Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 6
6 9. nóvember 2018FRÉTTIR F yrir tveimur árum ákvað Ill- ugi Gunnarsson, þáverandi menntamálaráðherra, að nám í lögreglufræði myndi fara fram í Háskólanum á Akureyri (HA). Þetta var gert þrátt fyrir að það væri dýrara en að láta Háskóla Íslands (HÍ) annast námið. Auk þess var HÍ metinn besti skólinn faglega séð til að annast kennsl- una en sérstök matsnefnd fór yfir umsóknir háskólanna um að fá að annast námið. Lögregluskóli rík- isins var lagður niður á svipuð- um tíma og námið við HA hófst. Námið við HA veitir þeim sem útskrifast starfsréttindi sem lög- reglumenn og geta þeir þá sótt um störf sem lögreglumenn. En nám- ið virðist ekki búa nýju lögreglu- mennina vel undir starfið og segja sumir reyndir lögreglumenn að þeir séu „alveg grænir bak við eyr- un“ þegar þeir koma til starfa. Gætu allt eins verið einir á vakt Lögreglumenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem DV hef- ur rætt við segja að mikið skorti á að sú menntun sem boðið er upp á við HA uppfylli þær kröfur sem gera verði til starfandi lögreglumanna. Mikið vanti upp á starfsþjálfun og auk þess virðist nemarnir ekki fá nema sáralitla kennslu í LÖKE, tölvukerfi sem lögreglan notar gríðarlega mikið. Fyrstu nemarn- ir frá HA voru ráðnir til starfa á þessu ári og segja sumir reyndir lögreglumenn að þeir geti alveg eins verið einir að störfum eins og að hafa nýútskrifaða nema frá HA með sér. Kunnátta þeirra sé nær engin hvað varðar framkvæmd löggæslustarfa, skýrslugerð eða notkun LÖKE. Vísir skýrði frá því í júní að óá- nægju gætti meðal nemanna sjálfra með námið og staðsetn- ingu þess. Haft var eftir nokkrum nemendum að þeim þætti nám- ið of þverfaglegt, uppbygging þess sé ekki nógu góð, fræðilegt vægi sé of mikið en verklegt nám fái lítið rými. Einnig nefndu nemarnir skort á kennslu í LÖKE til sögunn- ar. Einn sagði að í námið vantaði meiri reynslu og þekkingu frá sér- fræðingum innan lögreglunnar til að hafa áhrif á og móta námið. Nokkrir lögreglumenn hafa verið ráðnir til HA til að koma að náminu á einn eða annan hátt en reyndir lögreglumenn segja að það séu lögreglumenn með mjög litla reynslu og þeir hafi því ekki af miklu að miðla til nemanna. Þá undrast reyndir lögreglu- menn það námsefni sem boð- ið er upp á í HA. Þeir nefna þar til dæmis til sögunnar námskeið sem heita Inngangur að félagsvísind- um, Félagsvísindatorg, Kenningar í félagsvísindum, Félagsgerð Ís- lands og Saga mannsandans. Lög- reglumennirnir spyrja sig hvernig kennsla í þessum greinum eigi að undirbúa fólk undir að sinna lög- gæslustörfum. Mennta- og starfsþróunarsetur sett á laggirnar Þegar Lögregluskólinn var lagður niður var stofnað Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar en það kemur lítillega að kennslu lögreglunemanna, annast þá litlu verklegu þjálfun sem þeir fá. Ef að markmiðið var að ná fram sparnaði með því að leggja Lög- regluskólann niður þá hlýtur það að hafa mistekist því mun fleiri starfa við hið nýja Mennta- og starfsþróunarsetur en störfuðu við Lögregluskólann. Það er þó rétt að hafa í huga að í Mennta- og starfsþróunarsetrinu fá starfandi lögreglumenn ýmsa fræðslu og kennslu en Lögreglu- skólinn sá um símenntun lög- reglumanna áður. Vildu meiri tíma og aðrar áherslur Í samtali við DV segir Snorri Magnússon, formaður Landssam- bands lögreglumanna, að félagið hafi heyrt af þessari óánægju. Hann segir: „Þetta er gjörbreytt landslag í kennslu frá því sem var. Áður kenndi lögreglan þetta sjálf í Lög- regluskólanum og gat kennt allt viðkomandi starfinu. Það er ekki hægt í dag. Til dæmis kerfið okkar, LÖKE, sem verður aldrei opnað fyrir aðila utan lögreglu. Það verð- ur aldrei hægt að kenna á þetta kerfi í háskóla, hver svo sem hann er. Það þyrfti einnig að endur- skoða starfsnámið og lengja frá því sem var.“ Getur verið að áherslurnar í náminu sjálfu séu rangar? „Það hefur legið fyrir frá því að farið var í þessa vegferð að það yrði breyting á náminu. Kennsla á háskólastigi er allt önnur en kennsla á framhaldsskólastigi, eins og var í Lögregluskólanum. Ég get ekkert mat lagt á það hvort að þessir tilteknu áfangar gagnist lögreglumönnum eða ekki enda ekki séð það nám sjálfur. En það er mín bjargfasta trú og skoðun að allt nám sé af hinu góða.“ Snorri segir að þegar Lands- samband lögreglumanna beitti sér fyrir þessu hafi þeir séð fyrir sér annað fyrirkomulag heldur en varð ofan á. „Við vildum hafa Lögregluskól- ann, í þeirri mynd sem hann var, áfram við lýði. En hann yrði þá felldur á einhvern hátt undir há- skólasamfélagið. Það var ekki sú leið sem var farin. Eflaust má bæta hluti þarna án þess að ég geti bent á einn hlut umfram annan.“ Einnig nefnir Snorri að tímara- mminn hafi verið ákaflega stuttur og Landssamband lögreglu- manna hafi bent á það. „Við töldum rétt að keyra Lög- regluskól- ann áfram að minnsta kosti einu ári lengur en gert var, ef ekki tveimur, á meðan unnið væri að undirbúningi námsins á háskóla- stigi. En það var ekki tekið tillit til þess af stjórnvöldum.“ Ánægður með þróun námsins Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, segir í sam- tali við DV að námið sé í mótun. „Við höfum verið að þróa námið frá því að það hófst. Í þeirri þróun höfum við verið í virku samstarfi við lögregluháskóla í Noregi og Finnlandi, ásamt virku samstarfi við einstök embætti í Bretlandi. Námsefnið hefur því verið að þró- ast miðað við það sem gerist al- þjóðlega enda er starf lögreglu- mannsins í dag mun flóknara en það var áður og þurfa starfandi lögreglumenn á nýrri þekkingu að halda. Ásamt því að sjálfsögðu að kunna vel tök á hefðbundnari lögreglustörfum. Hjá okkur á Ís- landi er þessu þannig skipt að Há- skólinn á Akureyri og Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar vinna í sameiningu að því að tvinna þessa tvo þætti saman.“ Að sögn Eyjólfs er námið síður en svo misheppnað. „Við erum mjög ánægð með hvernig námið hefur þróast og þó svo að við höfum orðið vör við ýmislegt sem þyrfti að að- laga eða breyta þá er það ekki umfram það sem vænta mátti í nýju námi. Þannig hefur til dæm- is námskrá- in tekið breytingum frá fyrsta ári. Sum af þess- um nám- skeiðum sem um er rætt eru ekki lengur þar inni en önnur komin inn.“ n Lögreglumenn furða sig á lögreglunámi við HA n Saga mannsandans og fleiri áfangar vekja furðu n Rektor segir námið í þróun„Nýútskrif- aðir lög- reglumenn koma alveg grænir til starfa Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Vandaðar innréttingar Hjá Parka færðu flottar innréttingar í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Snorri Magnús- son „Við vildum hafa Lögregluskól- ann, í þeirri mynd sem hann var, áfram við lýði.“ Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.