Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Qupperneq 39
Skagafjörður 15. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
BAKKAFLÖT:
Fjölbreytt ferða-
þjónusta í Skagafirði
Ferðaþjónustan Bakkaflöt var stofnuð af hjónunum Klöru Sólveigu Jónsdóttur og Sigurði
Friðrikssyni árið 1987. Þar er gisting í
boði sem er opin allt árið, alls um 30
gistirými, og tjaldstæði. Á sumrin er
boðið upp á fljótasiglingar sem hefur
verið vinsæll afþreyingarmöguleiki en
byrjað var að bjóða upp á þær árið
1994 frá Bakkaflöt.
„Það koma margir skólahópar
til okkar á vorin,“ segir Finnur Sig-
urðarson, þessir hópar eru í mat
og gistingu ásamt því að fara í
fjölbreytta afþreyingarpakka, þar
á meðal rafting í Vestari-Jökulsá,
paintball, kajakferðir, Wipeout-
-garðinn, klettaklifur, hestaferð og í
heimsókn út á skotsvæði Ósmanns.
Við byrjum að sigla 1. maí og
erum að til enda september. Eftir að
skólahópaferðunum lýkur í byrjun
júní tekur við almenn aðsókn túrista í
gistingu, mat og að sjálfsögðu í fljóta-
siglingarnar.
River rafting – tvær leiðir í boði
Austari-Jökulsá: Frábær ferð sem
er niður eina af topp rafting-ám í
Evrópu að talið er. Ferð þar sem
áhöfnin þarf að róa töluvert og gott
að fólk sé nokkuð vel á sig komið
til að fara þessa ferð. Eftir að allir
eru komnir í gallana er ekin um 45
mínútna leið inn að Skatastöðum í
Austurdal þar sem farið er út í eftir
að búið er að fara vandlega yfir öll
öryggisatriði. Siglingin niður ána tekur
um tvo og hálfan tíma með stoppum,
en þar er stoppað við flúð sem er köll-
uð Græna herbergið og þar næst við
stökkklettinn sem er um átta metra
hár. Ferðin endar í Villinganesi þar
sem heit kjötsúpa bíður á bakkanum.
Aldurstakmark í þessa ferð er 18 ár.
Vestari-Jökulsá: Farið er út í við
Goðdali í Vesturdal. Frá því að farið er
út í tekur siglingin um 1,5 klukkustund-
ir með stoppi við heita uppsprettu
þar sem um 80°C heitt vatn flæðir
ofan í kalda Jökulsána. Þar er boði
upp á heitt kakó. Næst er stoppað
við stökkklettinn sem er um fjögurra
metra hár. Ferðin endar á sama stað
og ferðin í Austari-Jökulsá, þar sem
þær hafa sameinast skömmu fyrir
upptökustaðinn.
Innifalið er svo að fara í heita potta
og litla sundlaug sem eru á staðnum.
Það er nauðsynlegt eftir svona sull og
eru langflestir sem nýta sér það.
Bakkaflöt er 11 km. innan við
Varmahlíð á vegi nr. 752. Símanúm-
er:453-8245. Netfang: bakkaflot@
bakkaflot.is Heimasíða: www.
bakkaflot.is Facebook-síða: Bakkaflöt
Travel Service.