Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Síða 35
Vélar, verkstæði og verktakar 9. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ INGVASYNIR: Flytja hvað sem er hvert á land sem er Fyrir rúmlega ári fóru þeir bræð-ur Þórir Már og Ármann Ingi Ingvasynir í rekstur á flutninga- fyrirtækinu Ingvasynir. „Við byrjuðum í raun bara á tveimur jafnsterkum, en svo vatt þetta fljótt upp á sig. Næst fjárfestum við í vörubíl og svo „pickup“. Við höfum aldrei farið fram úr okkur enda er ekki snefill af útrásarvíkingablóði í æðum okkar. En á rúmu ári höfum við stækkað ótrú- lega mikið vegna þess að menn hafa hent reiður á hvað við erum traustir og snöggir að leysa verkefni,“ segir Þórir. Flytja allt á milli himins og jarðar Ingvasynir eru þekktir fyrir fagleg og vönduð vinnubrögð og gefa fast verð í alla flutninga. Þeir taka að sér hvers kyns flutninga, hvort heldur er á bílum eða öðrum hlutum, hvert á land sem er. Þeir bræður búa enn fremur yfir margra ára reynslu í akstri úti á landi. „Okkar aðalstofnæð eða grunn- rekstur er í bílaflutningum, en við getum í raun flutt næstum hvað sem er. Við höfum yfir að ráða vörubíl með úrvali af vögnum og tvo „pickupa“ með vagna. Þannig að við höfum líka verið í malarflutningum, flutningi á traktorum og mörgu fleiru,“ segir Þórir. Lítið en lipurt flutningafyrirtæki Ingvasynir er ekki stórt fyrirtæki, en samt sem áður er ekkert verkefni of stórt fyrir þá. „Okkar mottó er að leysa öll verkefni eins hratt, lipurlega og vel og unnt er,“ segir Þórir. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðunni Ingvasynir Ehf Bíla- flutninga og Verktakaþjónusta Sími: 866-7739 n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.