Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2018, Side 40
Góð kaup 9. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ Frá því hjónakornin Andrés og Hrönn stofnuðu fjölskyldufyr-irtækið Tónastöðina árið 1987 hafa þau aðstoðað tónlistarmenn, jafnt unga sem aldna, við val á hljóð- færum og nótum, fyrst við Óðinstorg en seinustu 15 árin að Skipholti 50d þar sem verslunin er til húsa. „Þetta er ein elsta hljóðfæraverslun lands- ins og stundum grínast ég með að við eigum líklega elstu kennitöluna í bransanum,“ segir Andrés. Þekking og reynsla Á þeim árum sem Tónastöðin hefur verið starfrækt hefur skapast mikil reynsla og þekking hjá í fyrirtækinu. „Allir sem hér starfa eru með yfir- gripsmikla þekkingu og hafa annað- hvort kennt lengi eða starfað lengi í þessum bransa. Við aðstoðum alla sem hingað koma, jafnt áhugamenn sem atvinnumenn, í öllu sem viðvíkur tónlistariðkun,“ segir Andrés. Það besta verður ávallt ódýrast Í dag kostar furðulítinn pening að koma sér upp góðum búnaði til þess að að spila og taka upp tónlist og ættu flestir sem hafa áhuga á að geta gert það. „Við höfum líka alltaf lagt ríka áherslu á gæði ekki síður en gott verð. Kjörorð okkar eru enda þau að það besta verður ávallt ódýrast, því bestu kaupin eru í hlutum sem endast og reynast vel í langan tíma,“ segir Andrés og bendir á að hljóð- færi og upptökubúnaður séu gjafir sem endist og séu því margfaldlega peninganna virði: „Góðir íþróttaskór kosta tugi þúsunda og endast árið en góður gítar getur enst alla ævi.“ Andrés bendir á að hljóðfæri í Tónastöðinni séu almennt á góðu verði miðað við löndin í kring. „Kennarar hafa m.a. komið frá Noregi og Skotlandi til að kaupa nótnabæk- ur og segjast hvergi komast í betri nótnaverslanir í sínum heimalöndum. Einnig kaupa ferðamenn töluvert af hljóðfærum, þá sérstaklega dýrari hljóðfæri.“ Aldrei og seint eða of snemmt að byrja að læra Andrés bendir á það sé mikilvægt að offjárfesta ekki þegar tón- listamenn taka fyrstu skrefin, en jafnframt að gæðin verði að vera nógu mikil til að þeir verði ekki fyrir vonbrigðum. „Við leggjum áherslu á að þjónusta alla, börn, byrjendur og lengra komna á öllum aldri. Hér er til dæmis gott úrval af hljóðfærum sem eru sérsniðin fyrir börn þ.e. eru í rétt- um hlutföllum við stærð barnanna. Að sjálfsögðu ráðleggjum við foreldr- um hvað passar hverju barni hvað varðar gæði og stærð,“ segir Andrés. Tónastöðin er einnig með gott úrval af hljóðfærum fyrir örvhenta. „Viðskiptavinir Tónastöðvarinnar eru á öllum aldri, jafnt ungir sem aldnir. Þetta fólk er mjög mislangt komið í tónlistinni og okkur finnst sérstaklega gaman að fá eldra fólk hingað, sem hefur kannski aldrei snert hljóð- færi, og er að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni,“ segir Andrés og bendir á að það sé aldrei of seint að byrja að læra. Gífurlegt úrval og góð þjónusta „Við erum stolt af því að eiga mesta úrval af nótnabókum á landinu. Hér fást margar þúsundir titla og ættu flestir geta fundið nótur að uppá- haldslögunum sínum. Hér fást líka all- ar tegundir hljóðfæra. Við erum með trommur, píanó, gítara, rafmagnsgít- ara, upptökutæki, magnara og svo margt fleira, úrvalið hefur aldrei verið meira.“ Hvað á svo að gefa í jólagjöf? Fyrir þá sem eru farnir að hugsa til hátíðanna þá eru gjafabréf í Tóna- stöðinni ávallt vinsæl enda svo margt til þar sem gleður tónlistarmenn og tónlistaráhugafólk. Gjafabréfin er hægt að fá með upphæð að eigin vali. Einnig er auðvelt að skipta út vörum ef það heppilegasta hefur ekki verið valið. Nánari upplýsingar má nálgast á www.tonastodin.is og á Facebook- -síðunni Tónastöðin Skipholti 50d, Reykjavík, Sími: 552-1185 Netfang: tonastodin@tonastodin. is n TÓNASTÖÐIN SKIPHOLTI: Rótgróin en síung

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.