Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 33
Sniðugt í sumar 15. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Fólk vill handsmíðaða skartgripi Georg V. Hannah er eitt elsta fyrirtæki Keflavíkur en þessi úra- og skartgripaverslun var stofnuð árið 1968 og er staðsett að Hafnargötu 49 í Keflavík. Georg V. Hannah er úrsmiður og lét nýlega af störfum, en sonur hans, gullsmiður- inn Eggert Hannah, hefur tekið við rekstrinum. Georg V. Hannah býður meðal annars upp á frábært úrval af erlendum gæðaúrum á stóru verðbili og íslenska skartgripahönnun þar sem fágaður stíll Eggerts nýtur sín. Eggert Hannah smíðar skartgripi bæði eftir eigin hugmyndum og út- færslu af hugmyndum viðskiptavina „Foreldrar mínir eru nýhættir og ég er nýbúinn að kaupa reksturinn. Pabbi er úrsmiður og ég er gullsmið- ur. Það passar mjög vel saman að hafa hvort tveggja. Ég einbeiti mér núna að úrum og skartgripum en er búinn að losa mig við gjafavöruna sem ég var með. Það er betra fyrir mig að einbeita mér að aðeins minna fyrirtæki,“ segir Eggert. Eggert leggur sífellt meiri áherslu á eigin hönnun en hann hannar mjög fjölbreytta skartgripi, stundum út frá eigin grunnhugmyndum og stundum í samvinnu við viðskiptavini þar sem hann útfærir þeirra hugmyndir og óskir. „Það er alltaf að aukast eft- irspurnin eftir handsmíðuðu og ég kappkosta að uppfylla hana. Innflutt- ar vörur eru enn í meirihluta í versl- uninni en handsmíðaðir gripir sækja sífellt á.“ Mikið úrval er af fallegum úrum í versluninni undir gæðamerkjum, t.d. Tissot, Raymond Weil, Hugo Boss, Daniel Wellington og Orient. Einnig er hægt að fá úrin frá JS Watch Reykja- vík í versluninni, en þau eru íslensk hönnun og sett saman á Íslandi. Eggert er líka með öfluga við- gerðarþjónustu á staðnum. Hann hefur boðið upp á handsmíðaða skartgripi í 25 ár og státar af mikilli reynslu, þekkingu og færni. Meðal annars handgrefur hann og setur í steina fyrir aðra gullsmiði og heldur árlega námskeið í handáletrun í Dan- mörku fyrir þarlenda gullsmiði. Alhliða viðhalds- þjónusta bygginga Viðhald og klæðning er nýtt fyrirtæki á sviði bygginga- og viðhaldsþjónustu. Fyrir- tækið sinnir mjög víðtækri þjónustu á þessu sviði og leggur mikla áherslu á fagmennsku og fram- úrskarandi vinnubrögð. Viðhald og klæðning sinnir meðal annars eftirfarandi verkþáttum: n Þök og veggir þéttir, múr- og steypuvið- gerðir n Hitakaplar og rör lögð í tröppur n Þök og veggir málaðir n Veggir steinaðir n Þök endurnýjuð n Veggir klæddir n Einangrun n Þakrennukerfi sett upp n Gólf flotuð n Flísalagnir, úti sem inni n Hellulagnir n Endurnýjun svala, steyptar svalir fjar- lægðar og léttar málm- prófíl- og plexíglersvalir settar upp í staðinn n Svölum lokað með rennihurðum n Skipt um hurðir, glugga og gler, timbur eða PVC n Jafnframt vinnur Viðhald og klæðning við allar gerðir nýbygginga og kemur þá með sína verkþætti inn í stærri verkefni. Fyrirtækið er staðsett á höfuðborgarsvæðinu en tekur að sér verkefni um allt land, stór og smá. Netfang: murogsteypa@gmail.com Símanúmer: 783 8866 og 763 1397 VIÐHALD OG KLÆÐNING EHF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.