Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 46
46 SPORT 15. júní 2018
Gunnar Jarl Jónsson
Fyrrv. knattspyrnudómari og sparkspekingur
1. Ef þú mundir velja byrjunarliðið gegn Argentínu, hvernig
yrði það?
Hannes, Birkir Már, Kári, Raggi, Hörður Björgvin, Jóhann Berg,
Gylfi Sig, Aron Einar, Birkir Bjarna, Jón Daði, Alfreð Finnboga.
2. Getur Ísland unnið Argentínu og ef svo er hvað þarf
Ísland að gera til að vinna? Við getum unnið alla. Argentína
er ekki búið að finna sitt sterkasta byrjunarlið og mikið rót á
mannskapnum. Jorge Sampioli gerði frábæra hluti með Chile
en virðist enn vera að hringla með sinn mannskap. Það gefur
okkur von. Varnarleikur Argentínu er þeirra veikleiki og til að
ná úrslitum þurfum við að nýta okkur það sem við erum bestir
í, föst leikatriði og gott skipulag.
3. Hvernig fer leikurinn gegn Argentínu? Ég hef verið að
flakka með 1-1 og 3-0 fyrir Argentínu. Ekki enn gert upp á milli.
4. Hver skorar fyrsta mark Íslands í keppninni? Gylfi
skorar fyrsta markið í keppninni.
5. Hver verður fyrstur til að fá gult spjald hjá Íslandi? Ég
held að Hörður Björgvin fái gult spjald fyrstur allra fyrir brot
á Messi.
6. Hver verður fyrsti Íslendingurinn til að snerta boltann
á mótinu? Alfreð snertir hann fyrstur þar sem við byrjum
með boltann í fyrsta leik.
7. Hvað skorar Ísland mörg mörk í riðlakeppninni og hver
verður markahæstur? Ég held að mörkin verði aðeins tvö.
Gylfi verður markahæstur.
8. Hversu langt fer Ísland í keppninni? Við förum í úr-
slitaleik gegn Króatíu um sæti í 16-liða úrslitum.
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
JÁ, VIÐ GETUM UNNIÐ ARGENTÍNU!
n Spekingarnir spá í spilin n Hvað þarf íslenska landsliðið að gera til að vinna? n Hversu langt fer liðið í keppninni? n Hver verður markahæstur?
S
tundin sem allir hafa ver-
ið að bíða eftir rennur loks-
ins upp á laugardag þegar
Ísland leikur sinn fyrsta
leik í lokakeppni heimsmeistara-
mótsins í fótbolta. Andstæðingur-
inn gæti varla verið sterkari,
Argentínu menn, með Lionel
Messi í broddi fylkingar, bíða okk-
ar og eiga eflaust von á erfiðum
leik. DV leitaði til nokkurra sér-
fræðinga til að spá í spilin fyrir
leikinn á laugardag. Meðal þess
sem við vildum vita var hvort Ís-
land eigi raunhæfa möguleika
gegn þessu ógnarsterka argent-
ínska liði, hvernig við förum að
því að vinna og svo spurðum
við annarra léttari spurninga, til
dæmis hver skorar fyrsta mark Ís-
lands, hver verður fyrstur íslensku
leikmannanna til að snerta bolt-
ann og svo loks hversu langt við
förum í keppninni. Óhætt er að
segja að svörin séu jafn mismun-
andi og þau eru mörg en allir telja
að Ísland geti unnið Argentínu. n
Einar Þór Sigurðsson og
Hörður Snævar Jónsson
Skrifa frá Rússlandi
Fanndís Friðriksdóttir
Leikmaður kvennalandsliðsins
1. Ef þú mundir velja byrjunarliðið gegn
Argentínu, hvernig yrði það? Hannes,
Birkir Már, Kári, Ragnar, Hörður, Jói Berg,
Aron, Gylfi, Birkir Bjarna, Alfreð og Jón Daði.
2. Getur Ísland unnið Argentínu og ef svo
er hvað þarf Ísland að gera til að vinna?
Það er allt hægt, þetta er fótbolti, en fyrst
og fremst þarf að verjast vel og skipulega,
beita kröftugum skyndisóknum.
3. Hvernig fer leikurinn gegn Argentínu?
Ég held því miður að Íslands vinni ekki þann
leik, ekki vegna þess að þeir séu ekki nógu
góðir heldur vegna þess að Messi er bara
betri.
4. Hver skorar fyrsta mark Íslands í
keppninni? Held að það verði Jóhann Berg.
5. Hver verður fyrstur til að fá gult spjald
hjá Íslandi? Ég ætla að giska á að það verði
Ragnar Sigurðsson.
6. Hver verður fyrsti Íslendingurinn til að
snerta boltann á mótinu? Alfreð, því við
byrjum með boltann og hann tekur miðjuna.
7. Hvað skorar Ísland mörg mörk í riðla-
keppninni og hver verður markahæstur?
Við skorum fjögur en þau koma öll hvert frá
sínum leikmanninum.
8. Hversu langt fer Ísland í keppninni?
Við komumst upp úr riðlinum.
Gunnleifur Gunnleifsson
Markvörður Breiðabliks og fyrrv. landsliðsmaður
1. Ef þú mundir velja byrjunarliðið gegn
Argentínu, hvernig yrði það? Hannes,
Birkir Már, Raggi, Kári, Ari, Aron, Emil, Gylfi,
Birkir B, Jói og Alfreð.
2. Getur Ísland unnið Argentínu og ef svo
er hvað þarf Ísland að gera til að vinna?
Já. Argentína er ofmetið og strákarnir
eiga að spila sinn leik og vera þolinmóðir.
Argentínumenn taka fleiri og fleiri sénsa
þegar þeim er haldið í núllinu og þá opnast
sénsar fyrir okkur. Eðlilega þarf samt að
reyna að klippa Messi út úr leiknum.
3. Hvernig fer leikurinn gegn Argentínu?
Við vinnum 2-0 sigur.
4. Hver skorar fyrsta mark Íslands í
keppninni? Birkir Bjarnason.
5. Hver verður fyrstur til að fá gult spjald
hjá Íslandi? Kári Árnason.
6. Hver verður fyrsti Íslendingurinn
til að snerta boltann á mótinu? Alfreð
Finnbogason.
7. Hvað skorar Ísland mörg mörk í riðla-
keppninni og hver verður markahæstur?
Við skorum 3 mörk og Gylfi endar markahæstur.
8. Hversu langt fer Ísland í keppninni?
Við förum í átta liða úrslit.