Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 2
2 15. júní 2018FRÉTTIR Á þessum degi, 15. júní 1219 – Danir fara með sigur af hólmi í bardaganum um Lyndanisse (nú Tallinn í Eistlandi) og stofna þar hertogadæmi. 1648 – Margaret Jones er hengd fyrir galdra í Boston. Um var að ræða fyrstu aftökuna af þeim toga í ensku nýlendunni við Massachusetts-flóa. 1896 – Mannskæðasta flóðbylgja í sögu Japans ríður yfir Sanriku-ströndina í Norður-Japan. Flóðbylgjan var af afleiðing jarðskjálfta sem var 8,5 að styrkleika og jafnaði við jörðu 9.000 heimili og varð 22.000 manns að bana. 1970 – Réttarhöld hefjast yfir Charles Manson, vegna morða sem jafnan eru kennd við „Manson-fjöl- skylduna“. Fórnar- lömbin voru fimm, þar á meðal Sharon Tate, eiginkona Romans Polanski leikstjóra. 1991 – Annað stærsta eldgos 20. aldar hefst í Pinatubo-fjalli á Filippseyjum. Eldgosið kostaði 800 manns lífið. Síðustu orðin „Meiri birtu.“ – Johann Wolfgang von Goethe (1749–1832) bað um að meiri birtu yrði hleypt inn um gluggana 30 mín- útum áður en hann gaf upp öndina. M ér líður mjög vel með að standa með sjálfri mér og svara fyrir mig. Ég gerði ekkert rangt,“ segir Kol- brún Dögg Arnardóttir í samtali við DV. Kolbrún hefur lagt fram kæru á hendur Ásgerði Jónu Flosa- dóttur, formanni Fjölskylduhjálp- ar Íslands. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku. Ástæðan er sú að Ásgerður Jóna nafngreindi Kolbrúnu sem skjólstæðing Fjölskylduhjálpar í út- varpsviðtali við Bylgjuna fyrir síð- ustu jól. „Þetta var hrein og klár hefndaraðgerð. Að vel athuguðu máli þá sá ég að ég yrði að leita rétt- ar míns fyrir sjálfa mig, börnin mín og ekki síður aðra skjólstæðinga Fjölskylduhjálpar sem eru í við- kvæmri stöðu,“ segir Kolbrún Dögg. Fékk útrunnar vörur í jólaúthlutun Forsaga málsins er sú að Kolbrún Dögg hafði leitað sér aðstoðar fyrir jólin hjá hjálparsamtökunum sem Ásgerður Jóna er í forsvari fyrir. Hún fékk poka með matvörum en varð fyrir miklum vonbrigðum þegar heim var komið. Mikið af því sem hún fékk var útrunnið og ekkert kjötmeti fylgdi með, aðeins fiskur og kjötbollur. Kolbrún birti færslu á lokuðum Facebook-hópi þar sem hún lýsti yfir vonbrigðum sínum með úthlutunina og í kjöl- farið ræddi hún nafnlaust við DV um málið. Í kjölfarið tók blaðamaður DV viðtal við Ásgerði Jónu sem harmaði að Kolbrún hefði feng- ið útrunnar vörur og lýsti því um leið yfir að Fjölskylduhjálp væri að reyna að sporna við matarsóun en þarna hefðu mistök átt sér stað. Ásgerður Jóna krafðist þess í viðtali við blaðamann að fá að nafngreina Kolbrúnu. Blaðamað- ur DV sagðist virða ósk viðmæl- anda síns um nafnleynd, enda væri málið sérstaklega viðkvæmt og neitaði Ásgerði um að fá að birta nafn Kolbrúnar, enda sner- ist frétt DV um að skjólstæðing- ur hennar hefði fengið útrunnar vörur og hefði myndir því til stað- festingar. Nafn og mynd Kolbrún- ar var því aukaatriði í því sam- hengi. Ásgerður Jóna fór síðan í viðtal í þáttinn Í bítið á Bylgjunni þar sem hún tók þá ákvörðun að greina frá nafni Kolbrúnar án hennar samþykkis. Kolbrún varð fyrir miklu áfalli þegar hún heyrði af afhjúpun Ás- gerðar Jónu. „Ég brotnaði gjör- samlega niður. Ég glími meðal annars við alvarlegar kvíðarask- anir og þessi gjörningur Ásgerð- ar Jónu var sem olía á þann eld,“ segir Kolbrún. Hún steyptist út í útbrotum á líkamanum í kjöl- farið og átti afar erfiðar stundir. Það sem hafi gert líf hennar bæri- legra hafi verið viðbrögð alls kon- ar fólks úr samfélaginu sem hafi rétt henni hjálparhönd. „Fólki var verulega misboðið og það rigndi yfir mig stuðningi í síma og í skila- boðum,“ segir Kolbrún. Hún segist sérstaklega vera þakklát með- limum Facebook-hópsins Góða systir sem hafi einfaldlega bjarg- að jólunum hennar og margra annarra. „Ég fékk ógrynni af jóla- mat að gjöf og fékk strax nóg fyrir mig. Þá byrjaði ég að tengja fólk sem vildi gefa við aðra sem voru hjálpar þurfi. Ég var því orðin eins konar fjölskylduhjálp í nokkra daga fyrir jólin,“ segir Kolbrún. Reyndu að nota fátæktina til að fá málinu vísað frá Þegar hátíðin var yfirstaðin þá hafi Kolbrún þó áttað sig á því að hún yrði að grípa til einhverra aðgerða. „Ég upplifði þessa hegðun hennar á þá leið að hún hefði farið í fýlu og viljað hefna sín. Í starfi sínu hefur hún völd yfir fólki sem er í mjög viðkvæmri stöðu og að mínu mati má hún ekki komast upp með þetta. Það er alveg nógu erfitt að fara í biðröð hjá Fjölskyldu- hjálp og upplifa sig sem þriðja flokks fólk þó að maður þurfi ekki að hafa áhyggjur af hefndarað- gerðum ef maður tjáir sig. Ég fór því og leitaði mér ráðgjafar hjá lögfræðingi og niðurstaðan varð sú að kæra var lögð fram,“ segir Kolbrún. Ef Kolbrún var einhvern tímann í vafa um hvort hún væri að feta rétt braut þá varð hún sannfærð eftir tilraunir Ásgerðar Jónu og lögfræðings hennar til þess að fá málinu vísað frá. „Þau fóru fram á að lögð yrði fram málskostnaðartrygging því að ég er með árangurslaust fjárnám á bakinu. Þarna var ætlun þeirra að nýta fátækt mína gegn mér og fá málið niðurfellt,“ segir Kolbrún. Hún náði þó að verjast atlögunni þegar í ljós kom að heimilis- tryggingar hennar mundu standa undir kostnaðinum ef dómurinn yrði henni í óhag. n n Skjólstæðingur Fjölskylduhjálpar nafngreindur n „Hrein og klár hefndaraðgerð“ Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is KÆRIR ÁSGERÐI JÓNU M Y N D H A N N A Kaldunnin þorsklifrarolía Íslensk framleiðsla 120/180 60 220 ml Dropi af náttúrunni „Fyrir mér er Dropi heilindi og lífsorka” „Ég upplifði þessa hegð- un hennar á þá leið að hún hefði farið í fýlu og viljað hefna sín

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.