Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 24
24 FÓLK - VIÐTAL 15. júní 2018 kvartendur hafa verið að hrópa á okkur að taka upp. Þannig höf­ um við verið að taka sársaukann strax í byrjun, að segja nei, við get­ um ekki tekið þetta upp frekar en að opna málið og vera alltof lengi að því.“ Hann segir að umgjörðin sem Samkeppniseftirlitinu sé búin sé ekki góð. „Ef við lítum á okkur sem spítala atvinnulífsins þá erum við endalaust að loka sjúkradeildum, ekki bara á sumrin, sem er ekki gott. Það sem gerist þá er að fyrir­ tæki hætta að leita til okkar vegna þess að þau eru hætt að trúa að við tökum málin upp. Það er afleit staða,“ segir Páll. Aðspurður segist hann ekki halda að fyrirtæki hætti að leita til Samkeppniseftirlitsins með umkvartanir en að hann hafi áhyggjur af stöðu mála. Forgangsröðuðu af hörku í kjölfar hrunsins Hafið þið einhver tól í höndunum til þess að þrýsta á löggjafann um auknar fjárveitingar? „Við gefum fjárveitingarvaldinu reglulegar skýrslur um stöðu mála hjá okkur og höfum reynt að gera það sem við getum í því. Við rekum þessa stofnun með þeim pening­ um sem við fáum. Við höfum ekki verið í einhverjum framúrkeyrslum enda það er ekki ábyrgt. Á endan­ um erum við að treysta þeim sem stýra þessu til að búa til þessa um­ gjörð.“ Páll segir að Samkeppnis­ eftirlitið hafi skort fjármagn í langan tíma og afleiðingin sé sú að nauðsynlegt er að forgangs­ raða málum. „Við fórum að for­ gangsraða af hörku í hruninu. Eðli­ lega varð hér heilmikil sprenging í málafjölda og nýjar tegundir af málum litu dagsins ljós. Við fórum að fylgjast mjög náið með bönkun­ um vegna þess að þeir voru komnir með atvinnulífið í fangið. Við feng­ um mjög mikið af kvörtunum út af þeirri stöðu sem var komin upp. Allar þær spurningar sem vöknuðu um það urðu til þess að við fórum að forgangsraða málum og loka málum sem við sáum ekki fram á að geta klárað,“ segir Páll. Hann segir að ástandið hafi versnað enn meira á síðustu árum og því hafi stofnunin þurft að strekkja enn þá meira á þessari forgangsröðun. „Það er aðallega vegna þess að það hafa verið mjög stórir og viðamiklir samrunar til skoðunar. Það er ekki fjöldinn sem hefur verið að trufla okkur held­ ur frekar hversu stórir samrunarn­ ir hafa verið. Vonandi hægist um í því og þá höfum við meiri tíma til að skoða aðra hluti.“ „Mörg verkefni sem við vildum sinna betur“ Þannig að þið eruð fjársveltir? „Það er alveg augljóst að við þurfum meiri pening til þess að geta sinnt þeim málum sem við þurfum að sinna. Það eru gerðar miklar, en að sama skapi eðilegar kröfur, til þess hvernig við vinnum hlutina en við verðum að einblína á gæðin og þá erum við í þeirri stöðu að gera vel fáa hluti heldur en minna vel marga. Þetta er erfið staða sem við erum í,“ segir Páll. Hann segir að fjárframlag rík­ isins til stofnunarinnar hafi verið nokkuð stöðugt undanfarin ár en aldrei nægt til þess að hægt sé að sinna öllum málum sem koma inn á borð stofnunarinnar. Á því hefur Páll þó skilning. „Það fá ekki allir allt sem þeir vilja. Stjórnvöld hafa í mörg horn að líta.“ Því fer þó fjarri að stofnunin sé lömuð en eins og áður segir verður að forgangsraða málum. „Við erum með kríteríu í því og tökum að sjálf­ sögðu upp alvarlegustu málin sem blasa við. Samráð er alltaf ofarlega á þeim lista. En það eru mörg ver­ kefni sem við vildum sinna betur.“ Hvetur þetta ástand ekki fyrir­ tæki til þess að brjóta frekar af sér í tengslum við samkeppnislög? „Við erum ekki komin þangað. Við erum þó þar, sem betur fer, að Samkeppniseftirlitið er reglulega að sýna að það ræður við verkefn­ in og tekur þau föstum tökum. Það er í standi til þess að leiða þau til lykta og fylgja þeim í gegnum dóm­ stóla. Þannig að ég held að fyrirtæki líti ekki þannig á, en auðvitað get­ ur það þróast þannig. Það er hlut­ verk stjórnvalda að passa að svo fari ekki.“ Hafa áhyggjur af umfangsmiklu eignarhaldi lífeyrissjóða Hefur Samkeppniseftirlitið áhyggjur af því hversu stóran hluta lífeyrissjóðir eiga í fyrirtækjum á markaði, jafnvel fyrirtækjum sem eru í samkeppni? „Já, við höfum það. Ef við för­ um yfir þessa stöðu þá vorum við í afleitri stöðu eftir hrunið þar sem bankarnir voru beinir eða óbeinir eigendur mjög stórs hluta samkeppnismarkaða. Þegar bank­ arnir voru að öðlast yfirráð yfir þess­ um fyrirtækjum þá fór það í gegn­ um okkur og við gátum sett skilyrði sem miðuðu að því að flýta þessu ferli og passa upp á að það yrði samkeppni þó að bankarnir væru með þetta allt í höndunum. Það var jákvætt skref þegar bankarnir fjar­ lægðust þetta eignarhald en það sem gerðist í staðinn var að lífeyr­ issjóðirnir komu inn. Það var líka skiljanlegt því lífeyrissjóðirnir voru lokaðir innan gjaldeyrishaftanna og erfitt um vik í fjárfestingu í atvinnu­ greinum og svo framvegis. Þetta er staða sem varð og við höfum allan tímann haft áhyggjur af. Við höf­ um talað um það alla tíð að það væri mjög óheppilegt þegar sömu aðilar, hvort sem það væru lífeyris­ sjóðir eða ekki, tiltölulega lítill hóp­ ur lífeyrissjóða ættu stóran hlut í fleiri en einum keppinaut á mark­ aði. Við þekkjum þetta á fjarskipta­ marki og svo geturðu rakið markað­ inn. Það segir sig sjálft að þetta er ekki heppileg staða út frá sjónarhóli samkeppninnar. Við viljum hafa fjölbreytt eignarhald með mismun­ andi áherslur. Við erum ekki með þetta umhverfi núna.“ Páll segir að erlendis þekkist dæmi þess að stórir sjóðir eigi í fyrir tækjum sem eru í samkeppni á sama markaði. „Ytra eru sam­ bærileg mál rannsökuð og við fylgj­ umst vel með þeirri þróun mála. Það eru sumir fræðimenn sem telja að þetta geti haft áhrif á verð en aðr­ ir eru ekki á sama máli. Við tökum þetta inn í okkar rannsóknir,“ segir Páll og vísar í samruna dagvöru­ og olíufyrirtækja hérlendis sem verið hafa á borði stofnunarinnar. Í þeim málum sé mikil áhersla lögð á að skoða eignarhaldið sérstaklega. Mun þetta ástand batna? Við erum með stofnanir sem eru með augun á þessum vandamál­ um og eru að reyna að finna lausn­ ir. Stjórnvöld eru meðvituð um þetta vandamál og að dreifðara eignarhald sé mikilvægt. Það er hægt að leysa úr þessu og við höfum engan ann­ an kost en að finna lausnir á þeim vandamálum sem við glímum við. Hlutirnir geta orðið persónulegir Það vakti mikla athygli þegar Samkeppniseftirlitið tilkynnti að stofnunin hefði lokið rannsókn á meintu samráði Samherja, Síldar­ vinnslunnar í Neskaupstað og Gjögurs, án efnislegrar niðurstöðu, vegna anna í öðrum verkefnum. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at­ vinnulífsins, brást harkalega við og sagði að stofnunin héldi fyrirtækj­ um í gíslingu árum saman. Þá sak­ aði hann Pál Gunnar um að vekja þau hugrenningatengsl að eitthvað misjafnt hefði átt sér stað. Eins og áður segir hefur Páll Gunnar ekki miklar áhyggjur af persónulegum vinsældum sín­ um. „Nei, ég er ekki mjög vinsæll og ég væri að gera eitthvað annað ef ég hefði áhuga á því. Þetta starf getur orðið einmanalegt í svona litlu samfélagi þar sem allir þekkja alla. Hlutirnir geta orðið svolítið persónulegir. En á móti kemur að þetta er afar gefandi því það er einmitt í litlu hagkerfi eins og okkar að maður sér hversu mikilvægt það er að efla samkeppni. Öðru hverju hittum við á verkefni og náum að leysa úr þeim, sem við sjáum að hafa heilmikil áhrif. Það er gaman þegar það gerist. En á leiðinni að því mark­ miði þá er auðvitað búið að skamma okkur heilmikið,“ segir Páll. Að hans mati skortir á að sam­ tök í atvinnulífinu einblíni meira á samkeppnismál. „ Okkur finnst mörg samtök detta stundum ofan í of mikla hagsmunagæslu, horfa ekki á stóru myndina. Sum samtökin eru að sannfæra fyrirtækin um að þessar reglur séu flóknar og að það sé erfitt að hafa samskipti við Samkeppn­ iseftirlitið, sem við könnumst ekki við. Við teljum að þau mættu vera stórmannlegri og vinna með okkur til þess að laga hlutina. Við erum til­ búin til að vinna með þeim,“ segir Páll að lokum. n „Það var líka skiljan legt því líf- eyrissjóðirnir voru lokaðir innan gjaldeyrishaftanna og erfitt um vik í fjár- festingu í atvinnugreinum. MANITOU MLT 625-75 H Nett fjölnotatæki Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is 6.800.000 kr. + VSK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.