Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 42
Góð kaup 9. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Besta leiðin til þess að koma sér burt frá jólastressinu er klárlega að skella sér á skíði,
renna burt frá öllu amstri og sveigja
kringum áhyggjurnar. Síðustu ár hefur
skíðafærið ekki endilega verið upp á
marga fiska á höfuðborgarsvæðinu
en það er engin ástæða til þess að
örvænta. Hlíðarfjall á Akureyri mætti
segja að sé eins og Tenerife skíða-
mannsins. Þar er afburðagóð aðstaða
fyrir skíðafólk, hvort heldur þá sem
stunda venjuleg skíði, gönguskíði eða
snjóbretti. „Við stefnum á að opna um
mánaðamótin nóvember–desember
og ég mæli heilshugar með því að fólk
skelli sér á skíði á milli jóla og nýárs og
skilji endilega jólastressið eftir heima.
Hægt er að fá gistingu á fjölmörgum
hótelum eða gistihúsum hér í bænum
og svo eru Akureyringar margrómaðir
fyrir afbragðs matargerð,“ segir Guð-
mundur Karl Jónsson, forstöðumaður
Skíðasvæðisins Hlíðarfjall.
Allir skíða
Í Hlíðarfjalli eru fjölmargar skíðalyftur
og brekkur sem henta bæði byrj-
endum sem lengra komnum. Einnig
eru margar gönguskíðabrautir fyrir
gönguskíðafólk. Hlíðarfjall býður að
auki upp á skíðaleigu með góðu úrvali
hefðbundinna skíða, gönguskíða og
bretta og margt fleira. Svo starfræk-
ir skíðasvæðið skíðaskóla þar sem
ungum jafnt sem öldnum er kennt á
skíði eða bretti á öruggan hátt. „Við
bjóðum sérstaklega velkomna í skíða-
skólann skíðaiðkendur á aldrinum
5–12 ára,“ segir Guðmundur.
Engar biðraðir
„Hægt er að kaupa vetrarkortin á vef-
síðunni okkar hlidarfjall.is og er hægt
að kaupa annars vegar kort sem duga
allan veturinn fram til 28. apríl eða
borga fyrir hvert skipti inn á Sidata
kortin okkar. Við gerðum fólki kleyft að
kaupa miða á netinu sem hefur nær
útrýmt biðröðum í miðasölu og í lyft-
urnar,“ segir Guðmundur.
Sími: 462-2280
http://www.hlidarfjall.is/is
https://hlidarfjall.skiperformance.
com/shop/is/store n
SKÍÐAÐU JÓLASTRESSIÐ Í KAF:
Hlíðarfjall Akureyri