúblik
anar héldu meirihluta sínum í
öldungadeildinni og því verður
ástandið þar óbreytt hvað varð
ar samskipti þings og forseta. En
það að demókratar séu nú komn
ir í meirihluta í fulltrúadeildinni
breytir ýmsu fyrir Donald Trump
forseta og möguleikar hans á að
koma stefnumálum sínum áfram
verða minni. Ýmsir stjórnmála
skýrendur telja að niðurstaðan
sé ávísun á kyrrstöðu og skítkast
manna á milli næstu tvö árin eða
þar til kosið verður um nýjan for
seta, nýja fulltrúadeild og þriðj
ung öldungadeildarþingsæta eftir
tvö ár.
Fram að þessu hefur Trump
getað reitt sig á meirihluta
repúblikana í báðum deildum
þingsins til að koma stefnumálum
sínum í gegn. En nú er staðan gjör
breytt og getur haft í för með sér að
lagafrumvörp komist ekki í gegn
um þingið. Ferlið er þannig að
lagafrumvörp þarf að samþykkja í
báðum deildum þingsins og síð
an þurfa þau að fara til undirritun
ar hjá forsetanum. Samkomulag
demókrata og repúblikana er ekki
gott og engin teikn eru á lofti um
að það fari batnandi. Því má telja
nokkuð víst að þar muni stálin
stinn áfram takast á. Þannig mun
þingið í raun vera lamað og fá eða
engin lagafrumvörp munu hljóta
afgreiðslu nema auðvitað krafta
verkið gerist og flokkarnir fari að
starfa saman. Trump mun því
þurfa að beita forsetatilskipun
um í miklum mæli og komast að
því hversu langt hann getur geng
ið í einstökum málum án þess að
njóta aðstoðar þingsins við það.
Sama staða var uppi á ten
ingnum þegar Barack Obama tók
við forsetaembætti. Þá ákváðu
repúblikanar á þingi að hindra allt
sem frá honum kom til að lama
hann sem forseta. Obama nýtti því
forsetatilskipanir í miklum mæli.
Nýr aðalóvinur Trump
Niðurstaða kosninganna þýðir að
Trump hefur eignast nýjan aðal
óvin, það eru demókratarnir í full
trúadeildinni. Hann mun væntan
lega beina spjótum sínum að þeim
í hvert sinn sem eitthvað mistekst
hjá honum næstu tvö árin.
Þegar nýtt þing tekur til starfa
eftir tvo mánuði breytist margt í
bandarískum stjórnmálum. Full
trúadeildin sem hefur undan
farið samþykkt herta innflytj
endalöggjöf, ógilt Obamacare og
skorið grimmt niður í félagsleg
um útgjöldum mun nú væntan
lega breyta um stefnu undir stjórn
demókrata. Fyrsta mál á dagskrá
að sögn Nancy Pelosi, sem verð
ur væntanlega leiðtogi demókrata
í deildinni, er að samþykkja frum
vörp um siðferði innan stjórnkerf
isins og endurbætur á kosninga
kerfinu. Þessi frumvörp munu
síðan væntanlega daga uppi í
öldungadeildinni en demókratar
munu með vinnu sinni ætla að
sýna kjósendum hvað þeir muni
gera ef þeir ná meirihluta í báðum
deildum eftir tvö ár og jafnvel for
setaembættinu.
Trump getur aðeins vonast til
að koma frumvörpum í gegnum
þingið með því að starfa þvert á
flokkslínur. Það gæti reynst hon
um erfitt enda eyddi hann síðustu
mánuðum í að ráðast harkalega
á demókrata á kosningafundum
víða um Bandaríkin og var orð
færið ekki alltaf fagurt. Það hlýtur
einnig að valda honum áhyggjum
að demókratar geta nú hert enn
frekar þær rannsóknir sem eru í
gangi á meintum tengslum for
setaframboðs Trump við Rússa.
Einnig kann að vera stutt í að
skattaskýrslur Trump verði birt
ar opinberlega en hann hefur ekki
viljað opinbera þær.
Trump er að vanda óútreiknan
legur og eftir að úrslit kosning
anna lágu ljós fyrir fagnaði hann
þeim og sagði þau „stórkostlegan
árangur“. Þetta sagði hann þrátt
fyrir að repúblikanar hefðu misst
völdin í fulltrúadeildinni. Hugsan
lega hefur hann þarna átt við það
ljós í myrkrinu fyrir repúblikana
að þeim tókst að halda meirihluta
í öldungadeildinni. Það hefði
verið gríðarlegt áfall fyrir Trump ef
demókratar hefðu náð meirihluta
í öldungadeildinni. Þá hefðu verið
auknar líkur á að þeir hefðu hafið
ferli til að reyna að koma honum
frá völdum með því að höfða mál á
hendur honum fyrir þinginu.
En það er kannski ekki alslæmt
fyrir Trump að demókratar verða
nú í meirihluta í fulltrúadeildinni.
Nú getur hann kennt þeim um ef
efnahagslífið þróast til hins verra
og nú hefur hann fullkomna af
sökun fyrir að geta ekki komið
neinu í verk næstu tvö árin. Þessu
getur hann hamrað á fyrir næstu
kosningar og bent á að þessu þurfi
að breyta og þannig reynt að fá
kjósendur til liðs við repúblikana.
Hann er sem sagt kominn með
nýjan og augljósan óvin sem er á
allt annarri línu en hann sjálfur.
Þrátt fyrir tapið geta repúblik
anar glaðst yfir árangri einstakra
frambjóðenda. Ted Cruz stóðst
atlögu Beto O’Rourke, helstu
vonarstjörnu demókrata, í Texas.
Aðrir frambjóðendur sem náðu
góðum árangri voru meðal
annars í Flórída, Indiana, Norður
Dakóta og Missouri. Demókratar
geta glaðst yfir góðum sigrum í
Flórída, Virginíu, Pennsylvaniu og
Minnesota en þessir sigrar ættu að
blása þeim bjartsýni í brjóst fyrir
kosningarnar eftir tvö ár.
Tímamót hjá konum og
minnihlutahópum
Þau tímamót urðu í kosningunum
að þessu sinni að metfjöldi kvenna
var kjörinn til setu í fulltrúa
deildinni en þær verða um 100 en
voru 84 á kjörtímabilinu sem er að
ljúka og 22 konur voru kjörnar til
setu í öldungadeildinni.
Einnig fengu margir frambjóð
endur, úr röðum minnihlutahópa,
góða kosningu. Þar má nefna að
tvær konur af ættum frumbyggja
voru kjörnar á þing og tvær islam
skar konur náðu kjöri og eru fyrstu
islömsku konurnar sem eru kjörn
ar á þing. Í Colorado var Jared
Polis kjörinn ríkisstjóri og er hann
fyrsti samkynhneigði ríkisstjórinn,
að minnsta kosti sá fyrsti sem fer
ekki leynt með kynhneigð sína. Í
Arizona og Tennessee voru konur
kosnar til setu í öldungadeildinni
en það er í fyrsta sinn sem það ger
ist í þessum ríkjum.
Í New York var Alexandria
OcasioCortex kjörin á þing fyrir
demókrata en hún er aðeins 29 ára
og yngsta konan í sögunni til að
taka sæti í fulltrúadeildinni. Hún
þykir vera langt til vinstri í flokkn
um og hefur vakið mikla athygli
fyrir vasklega framgöngu í kosn
ingabaráttunni og vann glæsi
legan sigur í kjördæmi sínu þar
sem hún fékk 78 prósent greiddra
atkvæða. Fyrir aðeins ári vann hún
á bar til að framfleyta fjölskyldu
sinni.
Árangur kvenna er sérstaklega
glæsilegur og margir fagna honum
og telja að nú verði ákveðin tíma
mót í bandarískum stjórnmálum
þar sem konur láti meira til sín
taka. Tími hvítra karla, í aðalhlut
verkum á þingi, sé að líða undir
lok. n
FRÉTTIR -ERLENT
FEGURÐ
ENDING
MÝKT
Kostirnir eru ótvíræðir:
• Fallegra hús
• Ekkert viðhald
Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is
VEGGKLÆÐNINGAR
Fyrir allar gerðir húsa, ný
jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða
„Trump getur að-
eins vonast til
að koma frumvörpum
í gegnum þingið með
því að starfa þvert á
flokkslínur.
Donald Trump Sagði úrslitin stórkostlegan
árangur en þau voru í raun mikill skellur.
Nancy
Pelosi
Leiðtogi
Demókrata
í neðri deild
Banda-
ríkjaþings.
Úrslit
bandarísku
þingkosning-
anna gera
Trump
erfitt fyrir
Glæsilegur árangur kvenna og minnihlutahópa
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is