Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Qupperneq 29
Sniðugt í sumar
15. júní 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Það er engin tilviljun
að Hjá Jobba er
elsta starfandi
bónstöð landsins
Bónstöðvar koma og fara en bónstöðin Hjá Jobba hefur verið starfandi í yfir 30 ár. Hvernig er
slíkt hægt þegar meðalaldur í bransan-
um er 2–3 ár? Svarið er: Gæði, lágt verð
og ánægðir viðskiptavinir. Þeir sem fara
með bílinn sinn til Jobba vita að þeir
munu fá toppþjónustu. Bónstöðin vex
enn og dafnar og er núna elsta starf-
andi bónstöð landsins.
Reynsla Jobba í bransanum nær
reyndar enn lengra aftur í tímann en
hann starfaði hjá Sveini Egilssyni frá
árinu 1982 og stýrði deild sem sá um
standsetningu, skráningu og þrif á
nýjum bílum. Hann hefur síðan verið
sjálfstætt starfandi frá árinu 1986.
Helstu þjónustuþættir sem í boði eru
hjá Jobba eru eftirtaldir: Alþrif, þrif að
innan, þrif að utan og bónun, teflon-
bónun, djúphreinsun teppa og sæta,
tjöruþvottur, vélarþvottur, ryksugun,
lakkmössun, blettun, lakkviðgerðir og
ýmislegt fleira. Ítarlegar upplýsingar um
þjónustuliðina er að finna á vefsíðunni
hjajobba.is. Þar eru einnig greinargóðar
upplýsingar um verð.
Fólksbílar almennings eru vitanlega
algengustu verkefni Jobba en stöðin
tekur líka meðal annars að sér hreinsun
og bónun á rútum, flutningabílum og
öðrum vinnutækjum.
Enn fremur þrífur Jobbi og bónar
bíla fyrir Suzuki bíla ehf. og fleiri þekkt
fyrirtæki.
Hjá Jobba er staðsett í Skeifunni 17.
Stöðin er opin virka daga frá kl. 9 til
17.30 nema föstudaga, þá er opið til kl.
17. Tímapantanir eru í síma 568-0230.
Þá er einnig tilvalið að senda töluvpóst
á netfangið hjajobba@simnet.is ef þú
vilt bætast í ört vaxandi hóp ánægðra
viðskiptavina stöðvarinnar. Því eins og
Jobbi segir: „Við gerum gott betra.“
Heimsíða er hjajobba.is.