Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Síða 54
54 BLEIKT 15. júní 2018
M
agnea Björg Jónsdóttir
flutti fyrir fimm árum til
Los Angeles, nýorðin 19
ára gömul. Að koma þang-
að hafði verið draumur hennar frá
því að hún var lítil. Hún er ekki til-
búin til að flytja aftur heim til Ís-
lands strax, enda segist hún eiga
eftir að læra og áorka miklu vest-
anhafs.
„Árið 2012 var móðir mín að
fara í vinnuferð til þess að kenna
á naglanámskeiði í Los Angeles.
Hún hringdi í mig eldsnemma um
morgun þegar ég var í skólanum
og kom mér á óvart með ferð til
Los Angeles. Ég grét af spenningi
þegar við lentum, að koma hingað
var búinn að vera draumur frá því
að ég var lítil. Ferðin var æðisleg
og ég varð ástfangin af borginni,“
segir Magnea, sem á þessum tíma
var að vinna fyrir Söru í Júník sem
hafði mikið talað um tímann sem
hún varði í Los Angeles til að kaupa
inn fyrir fyrirtækið, og að njóta lífs-
ins. „Ég og frænka mín ákváðum að
sækja um í Santa Monica College,
og komumst báðar inn, þá var ekki
aftur snúið. Þetta gerðist allt rosa-
lega hratt og ég gerði mér í raun
ekki grein fyrir hversu mikill við-
snúningur væri að verða á lífi mínu
fyrr en kom að kveðjustund uppi á
flugvelli. Þetta var pínu óraunveru-
legt og er það enn, að hafa verið
nýorðin 19 ára að flytja ein í svona
stórborg. En þetta hafðist og ég út-
skrifaðist með AA-gráðu í sam-
skiptafræðum í fyrra. Ég stefni á
áframhaldandi nám í haust.
Ég elska hvað borgin og mann-
lífið er fjölbreytt, ég er búin að
kynnast svo mörgu fólki frá öðrum
löndum, menningarheimum og
trúarbrögðum og þetta hefur kennt
mér svo mikið. Lífshraðinn er mik-
ill í Los Angeles, borgin er stút-
full af metnaðarfullu fólki að elta
draumana sína og markmið sem
ég elska að vera í kringum því
maður hittir svo margt ástríðu-
fullt fólk sem hjálpar þér og kenn-
ir svo marga hluti. Svo má auðvitað
ekki gleyma fallegu pálmatrjánum,
sólinni og hitanum sem við Kali-
forníubúar fáum allan ársins hring.
Ástæða þess að ég hef ekki enn
flutt aftur heim til Íslands er ein-
faldlega sú að ég er ekki tilbúin til
þess. Markmiðum mínum hérna
úti er ekki öllum náð, og ég á enn
eftir að læra og áorka miklu. Ég er í
æðislegri vinnu einmitt núna, sem
er toppurinn á tilverunni. Eins og
kom fram þá stefni ég á að halda
áfram í námi og byrja að öllum lík-
indum í Bachelor of Business Ad-
ministration í haust. Ég er mjög
fróðleiksþyrst, ég elska að rækta
ný sambönd og reynslu sem gætu
gagnast mér í framtíðinni. Ég elska
viðskiptalífið, og langar að læra
eins mikið og ég get til þess að geta
hrint hugmyndum mínum í fram-
kvæmd, fyrr heldur en síðar.“
Fékk fyrstu íbúðina leigða á
traustinu einu saman
Magnea hefur búið á nokkrum
stöðum í Los Angeles, ýmist ein
eða með íslenskum eða erlendum
vinkonum. „Það er mjög erfitt fyrir
útlendinga að finna íbúðir hérna í
Bandaríkjunum því við erum til að
byrja með ekki með Social Security-
-númer, ekkert „credit score“ sem
er eiginlega svona „traustverðug-
leika/lánshæfismat“, og engar bak-
grunnsupplýsingar liggja fyrir, sem
setur okkur í ákveðinn áhættu-
flokk fyrir leigusala. Þegar ég flutti
fyrst til Los Angeles bjuggum ég og
frænka mín í Culver City í tveggja
herbergja íbúð. Við leituðum lengi
að íbúð og vorum mjög heppnar
með fyrstu leigusalana okkar sem
voru tilbúnir til þess að treysta okk-
ur og hjálpa okkur. Ég heyri svip-
aðar sögur frá öðrum Íslendingum
sem hingað flytja, að margar fyrstu
íbúðir koma til út af heppni og góð-
mennsku. Við frænka mín bjugg-
um þar saman í um fjóra mánuði
þangað til leiðir okkar skildi og við
þurftum að flytja í sitt hvoru lagi. Þá
flutti ég í Brentwood/Santa Mon-
ica sem er mjög flott hverfi nálægt
ströndinni. Ég bjó í fimm mánuði
með þremur stelpum, ein, sem ég
deildi herbergi með var frá Sviss,
og tvær sem deildu hinu herbergi
íbúðarinnar voru frá Tyrklandi og
Úkraínu. Sumrinu eftir fyrsta árið
mitt í skólanum eyddi ég á Íslandi í
að safna pening, vinnandi á lagern-
um hjá Ölgerðinni. Þegar skólinn
byrjaði aftur flutti ég inn með
stelpu sem var mín fyrsta vinkona
hér í Los Angeles, hún er frá Rúss-
landi og ég flutti inn með henni og
franska kærastanum hennar í aðra
íbúð í sömu blokk. Við bjuggum
þar saman í ár þangað til við ákváð-
um að flytja. Þau fengu sér íbúð
saman og ég flutti til Marina Del
Rey með tveimur íslenskum stelp-
um, en það er æðislegt hverfi með
fram ströndinni og nálægt skól-
anum mínum. Eftir útskrift flutt-
um við svo í miðbæ Los Angeles og
þar erum við búnar að vera í næst-
um því ár. Þetta er mjög spennandi
staður til að búa á en pínu skítug-
ur, mikið af heimilislausu fólki og
loftmengun. Eins og sést hef ég
búið víða, og uppáhaldsstaðurinn
minn til að búa á hlýtur að vera
Brentwood/Santa Monica. Þar
er svo fallegt, mikill gróður, mjög
hreint og alltaf góð sjávargola. Ef
ég gæti flutt í hvaða götu sem er þá
myndi ég klárlega flytja á Mulhol-
land Drive í Hollywood Hills. Ótrú-
lega falleg gata uppi í hæðunum
með glæsivillum úti um allt.“
Sushi í salatformi er uppáhalds
Aðspurð um eftirlætis veitingastaði,
bæði hversdags og til hátíðarbrigða
stendur ekki á svörum hjá Magneu.
„Ég er mjög vanaföst með mat og fæ
mér yfirleitt alltaf það sama á sömu
stöðunum. Ég fer vanalega á sömu
staðina út að borða og fæ mér það
sama alltaf. Uppáhaldsmaturinn
minn er pítsa og ég er fastagestur á
Blaze Pizza, þar borgarðu eitt verð
($10) og mátt setja eins mikið á pít-
suna þína og þú vilt. Ef ég er í stuði
fyrir sveittan, feitan hamborgara þá
fer ég vanalega á In-n-Out Burger
sem er algjört „möst“ að prófa ef
maður kemur til Kaliforníu, þar sem
þeir staðir eru bara hér og á örfáum
stöðum í Nevada og Arizona. Stund-
um fer ég líka á The Habit Burger þar
„Ég elska hvað borgin og
mannlífið er fjölbreytt“
Borgin mín: Los Angeles
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is