Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 72
9. nóvember 2018
43. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
… eða gáfaður
yfirhöfuð!
522 4600
www.krokur.net
Krókur hf. er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta
í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
• 24 stunda þjónustu allt árið um kring
• björgunarþjónustu og aðstoð ef bílar bila eða flytja þarf þá á verkstæði
Taktu Krók á leiðarenda
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
á þinni leið
Lítt þekkt
ættartengsl
Formaðurinn og
fjölmiðlakonan
T
alsvert hefur mætt á
Jónasi Garðarssyni, for-
manni Sjómannafélags
Íslands, síðastliðnar vik-
ur. Til að byrja með vogaði einn
meðlimur félagsins, Heiðveig
María Einarsdóttir, að gagn-
rýna félagið og gefa í skyn að
hún ætlaði að sækjast eftir for-
mannssætinu. Jónas og félagar
hans brugðust við með því að
reka Heiðveigu úr félaginu en
ákvörðunin hefur fallið í grýtt-
an jarðveg víða í samfélaginu
auk þess sem efasemdir eru
um lögmæti aðgerðarinnar.
Jónas er faðir fjölmiðlakon-
unnar Mörtu Maríu, sem er í
forsvari fyrir vefinn Smartland
á Morgunblaðinu. Óska áhuga-
menn um óbreytt ástand hjá
Sjómannasambandinu eflaust
þess að Jónas væri smart eins
og dóttir hans.
Ásmundur
ekki týnda
rjúpnaskyttan
Þ
að eru nokkrir búnir að
hringja í mig. Ég veit
ekki hvernig þetta fór á
kreik,“ segir Ásmundur
Einar Daðason félagsmálaráð-
herra og hlær þegar DV nær
af honum tali. Á kaffistofum
hefur verið pískrað um að Ás-
mundur hafi verið rjúpnaskytt-
an sem var bjargað um síðustu
helgi í Dalasýslu.
Skyttan var einungis týnd í
um klukkutíma í Laxárdal en
björgunarsveitir voru kallaðar
út og fundu hana.
„Ég hef ekki farið í rjúpu
síðan ég var unglingur,“ segir
Ásmundur forviða. „Ég var á
körfuboltamóti með dætrum
mínum um helgina. En gjarn-
an myndi ég vilja að einhver
myndi færa mér rjúpur, því mér
finnst þær góð-
ar á bragðið.
Ég hef ekki tí-
mann til að
ganga á fjöll
og veiða rjúp-
ur.“
Beiðnabók stolið frá Reykjavíkur-
borg og 4 milljónum eytt
Ó
prúttnir einstak-
lingar stálu beiðna-
bók frá Reykjavíkur-
borg og tóku út vörur
fyrir rúmar fjórar milljónir í
reikning. Svo virðist sem um
sé að ræða þaulskipulagð-
an þjófnað þar sem þjófarn-
ir, tvær konur og tveir karl-
menn vissu augljóslega
hvernig beiðnakerfi borgar-
innar virkar.
Farið var tvisvar í versl-
un Nova og keyptir farsímar
fyrir um eina milljón króna,
raftæki fyrir um hálfa millj-
ón króna í verslun Elko og
svo loks var keyptur glænýr
plastbátur og kerra með fyrir
um 2,2 milljónir króna. Átti
fyrsta atvikið sér stað þann
27. júlí og það síðasta 12.
október síðastliðinn.
Þegar plastbáturinn var
keyptur var allt fagmannlega
gert af þjófunum og grunaði
starfsfólk fyrirtækisins ekki
neitt um að hér væri ekki
starfsmaður Reykjavíkur-
borgar á ferð. Beðið var um
tilboð ásamt því að þess var
óskað að gerðar yrðu sér-
stakar breytingar á bátnum,
meðal annars að setja stærri
eldsneytistank í hann.
Í samtali við DV sagði
Bjarni Brynjólfsson, upp-
lýsingastjóri Reykjavíkur-
borgar, að málið væri kom-
ið inn á borð hjá lögreglunni
og væri þar í rannsókn. Að-
spurður af hverju borgin
hefði ekki sent frá sér yfirlýs-
ingu um leið og tilkynnt var
um málið til lögreglu, svo
birgjar gætu vitað af mögu-
legu svindli sem væri í gangi
með beiðnir frá Reykjavíkur-
borg svaraði hann: „Það er
góð spurning, það er flott að
geta verið gáfaður eftir á.“