Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 35
Sniðugt í sumar 15. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Skalli býr til sinn eigin ís sem þú færð hvergi annars staðar Við gerum ísinn sjálfir, bæði í Ögurhvarfi og á Selfossi, og það er enginn með þennan ís nema við. Við erum með alvöru rjómaís, mjög góðan, og síðan erum við með þennan gamla, kalda ís, sem er vatnskenndur, en hann er mjög vinsæll hjá unga fólk- inu,“ segir Jón Magnússon, eigandi Skalla í Ögurhvarfi. Ísinn hefur ávallt verið aðalsmerki Skalla og stend- ur alltaf fyrir sínu og nýtur alltaf jafnmikilla vinsælda. „Ef það bara rétt glittir í sólina þá bókstaflega fyllist allt hérna, sólin fyllir alla lífsgleði og allir vilja fá sér ís,“ segir Atli Jónsson, sonur Jóns Magnússonar. Þeir feðgar reka Skalla í Ögurhvarfi. Skalli er líka á Selfossi, þar eru aðrir eigendur en náið samstarf er á milli staðanna og á Selfossi er sami góði Skallaísinn einnig búinn til frá grunni á staðnum. Skalli er líka vinsæll vegna mikils úrvals góðra skyndirétta og er í senn veitingastaður og ísbúð. Íssalan tekur mikinn kipp á sumrin, ekki síst ef sést til sólar, eins og fyrr segir. Girnilegur, fjölbreyttur og ferskur nammibar spillir þar ekki fyrir. Skalli á sér langa sögu og hóf starfsemi sem sjoppa og ísbúð í Lækjargötu árið 1973. Það voru í raun nem- endur í Menntaskólanum í Reykjavík sem gáfu staðn- um nafn: „Í Lækjargötu var sjoppa áður en Skalli var opnaður en hana rak sköllóttur maður. Menntaskólakrakkarnir töluðu um að kíkja á skalla þegar þeir fóru í þá sjoppu og þar með varð nafnið til,“ segir Atli. Eins og mörg góð fyrirtæki hvílir Skalli á gömlum grunni en þróast jafnframt í takt við tímann og er sívinsæll. Sem fyrr segir er Skalli á tveimur stöðum, í Ögurhvarfi 2 í Kópavogi og á Austurvegi 6 á Selfossi. Á báðum stöðunum er ísinn aðalsmerkið en fjöl- breytt úrval góðra skyndibita nýtur einnig mikilla vinsælda. Mynd: © 365 ehf / Stefán Karlsson Svona er HM-úrið JS Watch Company Reykjavik og Gilbert úrsmiður hafa unnið unnið í samvinnu við strákana í íslenska landsliðinu í fótbolta að hönnun sérstaks HM-úrs, WORLD CUP MMXVIII eins og það heitir. Fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu 2016 var hannað sér- stakt EM-úr í samstarfi við strákana í landsliðinu. Það var gert með góðum árangri og þegar ljóst var að Ísland yrði með í úrslitakeppni heimsmeist- aramótsins í Rússlandi í sumar óskaði fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fyrir hönd strákanna í landsliðinu eftir því að búin yrði til ný útgáfa af úri og nú í tengslum við HM. EM-úrið var fram- leitt í 100 númeruðum eintökum og seldist mjög fljótt upp, en HM-úrið er framleitt í 300 númeruðum eintökum og er sala á úrunum nú í fullum gangi. Hönnunin á úrinu er full af litlum smáatriðum sem tengjast lands- liðinu og eru til dæmis tölurnar frá einum og upp í ellefu silfraðar. Þær tákna leikmennina. Tólfan, tölustafur- inn 12 á skífunni, er rauð og táknar áhorfendur eða stuðningsmenn, 12. leikmanninn. Skífan er silfurhvít með blá mínútustrik upp í 45 en síðustu 15 mínúturnar eru afmarkaðar með rauðum strikum og á því svæði hringsins stendur „HALF TIME“ með vísun í leiktímann. Sekúnduvísirinn á úrinu er svo blár og í laginu eins og víkingaspjót. Á botninum á skífunni stendur ritað „FYRIR ÍSLAND“ og fyrir neðan miðju er nafn úrsins, WORLD CUP MMXVIII, þar sem R-ið snýr öfugt til marks um það að keppnin fer fram í Rússlandi. Á bakhliðinni stendur nafn framleiðandans, nafn úrsins og „VAR ÞAÐ EKKI“ til að minna á fagnaðar- söng landsliðsins eftir sigurleiki. Fyrstu 30 númerin eru frátekin fyrir landsliðshópinn. JS Watch co. Reykjavik-úrin eru íslensk frá grunni. Þau eru hönnuð á teikniborði JS hér heima á Íslandi. Allir íhlutir úrsins eru síðan sérfram- leiddir eftir þeirra hönnun í mörgum, sérhæfðum verksmiðjum í Þýskalandi og Sviss og síðan settir saman hér á landi undir ströngu gæðaeftirliti Gil- berts Ó. Guðjónssonar úrsmíðameist- ara sem nýtir áralanga þekkingu og reynslu sína af úrsmíði til að tryggja að hvert og eitt úr standist ströng- ustu kröfur. Frá upphafi framleiðslunnar hefur verið leitast við að sameina glæsilega hönnun, gæði, fyrsta flokks úrverk og falleg armbönd. Vönduð úr eru munaðarvara og fylgihlutir sem bæði karlmenn og kvenmenn njóta þess að velja, bera og eiga. En úr er ekki bara skartgripur. Það er nytjahlutur sem hjálpar okkur að gegna skyldum okkar, halda loforð og skapa góðar minningar. Fágæti úranna ásamt því að vera framleidd í hæsta gæðaflokki er það sem gerir þau eftirsóknarverð, en á skífu allra úranna stendur Reykjavík. Það ásamt, vönduðu verki, fram- leiðslu og sígildu útliti gerir úrin fágæt og einstök. Úrvalið hefur aldrei verið meira en nánari upplýsingar um úrin og hönnunina má finna á vefsíðunni www.gilbert.is. Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62, sími: 551-4100. GILBERT ÚRSMIÐUR OG JS WATCH COMPANY:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.