Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Qupperneq 33
Sniðugt í sumar 15. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
Fólk vill handsmíðaða skartgripi
Georg V. Hannah er eitt elsta fyrirtæki Keflavíkur en þessi úra- og skartgripaverslun var
stofnuð árið 1968 og er staðsett að
Hafnargötu 49 í Keflavík. Georg V.
Hannah er úrsmiður og lét nýlega af
störfum, en sonur hans, gullsmiður-
inn Eggert Hannah, hefur tekið við
rekstrinum. Georg V. Hannah býður
meðal annars upp á frábært úrval af
erlendum gæðaúrum á stóru verðbili
og íslenska skartgripahönnun þar
sem fágaður stíll Eggerts nýtur sín.
Eggert Hannah smíðar skartgripi
bæði eftir eigin hugmyndum og út-
færslu af hugmyndum viðskiptavina
„Foreldrar mínir eru nýhættir og
ég er nýbúinn að kaupa reksturinn.
Pabbi er úrsmiður og ég er gullsmið-
ur. Það passar mjög vel saman að
hafa hvort tveggja. Ég einbeiti mér
núna að úrum og skartgripum en er
búinn að losa mig við gjafavöruna
sem ég var með. Það er betra fyrir
mig að einbeita mér að aðeins minna
fyrirtæki,“ segir Eggert.
Eggert leggur sífellt meiri áherslu
á eigin hönnun en hann hannar mjög
fjölbreytta skartgripi, stundum út frá
eigin grunnhugmyndum og stundum
í samvinnu við viðskiptavini þar sem
hann útfærir þeirra hugmyndir og
óskir. „Það er alltaf að aukast eft-
irspurnin eftir handsmíðuðu og ég
kappkosta að uppfylla hana. Innflutt-
ar vörur eru enn í meirihluta í versl-
uninni en handsmíðaðir gripir sækja
sífellt á.“
Mikið úrval er af fallegum úrum í
versluninni undir gæðamerkjum, t.d.
Tissot, Raymond Weil, Hugo Boss,
Daniel Wellington og Orient. Einnig er
hægt að fá úrin frá JS Watch Reykja-
vík í versluninni, en þau eru íslensk
hönnun og sett saman á Íslandi.
Eggert er líka með öfluga við-
gerðarþjónustu á staðnum. Hann
hefur boðið upp á handsmíðaða
skartgripi í 25 ár og státar af mikilli
reynslu, þekkingu og færni. Meðal
annars handgrefur hann og setur í
steina fyrir aðra gullsmiði og heldur
árlega námskeið í handáletrun í Dan-
mörku fyrir þarlenda gullsmiði.
Alhliða viðhalds-
þjónusta bygginga
Viðhald og klæðning er nýtt fyrirtæki á sviði bygginga- og
viðhaldsþjónustu. Fyrir-
tækið sinnir mjög víðtækri
þjónustu á þessu sviði
og leggur mikla áherslu
á fagmennsku og fram-
úrskarandi vinnubrögð.
Viðhald og klæðning sinnir
meðal annars eftirfarandi
verkþáttum:
n Þök og veggir þéttir,
múr- og steypuvið-
gerðir
n Hitakaplar og rör lögð í
tröppur
n Þök og veggir málaðir
n Veggir steinaðir
n Þök endurnýjuð
n Veggir klæddir
n Einangrun
n Þakrennukerfi sett upp
n Gólf flotuð
n Flísalagnir, úti sem inni
n Hellulagnir
n Endurnýjun svala,
steyptar svalir fjar-
lægðar og léttar málm-
prófíl- og plexíglersvalir
settar upp í staðinn
n Svölum lokað með
rennihurðum
n Skipt um hurðir, glugga
og gler, timbur eða PVC
n Jafnframt vinnur
Viðhald og klæðning við
allar gerðir nýbygginga
og kemur þá með sína
verkþætti inn í stærri
verkefni.
Fyrirtækið er staðsett
á höfuðborgarsvæðinu en
tekur að sér verkefni um
allt land, stór og smá.
Netfang:
murogsteypa@gmail.com
Símanúmer:
783 8866 og 763 1397
VIÐHALD OG KLÆÐNING EHF.