Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 6
6 15. júní 2018FRÉTTIR
MOUNTAIN EQUIPMENT
DÖMU JAKKI 35.995 kr.
LOWE ALPINE BAKPOKI 18L
14.995 kr.
SALOMON SPEEDCROSS
18.995 kr.
SALOMON DERHÚFA
3.995 kr.SALOMON HLAUPAVESTI
19.995 kr.
Faxafen 12
108 Reykjavík
Sími 534 2727
alparnir.is
SALOMON PEYSA
15.995 kr.
SALOMON MITTISTASKA
5.995 kr.
HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA
Erum f utt í Faxafen 12
Þ
órarinn Guðnason, hjarta
læknir og formaður
Læknafélags Reykjavíkur,
segir óvissustöðuna í heil
brigðismálunum óþolandi og
með lokun heilbrigðisráðherra
á samningi sérfræðilækna við
Sjúkratryggingar Íslands sé verið
að læsa úti sérfræðiþekkingu. Í
viðtali við DV, sem birtist í heild
sinni á DV.is í dag, föstudag, seg
ir Þórarinn að stefna Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
um aukna ríkisvæðingu muni á
endanum leiða til tvöfalds heil
brigðiskerfis.
„Við erum að nálgast fyrir
komulag sem í raun er ekki annað
en tvöfalt heilbrigðiskerfi þar sem
hinir efnameiri kaupa sig fram
fyrir biðlista og sneiða hjá þyngsla
legu og oft á tíðum óþörfu tilvís
anakerfi. Þetta mikla kappsmál
ráðherrans að ríkisvæða sem allra
mest af rekstri hins opinbera heil
brigðiskerfis er að kosta sjúkling
ana bæði mikla óvissu og langa
bið eftir þjónustu,“ segir Þórarinn.
Þurfum ekki harðar stefnur
Hann segir enga sátt nást um heil
brigðiskerfið ef stefnan sé einungis
byggð á stefnuskrá Vinstri grænna
og viðhorfum Birgis Jakobssonar,
fyrrverandi landlæknis og að
stoðarmanns ráðherra, og Svan
dísar sjálfrar. „Þegar svo mikil
vægt kerfi sem heilbrigðiskerfið
er endurskipulagt þarf að gera
breytingarnar á grunni réttra talna
og raka en ekki út frá tilfinningum
eða harðri pólitískri skoðun. Við
þurfum langtíma stefnu í heil
brigðismálum sem litast ekki um
of af pólitík hægri, vinstri, upp
eða niður. Við þurfum ekki harð
ar stefnur, sem hinn vængurinn
kemur sífellt með og snýr á haus
þegar völdum er náð. Það verður
sérlega erfitt þegar skiptin verða
svo ör sem á síðustu árum og öng
þveiti getur orðið afleiðingin ef við
förum ekki gætilega.“
Rýrt traust lækna til ríkisvaldsins
Hann sparar ekki stóru orðin
þegar kemur að ráðherra. Hann
segir hana hafa brotið lög með
því að loka samningnum fyrir
nýja lækna. „Ráðherra hefur brot
ið samninga og landslög með því
að skipa Sjúkratryggingum að
loka samningnum og hefur líka
brotið gegn góðum stjórnsýslu
reglum bæði með þessu og því
að úrskurða svo sjálf í eigin sök
þegar þessi embættis færsla er
kærð. Ráðherra hefur líka beitt
ráðherraræði sem er vond stjórn
sýsla. Ég geri skýlausa kröfu á heil
brigðisyfirvöld að þau standi við
gerða samninga og vandi stjórn
sýsluna. Hegðun ráðamanna í
þessu efni hefur rýrt traust lækna
til heilbrigðisráðuneytisins og
rýrt traust til ríkisvaldsins og
stjórnsýslunnar og er ekki til þess
fallið að stuðla að framþróun.“
Róa í þveröfuga átt
Þórarinn segir ekki mögulegt
að Landspítalinn taki við þjón
ustu sérfræðilækna, sérstaklega
miðað við aðstæður í dag. „Það er
að mínu viti rangt sem ráðherra
heilbrigðismála hefur haldið
fram, að Landspítalinn geti tekið
við þjónustu sérfræðilækna, sér
staklega miðað við núverandi
aðstæður. Spítalinn er þegar
genginn upp að hnjám með nú
verandi verkefni. Mikilvægara
er að Landspítalinn fái frið, fjár
magn, stuðning og eftirfylgni til
að geta sinnt vel þeim verkefnum
sem verða að vera inni á spítal
anum. Heilbrigðisyfirvöld eru
að róa á móti straumnum með
þessari ríkisvæðingu rekstrarins
á nákvæmlega sama tíma og
þróunin í kringum okkur er í
þveröfuga átt.“ n
Stefna ráðherra leiði til
tvöfalds heilbrigðiskerfis
Formaður Læknafélags Reykjavíkur segir ráðherra brjóta lög„Heilbrigðis-
yfirvöld
eru að róa á móti
straumnum
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is