Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 14
14 MENNING 15. júní 2018
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM DÝNUM
OG SVAMPI
Uppáhaldslög plötusnúðanna
DJ SunnaBen og DJ Katla svara spurningum DV
Í
slendingar geta ekki bara
skemmt sér við að fylgjast
með heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu á næstu vikum.
Fram undan er ein stærsta tón-
listarhátíð landsins, Secret Sol-
stice í Laugardalnum. Hátíðin hefst
fimmtudaginn 21. júní og stendur til
sunnudagsins 24. júní. Auk erlendra
listamanna eins og Bonnie Tyler
og þungarokkaranna í Slayer mun
rjóminn af íslenskum tónlistar-
mönnum stíga á svið í Laugardaln-
um. Í hópi áhorfenda verður líka
rjóminn af íslenskum tónlistarunn-
endum. Í þeim hópi eru plötu-
snúðarnir DJ SunnaBen og DJ Katla
og fékk DV að yfirheyra þær um
uppáhaldslögin þeirra, hvað þær
ætli að sjá á hátíðinni, verstu giggin
þeirra og ýmislegt fleira. n
Hver er topp 10-listinn þinn?
Cardi B – Bickenhead 2
Childish Gambino – This is America 3.
Pusha T – If you know you know 4.
Cardi B – I like it 5.
Nicki Minaj – Chun Li 6.
Gísli Pálmi – Peningar 7.
Young Thug ft. Nicki Minaj – Anybody
JóiPé, Króli & Aron Can – Sósa
Alvia Islandia & Dadykewl – Klakarnir
10.Cardi B & Migos – Drip
Uppáhaldstónlistarmaður/plötusnúður?
– Cardi B
Uppáhaldsskemmtistaður, af hverju?
– Mér finnst skemmtilegast að spila á Prikinu, Kiki og
B5, ég myndi alltaf velja þá staði til þess að dansa á
líka, en ég hef því miður minni tíma til þess að sýna
mig á dansgólfum bæjarins en ég vildi, er oftast í
búrinu ef ég er í bænum.
Hver er Dj-búnaðurinn þinn?
– Macbook Pro og Traktor S4, stórkostlega skemmti-
leg græja!
Hvað er það sem veitir þér innblástur?
– Skemmtileg tónlist, í öllu sem ég geri. Ég geri líka
fátt án þess að hafa gott undirspil. Hef daginn á því að
kveikja á plötu heima meðan ég hef mig til, reiði mig
á góða tónlist á æfingum, við vinnu og spila eitthvað
sem hægt er að gaula með þegar ég elda og vaska upp
á kvöldin, enda dansa ég oftar en ekki um heimilið.
Hvenær hófst áhuginn á því að „plötusnúðast“?
– Ég hef alltaf verið tónlistarnörd mikið svo það var
náttúruleg þróun að vilja spila tónlistina sem ég
elska fyrir fólk frá unga aldri, held að áhuginn hafi
kviknað þegar ég sá fyrst Dj-græjur heima hjá stóra
bróður vinar míns, 13 ára. Það tók smá mönun fyr-
ir mig að byrja að spila af því að ég hélt að það væri
svo flókið og það var hvergi hægt að læra það þá, en
þetta kom með æfingunni og verður skemmtilegra
með hverju árinu, ég er búin að vinna við þetta í sex
ár núna og er hvergi nærri hætt.
Hvert er versta giggið þitt?
Hmm, það eru alveg nokkur sem erfitt er að gera upp
á milli, margt fólk getur verið mjög dónalegt. En oftar
en ekki er ógeðslega gaman, annars væri maður ekki
að þessu.
Hvaða listamenn ætlarðu að sjá á Secret Solstice?
– Sem flesta! Ég hlakka til að sjá For a minor reflection,
Reykjavíkurdætur, Suru, Dream wife, Gucci Mane,
Gísla Pálma og auðvitað drolluna sjálfa, Bonnie Tyler.
Guðni Einarsson
gudnieinarsson@dv.is
Hvernig hljómar topp 10-listinn þinn?
Grace Jones – Private Life ILOEDIT
Teddy Pendergrass – Love TKO
Fern Kinney – Love me tonight (KGB Pristine Edit)
Womack & Womack – Teardrops
Darondo – Didn’t I
Sade – No Ordinary Love
Harold Melvin & The Blue Notes – The Love I Lost
Curtis Mayfield – Diamond in the Back
Luther Vandross – Never Too Much
Sly & The Family Stone – If You Want Me To Stay
Uppáhaldstónlistarmaður/plötusnúður?
Sonur minn, hann syngur frumsamin lög fyrir mig á hverjum
degi. Þau eru æðisleg.
Uppáhaldsskemmtistaður, af hverju?
Ég er að spila á Kaffibarnum í kvöld, hann hefur alltaf verið einn
af mínum uppáhalds. Mér finnst mjög fínt að snúa baki í dans-
gólfið og geta bara fylgst með því í baksýnisspeglinum. Svo fæst
líka besta engiferölið í bænum á KB.
Hver er Dj-búnaðurinn þinn?
Ég er búin að keyra á mjög nettu „setupi“ undanfarin ár, sem hef-
ur hentað mér vel þar sem ég hef verið að ferðast mikið á milli
landa með græjurnar. Það samanstendur af Traktor X1, Z1, Audio
10, delay pedal og MacBook Pro og það kemst auðveldlega fyr-
ir í bakpokanum mínum. Svo er ég með tvo SL-a og crest per-
formance dj mixer sem ég nota aðallega heima eða í sérstök ver-
kefni.
Hvað er það sem veitir þér innblástur?
Bara lífið, tilvistarkreppur, leitin að tilgangi og samkennd, hún er
falleg.
Hvenær hófst áhuginn á því að „plötusnúðast“?
Fyrir mörgum árum þegar ég fór á fyrsta skólaballið mitt og plötu-
snúðurinn spilaði bara Prodigy. Ég var 12 ára. Einhvern daginn
ætla ég líka að spila fjögur lög á „repeat“ heilt kvöld.
Hvert er versta giggið þitt?
Fyrir ekki svo löngu var ég spurð hvar hljóðmaðurinn minn væri
þegar ég mætti til að tengja græjurnar mínar. Það var landskunn-
ur tónlistarmaður sem tók á móti mér og horfði vantrúaður á mig
þegar ég sagðist kunna þetta sjálf. Hann þurfti að rjúka áður en ég
var búin að tengja, skildi mig eftir með einn lítinn hátalara (sem
hann kallaði hljóðkerfið sitt) og spurði mig aftur áður en hann fór
hvort það væri ekki örugglega hljóðmaður á leiðinni. Kvöldið var
síðan allt einhvern veginn eftir þessu og hljóðið auðvitað hræði-
legt (má deila um hvort það hafi verið hljóðkerfinu eða hljóð-
manninum að kenna). Þetta endaði síðan allt á því að litli hátalar-
inn sprakk í loft upp eftir að hafa barist hetjulega á dansgólfinu.
Ég hef aldrei verið jafnfljót að pakka saman.
Hvaða listamenn ætlarðu að sjá á Secret Solstice?
Bara alla sem ég get!
Dj SunnaBen
Dj Katla