Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 39
KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is Góð kaup ICEPHONE: Góð kaup og umhverfisvæn símalausn í uppgerðum símum Fyrirtækið Icephone býður upp á hraða þjónustu á símaviðgerðum, síma- fylgihluti og eldri síma, sem hafa verið uppgerðir. Einnig býður fyrirtækið upp á tölvu- og iPadviðgerðir. Icephone hefur verið á bíó- gangi Kringlunnar við Te&Kaffi síðan í ágúst 2016 og nú í lok júlí var önnur verslun Icepho- ne opnuð í miðbænum, að Týsgötu 1, á horni Týsgötu og Skólavörðustígs. „Okkur fannst vanta 90 mínútna viðgerðir á iPhone-símum í miðbæ- inn,“ segir Halldór, fram- kvæmdastjóri Icephone. Góð kaup og umhverfisvæn símalausn í uppgerðum sím- um Hjá Icephone fást símar sem hafa verið uppgerðir. „Við erum með tvær lausnir, annars vegar erum við að bjóða síma frá erlendu fyrirtæki sem gerir upp síma og selur í pakkning- um með öllum fylgihlutum. Þetta er um það bil 20–30% ódýrara en að kaupa nýjan sambærilegan síma,“ segir Halldór. Icephone gerir einnig upp síma sem hafa verið keyptir af viðskiptavinum. „Við kaupum yngri síma sem eru bilaðir eða með brotnum skjá og förum yfir þá, skiptum oftast um skjá og/eða batterí og bjóðum nýjum eiganda sex mánaða ábyrgð á símanum. Þannig er séð um okkar viðskiptavini. Við erum mest að kaupa iPho- ne iPhone 6 og yngri síma,“ segir Halldór, og bætir við að Icephone kaupi einnig yngri Samsung-síma. „Með þessu getum við lengt líftíma sím- anna og þá þarf ekki að kaupa allt nýtt.“ Slagorðið er 90 mínútna viðgerðir „Það er algengt að símar lendi í vatnsskaða eða höggskemmd- um, hvort tveggja er yfirleitt utan ábyrgðar framleiðanda. Við fáum talsvert af slíkum tilfellum til okkar, auk þess sem við sjáum mikið af símum sem eru með slöpp batterí. Það getur tekið langan tíma fyrir fólk að fá símana sína til baka úr viðgerð. Við fórum af stað með slagorðið 90 mín- útna viðgerðir, þannig að fólk getur sinnt sínum erindum í Kringlunni eða í miðbænum á meðan við gerum við sím- ann. Vinir og vinna er er allt í símanum hjá fólki í dag, auk samfélagsmiðla þannig að viðskiptavinurinn má alls ekki við því að missa tækið í marga, marga daga. Okkar markmið er að vera sneggri og reyna að klára viðgerð samdægurs eða daginn eftir,“ segir Halldór. „Ef viðskiptavinur velur 90 mínútna viðgerð, þá þarf að panta slíka viðgerð. En ef við fáum til dæmis iPhone, sem þarf skjáviðgerð, inn fyrri part dags, þá klárum við viðgerð á tækinu sama dag ef ekk- ert óvænt kemur upp á. Við erum mest að gera við iPhone og Samsung, enda eru það algengustu símarnir á mark- aðinum.“ Ekkert skoðunargjald hjá Icephone Ekkert skoðunargjald er hjá Icephone. „Þannig að við tök- um við símanum og greinum hann fyrir þig. Viðskipta- vinir eru eðlilega oft stressaðir yfir hvað hlutirnir kosta, við tökum símann inn, greinum hvað er að, höfum síðan samband við viðskiptavin- inn og segjum honum hvað sé að tækinu og hvað við- gerð muni kosta og viðskipta- vinurinn getur þá valið hvort hann vill láta gera við símann eða ekki.“ Íhlutir eru dýrir og skjáir sem við notum eru dýrir vegna gæða. „Skjár og skjár er ekki það sama þótt fólk haldi oft annað, Icephone notar orig- inal Samsung-íhluti, það er meira framboð af íhlutum frá þriðja aðila í iPhone og gæði eru mjög mismunandi sem skýrir mismunandi verð. Við erum hins vegar komnir með ágætis reynslu af okkar birgj- um þannig að við treystum okkur til að bjóða sex mánaða ábyrgð á þeim íhlutum sem við notum,“ segir Halldór. Fylgihlutir fyrir síma Icephone selur einnig fylgihluti fyrir síma. „Við seljum einnig símafylgihluti, hulstur, skjáfilm- ur, hleðslutæki, fyrirframgreidd símakort, vatnshelda poka og fleira. Auk þess erum við með Popsocket, sem er mjög vinsælt í dag, en það er sett aftan á símann til að halda betur á honum eða tylla honum á borð.“ Heimsendingarþjónusta „Við bjóðum núna upp á heimsendingarþjónustu sem er þægilegt núna þegar fer að vetra fyrir alvöru,“ segir Halldóra. Hægt að panta tíma á Icephone.is. Icephone er staðsett í Kringlunni á bíóganginum og á Týsgötu 1, síminn er 546-5444. Opnunartími er í takt við verslanir Kringlunnar og á Týsgötu frá kl. 10–18 alla virka daga. Heimasíða: icephone.is og Facebooksíða: IcePho- neVidgerdir. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.