Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 35
Vélar, verkstæði og verktakar 9. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
INGVASYNIR:
Flytja hvað sem er hvert á
land sem er
Fyrir rúmlega ári fóru þeir bræð-ur Þórir Már og Ármann Ingi Ingvasynir í rekstur á flutninga-
fyrirtækinu Ingvasynir. „Við byrjuðum
í raun bara á tveimur jafnsterkum,
en svo vatt þetta fljótt upp á sig.
Næst fjárfestum við í vörubíl og
svo „pickup“. Við höfum aldrei farið
fram úr okkur enda er ekki snefill af
útrásarvíkingablóði í æðum okkar. En
á rúmu ári höfum við stækkað ótrú-
lega mikið vegna þess að menn hafa
hent reiður á hvað við erum traustir
og snöggir að leysa verkefni,“ segir
Þórir.
Flytja allt á milli himins og jarðar
Ingvasynir eru þekktir fyrir fagleg og
vönduð vinnubrögð og gefa fast verð
í alla flutninga. Þeir taka að sér hvers
kyns flutninga, hvort heldur er á bílum
eða öðrum hlutum, hvert á land sem
er. Þeir bræður búa enn fremur yfir
margra ára reynslu í akstri úti á landi.
„Okkar aðalstofnæð eða grunn-
rekstur er í bílaflutningum, en við
getum í raun flutt næstum hvað sem
er. Við höfum yfir að ráða vörubíl með
úrvali af vögnum og tvo „pickupa“
með vagna. Þannig að við höfum líka
verið í malarflutningum, flutningi á
traktorum og mörgu fleiru,“ segir
Þórir.
Lítið en lipurt flutningafyrirtæki
Ingvasynir er ekki stórt fyrirtæki, en
samt sem áður er ekkert verkefni
of stórt fyrir þá. „Okkar mottó er að
leysa öll verkefni eins hratt, lipurlega
og vel og unnt er,“ segir Þórir.
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðunni Ingvasynir Ehf Bíla-
flutninga og Verktakaþjónusta
Sími: 866-7739 n