Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Blaðsíða 34
Sniðugt í sumar 15. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
Þegar bílrúða brotnar eða fær á sig sprungu er gott að hringja í Bílrúðumeistararann, Dalvegi
18, Kópavogi, í síma 571-1133, og
panta tíma. Eftir það er séð um allt
sem á að gera á einum stað, hratt og
örugglega. „Það fer rafræn sending
frá okkur á tryggingafélagið þannig að
viðskiptavinurinn þarf aldrei að vera
í neinu sambandi við það frekar en
hann vill. Það er mikilvægt að þetta sé
ekki flókið fyrir viðskiptavininn. Hann
geti bara hringt í eitt númer og síðan
sé gengið frá öllu á einum stað,“ segir
Páll Gunnlaugsson, eigandi Bílrúðu-
meistarans.
Páll er lærður bifreiðasmíðameistari
og það er góð tilfinning fyrir viðskipta-
vini að vita af rúðuísetningunni í hönd-
um faglærðs og þrautreynds manns.
Páll hefur starfað við rúðuísetningar
allt frá áriu 2001, en hann stofnaði
Bílrúðumeistarann árið 2011. Hefur
verið mikill vöxtur í viðskiptunum
vegna góðrar þjónustu að sögn Páls.
Upprunagæði á ísettu gleri – Hægt
að nota plástra og sleppa við rúðu-
skipti við minniháttar skemmdir
„Ég legg áherslu á að nota gler sem
er af sömu gæðum og upprunalega
glerið í bílnum og því getur bíleig-
andinn treyst því að fá jafngóða rúðu
og var upphaflega,“ segir Páll,
En eru rúðubrot í bílum algeng?
„Það er ótrúlega mikið um rúðu-
brot. Algengast er að eitthvað komi
í rúðuna, steinn sem skemmir hana
og ef hún brotnar ekki strax þá klárar
frostið og hitabreytingarnar verkið.
En ef fólk nýtir sér þessa plástra sem
bæði eru í boði hjá mér og trygginga-
félögunum, þá eru þeir settir yfir
skemmdina strax, bíleigandinn kemur
síðan með bílinn til mín og ég get
fyllt upp í skemmdina án þess að
það þurfi að skipta um rúðu. Þetta
er auðvitað miklu ódýrari kostur og
getur gengið ef skemmdin er á lítt
áberandi stað á rúðunni, utan sjóns-
viðs ökumanns. Auk minni kostnaðar
þarf eigandinn þá ekki að greiða fyrir
neina sjálfsáhættu.“
Biðtími frá því hringt er í 571-1133
vegna rúðubrots er vanalega 1–2
dagar.
Páll segir að rúðubrot vegna
skemmdarverka séu sjaldgæfari en
það sem hann kallar, rúðubrot af
eðlilegum ástæðum. Skemmdarverk
ganga þó oft í bylgjum og stundum
verði mörg rúðubrot á stuttum tíma
vegna skemmdarverkafaraldurs.
Þess má geta að Páll er fljótur að
leysa þau algengu vandamál þegar
hliðarrúður festast í upphölurum. Þá
er hægt að koma með bílinn beint í
Bílrúðumeistarann sem losar rúðuna
og skiptir um upphalarann. Að sögn
Páls eru þessi vandamál algeng
þegar byrjar að frjósa á veturna.
BÍLRÚÐUMEISTARINN:
Allt á einum stað þegar
skipta þarf um rúðu
Skemmtilegu, klassísku tómstundaborðin sem
henta vel í sumarbústaðinn og inn á hvert heimili
Eitt það jákvæðasta sem fólk sér við þessi tæki er að þau fá krakkana frá tölvuskjánum og
til að hreyfa sig,“ segir Sigurður Valur
Sverrisson, eigandi verslunarinnar
Pingpong.is en þar er mikið úrval af
klassískum tómstundatækjum, til
dæmis billjardborð, borðtennisborð,
pílukastsvörur, fótboltaspil og þyt-
hokkíborð. Mörg af þessum tækjum
henta vel í bílskúrinn eða sumarbú-
staðinn og þeim fylgir allt sem þarf til
að stunda þessa leiki, svo sem spaðar
og kjuðar.
Ein afar vinsæl græja í Pinpong.is
er hinn stórskemmtilegi Borðtennis-
vinur (Buddy), tæki sem dælir borð-
tenniskúlum út úr sér. Kostar aðeins
28.500 kr.
„Billjardinn er vinsælastur hjá mér
núna en ég er með gott úrval af billj-
ardborðum, meðal annars meðfæri-
leg borð sem henta í heimahús og eru
góðar fermingargjafir. Ég er til dæmis
með sex feta eða 180 cm. billjardborð
sem hægt er að reisa upp að vegg
þegar það er ekki í notkun og því fylgir
líka borðtennisplata, þannig að þetta
er sambyggð billjard- og borðtennis-
græja. Settinu fylgir allt sem þarf, til
dæmis billjardkjuðar og borðtennis-
spaðar. Þessi græja kostar 73.000
krónur,“ segir Sigurður.
Pingpong.is er með toppmerki í
billjardvörunum, til dæmis Riley og
Buffalo.
Pílukast er afar vinsæll leikur sem
hefur verið að sækja mjög í sig veðrið
aftur á undanförnum árum. Ping-
pong.is er með pílukastsskífur frá
hinum þekkta framleiðanda Unicorn.
Pílukastsskífur eru fyrirferðarlitlar
og auðvelt að festa upp í heimahús-
um en Pingpong.is býður líka upp á
frístandandi skífur sem ekki
þarf að festa á vegg. Pílu-
kastssettin (spjald og pílur)
kosta á bilinu 12–30 þús-
und krónur. Borðtenn-
isborð og meðfylgjandi
sett kosta síðan á bilinu
50 til 140 þúsund.
Gömlu fótboltaspilin með
stöngunum eru sígild og njóta
enn mikilla vinsælda.
„Pingpong er með mjög breytt
úrval af borðtennisvörum sem henta
fyrir jafnt byrjendur sem keppnisfólk
en flest keppnisfólk hér á landi kaupir
spaðana sína í Pingpong.is enda
erum við með mjög góð og þekkt
merki – Butterfly, STIGA, DHS og
JOOLA.“
Pingpong.is hefur starfað í yfir
30 ár og hefur þann tíma ávallt
lagt áherslu á að hafa allt fáanlegt
sem þarf í félagsmiðstöðvar.
Félagsmiðstöðvarnar eru
góðir kúnnar verslunarinn-
ar og kunna jafnframt vel
að meta það sem þar er
á boðstólum og ekki síður
þjónustuna, en hægt er að fá
varahluti í þau tæki sem bila, til
dæmis stangir í fótboltaspilin og
ef kúlan týnist færð þú nýja í Ping-
pong.is. Það er líka hægt að fá nýjan
dúk á billjardborðið og margt fleira
sem kann að slitna og skemmast eftir
mikla notkun.
Pingpong.is er til húsa að Síðu-
múla 35 (gengið inn að aftanverðu).
Verslunin er opin virka daga frá kl.
12.30 til 18. Símanúmer er 568-3920
og netfang pingpong@pingpong.is.
Vefsíða er á slóðinni pingpong.is.