Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 40
Góð kaup 9. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Frá því hjónakornin Andrés og Hrönn stofnuðu fjölskyldufyr-irtækið Tónastöðina árið 1987
hafa þau aðstoðað tónlistarmenn,
jafnt unga sem aldna, við val á hljóð-
færum og nótum, fyrst við Óðinstorg
en seinustu 15 árin að Skipholti 50d
þar sem verslunin er til húsa. „Þetta
er ein elsta hljóðfæraverslun lands-
ins og stundum grínast ég með að
við eigum líklega elstu kennitöluna í
bransanum,“ segir Andrés.
Þekking og reynsla
Á þeim árum sem Tónastöðin hefur
verið starfrækt hefur skapast mikil
reynsla og þekking hjá í fyrirtækinu.
„Allir sem hér starfa eru með yfir-
gripsmikla þekkingu og hafa annað-
hvort kennt lengi eða starfað lengi í
þessum bransa. Við aðstoðum alla
sem hingað koma, jafnt áhugamenn
sem atvinnumenn, í öllu sem viðvíkur
tónlistariðkun,“ segir Andrés.
Það besta verður ávallt ódýrast
Í dag kostar furðulítinn pening að
koma sér upp góðum búnaði til þess
að að spila og taka upp tónlist og
ættu flestir sem hafa áhuga á að
geta gert það. „Við höfum líka alltaf
lagt ríka áherslu á gæði ekki síður en
gott verð. Kjörorð okkar eru enda þau
að það besta verður ávallt ódýrast,
því bestu kaupin eru í hlutum sem
endast og reynast vel í langan tíma,“
segir Andrés og bendir á að hljóð-
færi og upptökubúnaður séu gjafir
sem endist og séu því margfaldlega
peninganna virði: „Góðir íþróttaskór
kosta tugi þúsunda og endast árið en
góður gítar getur enst alla ævi.“
Andrés bendir á að hljóðfæri í
Tónastöðinni séu almennt á góðu
verði miðað við löndin í kring.
„Kennarar hafa m.a. komið frá Noregi
og Skotlandi til að kaupa nótnabæk-
ur og segjast hvergi komast í betri
nótnaverslanir í sínum heimalöndum.
Einnig kaupa ferðamenn töluvert af
hljóðfærum, þá sérstaklega dýrari
hljóðfæri.“
Aldrei og seint eða of snemmt að
byrja að læra
Andrés bendir á það sé mikilvægt
að offjárfesta ekki þegar tón-
listamenn taka fyrstu skrefin, en
jafnframt að gæðin verði að vera
nógu mikil til að þeir verði ekki fyrir
vonbrigðum. „Við leggjum áherslu á
að þjónusta alla, börn, byrjendur og
lengra komna á öllum aldri. Hér er til
dæmis gott úrval af hljóðfærum sem
eru sérsniðin fyrir börn þ.e. eru í rétt-
um hlutföllum við stærð barnanna.
Að sjálfsögðu ráðleggjum við foreldr-
um hvað passar hverju barni hvað
varðar gæði og stærð,“ segir Andrés.
Tónastöðin er einnig með gott
úrval af hljóðfærum fyrir örvhenta.
„Viðskiptavinir Tónastöðvarinnar eru
á öllum aldri, jafnt ungir sem aldnir.
Þetta fólk er mjög mislangt komið í
tónlistinni og okkur finnst sérstaklega
gaman að fá eldra fólk hingað, sem
hefur kannski aldrei snert hljóð-
færi, og er að stíga sín fyrstu skref í
tónlistinni,“ segir Andrés og bendir á
að það sé aldrei of seint að byrja að
læra.
Gífurlegt úrval og góð þjónusta
„Við erum stolt af því að eiga mesta
úrval af nótnabókum á landinu. Hér
fást margar þúsundir titla og ættu
flestir geta fundið nótur að uppá-
haldslögunum sínum. Hér fást líka all-
ar tegundir hljóðfæra. Við erum með
trommur, píanó, gítara, rafmagnsgít-
ara, upptökutæki, magnara og svo
margt fleira, úrvalið hefur aldrei verið
meira.“
Hvað á svo að gefa í jólagjöf?
Fyrir þá sem eru farnir að hugsa til
hátíðanna þá eru gjafabréf í Tóna-
stöðinni ávallt vinsæl enda svo margt
til þar sem gleður tónlistarmenn og
tónlistaráhugafólk. Gjafabréfin er
hægt að fá með upphæð að eigin
vali. Einnig er auðvelt að skipta út
vörum ef það heppilegasta hefur ekki
verið valið.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.tonastodin.is og á Facebook-
-síðunni Tónastöðin
Skipholti 50d, Reykjavík,
Sími: 552-1185
Netfang: tonastodin@tonastodin.
is n
TÓNASTÖÐIN SKIPHOLTI:
Rótgróin en síung