Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Qupperneq 2
2 15. júní 2018FRÉTTIR
Á þessum degi,
15. júní
1219 – Danir
fara með
sigur af hólmi
í bardaganum
um Lyndanisse
(nú Tallinn í
Eistlandi) og
stofna þar
hertogadæmi.
1648 – Margaret Jones er hengd
fyrir galdra í Boston. Um var að ræða
fyrstu aftökuna af þeim toga í ensku
nýlendunni við Massachusetts-flóa.
1896 – Mannskæðasta flóðbylgja í
sögu Japans ríður yfir Sanriku-ströndina
í Norður-Japan. Flóðbylgjan var af
afleiðing jarðskjálfta sem var 8,5 að
styrkleika og jafnaði við jörðu 9.000
heimili og varð 22.000 manns að bana.
1970 – Réttarhöld hefjast yfir Charles
Manson, vegna morða
sem jafnan eru kennd
við „Manson-fjöl-
skylduna“. Fórnar-
lömbin voru fimm, þar
á meðal Sharon Tate,
eiginkona Romans
Polanski leikstjóra.
1991 – Annað stærsta eldgos 20. aldar
hefst í Pinatubo-fjalli á Filippseyjum.
Eldgosið kostaði 800 manns lífið.
Síðustu orðin
„Meiri birtu.“
– Johann Wolfgang von Goethe
(1749–1832) bað um að meiri birtu
yrði hleypt inn um gluggana 30 mín-
útum áður en hann gaf upp öndina.
M
ér líður mjög vel með að
standa með sjálfri mér og
svara fyrir mig. Ég gerði
ekkert rangt,“ segir Kol-
brún Dögg Arnardóttir í samtali
við DV. Kolbrún hefur lagt fram
kæru á hendur Ásgerði Jónu Flosa-
dóttur, formanni Fjölskylduhjálp-
ar Íslands. Málið verður tekið fyrir
í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu
viku. Ástæðan er sú að Ásgerður
Jóna nafngreindi Kolbrúnu sem
skjólstæðing Fjölskylduhjálpar í út-
varpsviðtali við Bylgjuna fyrir síð-
ustu jól. „Þetta var hrein og klár
hefndaraðgerð. Að vel athuguðu
máli þá sá ég að ég yrði að leita rétt-
ar míns fyrir sjálfa mig, börnin mín
og ekki síður aðra skjólstæðinga
Fjölskylduhjálpar sem eru í við-
kvæmri stöðu,“ segir Kolbrún Dögg.
Fékk útrunnar vörur í jólaúthlutun
Forsaga málsins er sú að Kolbrún
Dögg hafði leitað sér aðstoðar fyrir
jólin hjá hjálparsamtökunum sem
Ásgerður Jóna er í forsvari fyrir.
Hún fékk poka með matvörum
en varð fyrir miklum vonbrigðum
þegar heim var komið. Mikið af
því sem hún fékk var útrunnið og
ekkert kjötmeti fylgdi með, aðeins
fiskur og kjötbollur. Kolbrún birti
færslu á lokuðum Facebook-hópi
þar sem hún lýsti yfir vonbrigðum
sínum með úthlutunina og í kjöl-
farið ræddi hún nafnlaust við DV
um málið.
Í kjölfarið tók blaðamaður
DV viðtal við Ásgerði Jónu sem
harmaði að Kolbrún hefði feng-
ið útrunnar vörur og lýsti því um
leið yfir að Fjölskylduhjálp væri að
reyna að sporna við matarsóun en
þarna hefðu mistök átt sér stað.
Ásgerður Jóna krafðist þess í
viðtali við blaðamann að fá að
nafngreina Kolbrúnu. Blaðamað-
ur DV sagðist virða ósk viðmæl-
anda síns um nafnleynd, enda
væri málið sérstaklega viðkvæmt
og neitaði Ásgerði um að fá að
birta nafn Kolbrúnar, enda sner-
ist frétt DV um að skjólstæðing-
ur hennar hefði fengið útrunnar
vörur og hefði myndir því til stað-
festingar. Nafn og mynd Kolbrún-
ar var því aukaatriði í því sam-
hengi. Ásgerður Jóna fór síðan í
viðtal í þáttinn Í bítið á Bylgjunni
þar sem hún tók þá ákvörðun að
greina frá nafni Kolbrúnar án
hennar samþykkis.
Kolbrún varð fyrir miklu áfalli
þegar hún heyrði af afhjúpun Ás-
gerðar Jónu. „Ég brotnaði gjör-
samlega niður. Ég glími meðal
annars við alvarlegar kvíðarask-
anir og þessi gjörningur Ásgerð-
ar Jónu var sem olía á þann eld,“
segir Kolbrún. Hún steyptist út
í útbrotum á líkamanum í kjöl-
farið og átti afar erfiðar stundir.
Það sem hafi gert líf hennar bæri-
legra hafi verið viðbrögð alls kon-
ar fólks úr samfélaginu sem hafi
rétt henni hjálparhönd. „Fólki var
verulega misboðið og það rigndi
yfir mig stuðningi í síma og í skila-
boðum,“ segir Kolbrún. Hún segist
sérstaklega vera þakklát með-
limum Facebook-hópsins Góða
systir sem hafi einfaldlega bjarg-
að jólunum hennar og margra
annarra. „Ég fékk ógrynni af jóla-
mat að gjöf og fékk strax nóg fyrir
mig. Þá byrjaði ég að tengja fólk
sem vildi gefa við aðra sem voru
hjálpar þurfi. Ég var því orðin eins
konar fjölskylduhjálp í nokkra
daga fyrir jólin,“ segir Kolbrún.
Reyndu að nota fátæktina
til að fá málinu vísað frá
Þegar hátíðin var yfirstaðin þá hafi
Kolbrún þó áttað sig á því að hún
yrði að grípa til einhverra aðgerða.
„Ég upplifði þessa hegðun hennar
á þá leið að hún hefði farið í fýlu
og viljað hefna sín. Í starfi sínu
hefur hún völd yfir fólki sem er í
mjög viðkvæmri stöðu og að mínu
mati má hún ekki komast upp
með þetta. Það er alveg nógu erfitt
að fara í biðröð hjá Fjölskyldu-
hjálp og upplifa sig sem þriðja
flokks fólk þó að maður þurfi ekki
að hafa áhyggjur af hefndarað-
gerðum ef maður tjáir sig. Ég fór
því og leitaði mér ráðgjafar hjá
lögfræðingi og niðurstaðan varð
sú að kæra var lögð fram,“ segir
Kolbrún.
Ef Kolbrún var einhvern
tímann í vafa um hvort hún væri
að feta rétt braut þá varð hún
sannfærð eftir tilraunir Ásgerðar
Jónu og lögfræðings hennar til
þess að fá málinu vísað frá. „Þau
fóru fram á að lögð yrði fram
málskostnaðartrygging því að ég
er með árangurslaust fjárnám á
bakinu. Þarna var ætlun þeirra að
nýta fátækt mína gegn mér og fá
málið niðurfellt,“ segir Kolbrún.
Hún náði þó að verjast atlögunni
þegar í ljós kom að heimilis-
tryggingar hennar mundu standa
undir kostnaðinum ef dómurinn
yrði henni í óhag. n
n Skjólstæðingur
Fjölskylduhjálpar
nafngreindur
n „Hrein og klár
hefndaraðgerð“
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
KÆRIR
ÁSGERÐI
JÓNU
M
Y
N
D
H
A
N
N
A
Kaldunnin þorsklifrarolía
Íslensk framleiðsla
120/180
60
220 ml
Dropi af
náttúrunni
„Fyrir mér er
Dropi heilindi og
lífsorka”
„Ég upplifði
þessa hegð-
un hennar á þá
leið að hún hefði
farið í fýlu og
viljað hefna sín