Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 30
Sniðugt í sumar 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ NÝIR SÍMAR Í SÉRFLOKKI: Þreföld gæði miðað við sambærileg tæki í sama verðflokki Mi Iceland er viðurkenndur dreifingaraðili á Íslandi fyrir kínverska snjalltækjafram- leiðandann Xiaomi eða Mi, sem hefur skapað sér sterkan sess í tækniheim- inum með áreiðanlegum tækjum á góðu verði. Fyrsti síminn frá Mi kom á markaðinn árið 2011 og aðeins þrem- ur árum síðar var framleiðandinn orðinn sá þriðji stærsti í heiminum. Snjallsímarnir frá Mi eru í nokkrum verðflokkum og hægt er að fá mjög góðan snjallsíma fyrir aðeins 25.000 krónur. Með slíkum síma er hægt að gera allt sem maður notar hefðbundinn snjallsíma í, rafhlaðan er endingargóð og myndavélin er sérlega góð, sem er mjög eftirsóttur kostur í snjallsímum í dag. Einn vin- sælasti eiginleiki þessara síma er sá að þeir bjóða allir upp á tvö síma- kort og þar af leiðandi sameina þeir vinnu- og persónulega símann í einn síma. Nýjasti síminn frá Mi Iceland er Redmi Note 5 Pro. Sá sími styður hraðhleðslu, er með tvöfalda mynda- vél að aftan sem skilar einstaklega skýrum myndum og hefur endingar- góða rafhlöðu, sem skiptir mestu máli þegar upp er staðið. Nýjasta flaggskipið hjá Mi Iceland er Mi Mix 2S. Sá sími er úr vinsælu Mix-línunni sem á sínum tíma var brautryðjandi í hönnun farsíma úti um allan heim þar sem skjárinn þekur nánast allan flöt símans. Síminn inniheldur svo alla nýjustu þróun á snjallsímum og má þar nefna einn hraðasta örgjörvann, 64GB innbyggt minni og 6GB vinnsluminni, hrað- og þráðlausa hleðslu og nýja og endur- bætta tvöfalda myndavél. Önnur smærri en nytsamleg vara, sérstaklega á ferðalögum í sumar, er 10.000mAh hleðslubankinn. Með þessari græju er hægt að hlaða flest snjalltæki á borð við farsíma og spjaldtölvur hvar sem er með stóru rafhlöðunni sem er innbyggð . Alveg ómissandi græja fyrir ferðalögin í sumar! Mi Iceland er vefverslun sem sendir hvert á land sem er og er enginn sendingarkostnaður. Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni www.mii.is. DEKURA: Einstök þjónusta í umsjón leiguhúsnæðis Félagarnir Davíð Karl Wiium og Davíð Vilmundarson eru braut-ryðjendur í umsjón og umsýslu eigna í skammtímaleigu. Árið 2014 stofnuðu þeir þjónustufyrirtækið Dekura sem sérhæfir sig í umsjón á húsnæði sem leigt er út í gegnum Airbnb og aðra sambærilega vefi. Þá bjóða þeir einnig sérhæfða umsjón gistiheimila af öllum stærðum og gerðum. Þjónustuframboð Dekura fyrir eigendur húsnæðis í skammtímaleigu spannar vítt svið og leggur fyrirtækið áherslu á að bjóða faglega og heild- ræna þjónustu til viðskiptavina sinna. Rekstur skammtímaleiguhúsnæðis getur verið ansi tímafrekur og krefst töluverðra fórna og umtalsverðrar skipulagningar af hálfu leigusala. Það er ótal margt sem þarf að huga að þegar kemur að því að gera leigjanda ánægðan. Fyrir utan það að hafa íbúðina í toppstandi, tandurhreina og allt aðgengi með besta móti þegar nýr leigjandi bankar upp á, þá þarf leigusali að vera til taks til að taka á móti leigjendum og vera auk þess reiðubúinn til að leysa úr hinum ýmsu vandamálum sem upp geta komið á öllum tímum sólarhrings. Samhliða fullri vinnu og fjölskyldu getur þetta verið ansi þungur baggi fyrir leigusala að takast á við. Dekura býður upp á heildarþjónustu sem tekur á öllu því sem viðkemur rekstri á eignum í skammtímaleigu, allt frá þrifum upp í alhliða umsjón eignanna. Þá sér Dekura um öll samskipti við gesti auk þess sem allt lín, handklæði og annað sem þarf að vera til staðar fyrir gesti meðan á dvöl stendur er innifalið í heildarþjónustu félagsins. Með aðstoð Dekura getur leigusali tekið á móti töluvert fleiri viðskipta- vinum en ella og fengið betri um- sagnir, sem eykur samstundis verð- gildi íbúðarinnar og leigutekjurnar sem af henni koma. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 12 manns sem sjá um hin ýmsu verkefni og státar Dekura sig af einu færasta þrifnaðarteymi í brans- anum. Auk þess starfrækir Dekura fullbúið þvottahús í höfuðstöðvum sínum við Skólavörðustíg. Eftir fjögur ár í þessum rekstri vita starfsmenn Dekura hvað til þarf til að uppfylla gæðakröfur ferðamanna og hvernig hámarka má nýtingu leiguhúsnæðis. Þar sem nú er orðið heimilt að leigja út eign sína í allt að 90 daga á ári þá færist sífellt í aukanna að fólk nýti sér þá heimild til að fjármagna að hluta til eða fullu sumarfrí sín. Nú fer að ganga í garð aðal ferða- tímabil ársins og því er gott að vera tímanlega í skipulagningu á útleigu húsnæðis fyrir þau sem á það hyggja. Eins og alþjóð veit er íslenska karla- landsliðið á leiðinni á sitt annað stór- mót og því lag að leigja út híbýli sín á meðan til þess að létta undir eða jafnvel greiða fyrir fríið. Dekura er í nánu samstarfi við teymi sérfræðinga í leyfismálum og aðstoðar viðskiptavini sína við að fá þau leyfi sem þarf, viðskiptavininum að kostnaðarlausu, hvort sem um er að ræða 90 daga leyfi eða fullgilt gistileyfi. Til þess að panta þjónustu frá Dekura má hafa samband í gegnum vefsíðu fyrirtækisins https://dekura.is eða senda póst á netfangið dekura@ dekura.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.