Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Blaðsíða 64
64 9. nóvember 2018 L ífið lék ekki við ensku kon- una Jane Turner. Jane var 64 ára, bjó í Birmingham og þótti sopinn góður. Óhófleg drykkja hennar leiddi til skilnaðar hennar og manns hennar á jóla- dagskvöldi 1939 og þegar hér er komið sögu, í febrúar 1941, hafði Jane ekki átt fast heimili síðan. Um skeið fékk hún inni hjá giftri dóttur sinni, en þegar það gekk ekki leng- ur hafði hún þegið svefnstað hvar sem hann nú bauðst og dró fram lífið sem götusali. Fær húsaskjól og missir Það var sem sagt í febrúar, 1941, sem John nokkur Franklin sá aum- ur á henni. John hafði þekkt Jane í nokkur ár og bauð henni húsaskjól gegn því að hún yrði ráðskona á heimili hans við Palmer-stræti í Birmingham. Jane gat þó ekki haldið sig frá flöskunni og skellti skollaeyrum við varnaðarorðum Johns. Klukkan 11.30 að kvöldi 26. mars kom Jane heim vel við skál. John neitaði að hleypa henni inn og sagði henni að finna næturstað í loftvarnabyrgi. Bjór á Bell-kránni Næsta morgun, fyrir klukkan hálf sjö, var Jane mætt heim til Johns. Hann tók henni ekki fagnandi, vægast sagt, og lét hana fá pjönk- ur sínar og sagði henni að láta sig hverfa. Segir nú ekki af ferðum Jane fyrr en klukkan níu að kvöldi þessa dags. Þá arkaði hún inn um dyrn- ar á Bell-kránni við Bristol-stræti í fylgd fastagests. Þar var um að ræða Eli Richards, 45 ára verk- smiðjuverkamann, sem var haltur og sást sjaldan, ef nokkurn tím- ann, án göngustafs síns. Kráin yfirgefin Þau voru afgreidd með drykki, en um klukkutíma síðar var Eli kominn í hávaðarifrildi við her- mann og var í kjölfarið gert að yf- irgefa krána. Eli fékk þá öðrum kráargesti, James Gaffney, pen- inga svo sá gæti keypt handa hon- um tvær ölflöskur. James varð við því og flöskurnar tvær enduðu í skjóðu Jane. Örfáum mínútum síðar yfirgaf maður að nafni Herbert Pedley krána. Svo vildi til að hann var verkstjóri í verksmiðju þeirri sem Eli vann í. Herbert rak augun í Eli og Jane þar sem þau biðu eft- ir sporvagni á horni Bromsgrove- strætis. Öll þrjú stigu upp í sporvagn- inn og Eli upplýsti Herbert um að hann hygðist fylgja Jane heim til systur hennar í Cotteridge. Hitta heimavarnarliðsmenn Jane og Eli stigu af vagninum á Pebble Mill-vegi og vagnstjór- inn sá þegar þau stigu upp í ann- an vagn, sem þau síðar yfirgáfu á Kitchener-vegi. Víkur nú sögunni að félög- um úr heimavarnarliðinu, Robert Farman og Frank Walsingham. Þeir voru staddir við Cadbury’s- -súkkulaðiverksmiðjuna. Um hálf tólf leytið, er þeir voru á eftirlits- göngu á Bournville-stíg heyrðu þeir öskur og sáu Jane og Eli þar sem þau stóðu saman á gang- stéttinni. Fylgd til Franklin-vegar „Hvert er vandamálið hér,“ spurði Walsingham. „Við erum villt,“ svaraði Eli og bætti við að þau hefðu stigið af vagninum á röng- um stað. Farman spurði þá hvert leiðinni væri haldið og Eli svaraði: „Francis -veg.“ Ef þeir gætu vísað þeim á Franklin-veg þá mundi Eli rata þaðan. Það var auðsótt mál, en Jane af- tók að fara nema tvímenningarn- ir kæmu með. „Hann er búinn að draga mig hingað frá Small Heath og það hefur tekið hann óratíma,“ sagði hún. Farman og Walsing- ham slógust því í för með skötu- hjúunum. Farman spurði hví þau væru að þvælast á þessum slóðum og Eli svaraði: „Ég er á leiðinni með hana til systur minnar, svo hún geti fengið sér lúr.“ Walsingham sagði þeim að drífa sig heim „og ekkert rifrildi.“ Á Franklin-vegi skildi leiðir. 15. janúar, 1999, var dauðadómur yfir bandarísku konunni Judith Ann Neelley mildaður og honum breytt í lífstíðar-fangelsi. Árið 1982 hafði Judith, í félagi við eiginmann sinn, Alvin Howard, rænt 13 ára stúlku, Lisu Ann Millican, og 22 ára konu, Janice Kay Chatman. Hjónin pyntuðu fórnarlömb sín og myrtu síðan. Alvin samdi við ákæruvaldið og fékk lífstíðardóm fyrir vikið. Hann afplánaði dóm- inn svikalaust því hann dó í prísund árið 2005. Judith er enn á bak við lás og slá í Julia Tutweiler-kvennafangelsinu í Alabama.SAKAMÁL SAKAMÁL SEGÐ U NE I VIÐ P LAST I HÁSKAMAÐURINN HALTRANDI n Jane Turner var auðnuleysingi n Áfengið reyndist henni fjötur um fót n Mætti örlögum sínum eftir drykkju á krá „Þú notar staf, ekki rétt? Hvar er stafurinn? Viltu ekki ná í hann? Loka- hnykk- urinn Um örlög morðingj- ans var upplýst í blöðunum. „Það sást til þín þar sem þú kneyfðir öl í félagsskap þessarar konu á Bell-kránni við Bristol-stræti á föstudagskvöldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.