Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 14
14 MENNING 15. júní 2018 Síðumúla 30 - Reykjavík Hofsbót 4 - Akureyri 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM DÝNUM OG SVAMPI Uppáhaldslög plötusnúðanna DJ SunnaBen og DJ Katla svara spurningum DV Í slendingar geta ekki bara skemmt sér við að fylgjast með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu á næstu vikum. Fram undan er ein stærsta tón- listarhátíð landsins, Secret Sol- stice í Laugardalnum. Hátíðin hefst fimmtudaginn 21. júní og stendur til sunnudagsins 24. júní. Auk erlendra listamanna eins og Bonnie Tyler og þungarokkaranna í Slayer mun rjóminn af íslenskum tónlistar- mönnum stíga á svið í Laugardaln- um. Í hópi áhorfenda verður líka rjóminn af íslenskum tónlistarunn- endum. Í þeim hópi eru plötu- snúðarnir DJ SunnaBen og DJ Katla og fékk DV að yfirheyra þær um uppáhaldslögin þeirra, hvað þær ætli að sjá á hátíðinni, verstu giggin þeirra og ýmislegt fleira. n Hver er topp 10-listinn þinn? Cardi B – Bickenhead 2 Childish Gambino – This is America 3. Pusha T – If you know you know 4. Cardi B – I like it 5. Nicki Minaj – Chun Li 6. Gísli Pálmi – Peningar 7. Young Thug ft. Nicki Minaj – Anybody JóiPé, Króli & Aron Can – Sósa Alvia Islandia & Dadykewl – Klakarnir 10.Cardi B & Migos – Drip Uppáhaldstónlistarmaður/plötusnúður? – Cardi B Uppáhaldsskemmtistaður, af hverju? – Mér finnst skemmtilegast að spila á Prikinu, Kiki og B5, ég myndi alltaf velja þá staði til þess að dansa á líka, en ég hef því miður minni tíma til þess að sýna mig á dansgólfum bæjarins en ég vildi, er oftast í búrinu ef ég er í bænum. Hver er Dj-búnaðurinn þinn? – Macbook Pro og Traktor S4, stórkostlega skemmti- leg græja! Hvað er það sem veitir þér innblástur? – Skemmtileg tónlist, í öllu sem ég geri. Ég geri líka fátt án þess að hafa gott undirspil. Hef daginn á því að kveikja á plötu heima meðan ég hef mig til, reiði mig á góða tónlist á æfingum, við vinnu og spila eitthvað sem hægt er að gaula með þegar ég elda og vaska upp á kvöldin, enda dansa ég oftar en ekki um heimilið. Hvenær hófst áhuginn á því að „plötusnúðast“? – Ég hef alltaf verið tónlistarnörd mikið svo það var náttúruleg þróun að vilja spila tónlistina sem ég elska fyrir fólk frá unga aldri, held að áhuginn hafi kviknað þegar ég sá fyrst Dj-græjur heima hjá stóra bróður vinar míns, 13 ára. Það tók smá mönun fyr- ir mig að byrja að spila af því að ég hélt að það væri svo flókið og það var hvergi hægt að læra það þá, en þetta kom með æfingunni og verður skemmtilegra með hverju árinu, ég er búin að vinna við þetta í sex ár núna og er hvergi nærri hætt. Hvert er versta giggið þitt? Hmm, það eru alveg nokkur sem erfitt er að gera upp á milli, margt fólk getur verið mjög dónalegt. En oftar en ekki er ógeðslega gaman, annars væri maður ekki að þessu. Hvaða listamenn ætlarðu að sjá á Secret Solstice? – Sem flesta! Ég hlakka til að sjá For a minor reflection, Reykjavíkurdætur, Suru, Dream wife, Gucci Mane, Gísla Pálma og auðvitað drolluna sjálfa, Bonnie Tyler. Guðni Einarsson gudnieinarsson@dv.is Hvernig hljómar topp 10-listinn þinn? Grace Jones – Private Life ILOEDIT Teddy Pendergrass – Love TKO Fern Kinney – Love me tonight (KGB Pristine Edit) Womack & Womack – Teardrops Darondo – Didn’t I Sade – No Ordinary Love Harold Melvin & The Blue Notes – The Love I Lost Curtis Mayfield – Diamond in the Back Luther Vandross – Never Too Much Sly & The Family Stone – If You Want Me To Stay Uppáhaldstónlistarmaður/plötusnúður? Sonur minn, hann syngur frumsamin lög fyrir mig á hverjum degi. Þau eru æðisleg. Uppáhaldsskemmtistaður, af hverju? Ég er að spila á Kaffibarnum í kvöld, hann hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds. Mér finnst mjög fínt að snúa baki í dans- gólfið og geta bara fylgst með því í baksýnisspeglinum. Svo fæst líka besta engiferölið í bænum á KB. Hver er Dj-búnaðurinn þinn? Ég er búin að keyra á mjög nettu „setupi“ undanfarin ár, sem hef- ur hentað mér vel þar sem ég hef verið að ferðast mikið á milli landa með græjurnar. Það samanstendur af Traktor X1, Z1, Audio 10, delay pedal og MacBook Pro og það kemst auðveldlega fyr- ir í bakpokanum mínum. Svo er ég með tvo SL-a og crest per- formance dj mixer sem ég nota aðallega heima eða í sérstök ver- kefni. Hvað er það sem veitir þér innblástur? Bara lífið, tilvistarkreppur, leitin að tilgangi og samkennd, hún er falleg. Hvenær hófst áhuginn á því að „plötusnúðast“? Fyrir mörgum árum þegar ég fór á fyrsta skólaballið mitt og plötu- snúðurinn spilaði bara Prodigy. Ég var 12 ára. Einhvern daginn ætla ég líka að spila fjögur lög á „repeat“ heilt kvöld. Hvert er versta giggið þitt? Fyrir ekki svo löngu var ég spurð hvar hljóðmaðurinn minn væri þegar ég mætti til að tengja græjurnar mínar. Það var landskunn- ur tónlistarmaður sem tók á móti mér og horfði vantrúaður á mig þegar ég sagðist kunna þetta sjálf. Hann þurfti að rjúka áður en ég var búin að tengja, skildi mig eftir með einn lítinn hátalara (sem hann kallaði hljóðkerfið sitt) og spurði mig aftur áður en hann fór hvort það væri ekki örugglega hljóðmaður á leiðinni. Kvöldið var síðan allt einhvern veginn eftir þessu og hljóðið auðvitað hræði- legt (má deila um hvort það hafi verið hljóðkerfinu eða hljóð- manninum að kenna). Þetta endaði síðan allt á því að litli hátalar- inn sprakk í loft upp eftir að hafa barist hetjulega á dansgólfinu. Ég hef aldrei verið jafnfljót að pakka saman. Hvaða listamenn ætlarðu að sjá á Secret Solstice? Bara alla sem ég get! Dj SunnaBen Dj Katla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.