Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 48
48 MENNING 15. júní 2018
B
altasar Kormákur vakti fyrst
athygli er hann hreppti
hlutverk Rómeós í Shake
speareverkinu Rómeó og
Júlía. Fyrir marga upprennandi leik
ara er það draumur mikill að spreyta
sig á sviði í sígildu verki leikskálds
ins. Svo sannarlega var slegist um
hlutverkið þegar Þjóðleikhúsið setti
upp Rómeó og Júlíu árið 1991. Það
var Baltasar hreppti hnossið og má
segja að síðan hafi leiðin legið upp
á við.
Nú hefur Baltasar lokið við
sína tólftu kvikmynd, fimmtu svo
nefndu Hollywoodmynd sína, og
siglir næst í för með Hugh Jackman
við tökur á kvikmyndinni The Good
Spy. Áður en Baltasar varð fyrstur
íslenskra manna til þess að kalla sig
leikstjóra stórmynda á Hollywood
markaðnum, hóf hann feril sinn
sem leikstjóri sviðssýninga. Það
sem síður er rætt í dag er innkoma
Baltasars á svið sem leikstjóri og til
heyrandi hæfileikar fyrir söngleikj
um og jafnvel barnasöngleikjum.
Því er stórt spurt hvort eða hvenær
maðurinn kvikmyndi eitt stykki
söngleik eða hlaði í eina fjölskyldu
mynd á komandi árum.
Hvað leikstjóraferilinn á sviði
varðar fór Baltasar yfir víðan völl og
setti meðal annars á svið ýmis stór
virki klassískra leikbókmennta eft
ir Shakespeare, John Ford, Ibsen og
Tsjekhov. Skoðum nánar þær slóðir
sem leikstjórinn hefur fetað.
Upp á hár
Söngleikurinn Hárið var frumraun
Baltasars Kormáks sem leikstjóra
í atvinnuleikhúsi. Þetta var árið
1994 og sá Baltasar einnig um
framleiðslu og leikgerð sýningar
innar ásamt Davíð Þór Jónssyni.
Þetta var umfangsmikil uppsetning,
stútfull af flottum leikurum og komu
kringum áttatíu manns nálægt
undirbúningnum á einhvern hátt.
Sýningin hlaut góðar undirtekt
ir áhorfenda og fengu þeir Baltasar
og Davíð Þór að leika sér talsvert að
hráefninu. Aukin áhersla var lögð á
slæmar afleiðingar sýrunotkunar frá
því sem áður var og þótti það gríðar
lega djarft af okkar mönnum.
Lifi Rocky
Þessi frægi og lostafulli söngleikur
hefur lengi verið vinsælt viðfangsefni
hjá leikhúsum og muna sjálfsagt
margir eftir sýningunni sem Baltasar
Kormákur setti upp í Loftkastalanum
árið 1995. Leikhópurinn þá var ekk
ert slakari en sá sem hefur prýtt Borg
arleikhúsið á þessu ári, en á þessum
tíma fór Helgi Björnsson með túlk
un FrankNFurters, Björn Jörundur
Friðbjörnsson lék Riff Raff og Hilm
ir Snær Guðnason og Valgerður
Guðnadóttir léku Brad og Janet.
Enginn latur á þessum bæ
Uppsetning Baltasars á Áfram Lati
bær frá Magnúsi Scheving trekkti að
sér ófáar fjölskyldurnar og lifði lengi
á myndbandi. Bækur Magnúsar
voru orðnar stórvinsælar og vöru
merkið sem stuðlar að hollari lífs
stíl var komið á gott skrið. Uppsetn
ingin hitti beint í mark hjá börnum
með andrúmslofti, hljóðbrellum og
leikmyndum í stíl við lifandi teikni
mynd, eins og Latibær á að vera.
Scheving lék sínar bestu listir sem
Íþróttaálfurinn í fyrsta sinn, þótt
söngröddina hafi vissulega mátt
slípa, en Sigurjón Kjartansson átti
sögulega túlkun sem Maggi mjói og
hitti Selma Björnsdóttir í mark sem
upprunalega útgáfa Sollu stirðu.
Leiksýningin var frumsýnd vet
urinn 1996 í Loftkastalanum sæll
ar minningar. Nokkrum árum síð
ar var frumsýnt framhaldsleikritið
Glanni glæpur í Latabæ í Þjóðleik
húsinu (og svo enn síðar sýningin
Latibær, árið 2014) en Baltasar
kom hvergi að þeirri sýningu. Hins
vegar hafði hann ekki sagt skil
ið við söngleikjageirann eða fjöl
skylduhópana.
Genginn í skrípó
Það var ríkjandi tímabil á Íslandi
þegar kvikmyndagerðarmaðurinn
Óskar Jónasson gekk undir nafn
inu Skari skrípó, töframaður með
þekkingu á sprelli og skrautlegri
sviðsframkomu. Sýning þeirra
Baltasars í Loftkastalanum var vel
sótt og Skari skrípó fór að birtast
víða. Þeir Óskar unnu síðar saman
að spennumyndinni Reykjavík
Rotterdam sem kom út 2008,
en leikstjórinn lét sjálfur vaða
í bandaríska, stjörnum prýdda
endurgerð á þeirri mynd, aðeins
fjórum árum síðar.
Unglingar í glæponagír
Þessi geysilega metnaðarfulla og líf
lega sýning var afhjúpuð árið 1998
LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM
Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060
Greiðslulausnir tengdar
helstu afgreiðslukerfum
Sjálfstandandi greiðslulausnir
og handfrjálsir posar
Baltasar Kormákur á sviði
n Hóf leikstjóraferilinn með söngleik n Stökkpallur íslenska Hollywood-leikstjórans
M
Y
N
D
R
V
K
S
TU
D
IO
S
Aðsókn á
Hollywood-
myndir
Baltasars
Everest (2015)
Kostnaður: 55 milljónir
Aðsókn á heimsvísu: $203,4 milljónir
2 Guns (2013)
Kostnaður: 61 milljón
Aðsókn á heimsvísu: $132 milljónir
Contraband (2012)
Kostnaður: 25 milljónir
Aðsókn á heimsvísu: $96 milljónir
Adrift (2018)
Kostnaður: 35 milljónir
Aðsókn á heimsvísu: 25 milljónir
Inhale (2010)
Kostnaður: 10 milljónir
Aðsókn á heimsvísu: 56 þúsund dalir
Kvikmyndir
Baltasars á
Íslandi eftir
aðsókn
Mýrin (2006) – 84.445
Hafið (2002) 57.626
Brúðguminn (2008) 55.300
Djúpið (2012) 50.280
Eiðurinn (2017) 47.492
101 Reykjavík (2000) 26.902
A Little Trip to Heaven (2005) 15.461
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is