Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Side 56
56 15. júní 2018
F
yrir margt löngu, árið 1694
nánar til tekið, var uppi
maður í litlu þorpi í Devon
á Englandi. Maðurinn hét
Thomas Austin og var ágætlega
metinn bóndi. Thomas þessi hafði
alist upp í Cullompton, indælu
samfélagi á milli Honiton og
Tiverton.
Foreldrar þessa unga manns
voru vel stæðir bændur og nutu
virðingar í samfélaginu, áttu eigin
jörð og skulduðu engum.
Tíminn leið, eins og óhjá-
kvæmilegt er, og einn góðan
veður dag erfði Thomas býlið að
foreldrum sínum gengnum. Ár-
leg innkoma nam um 80 sterl-
ingspundum sem á þeim tíma
var álitleg summa, nógu há til að
Thomas væri metinn þokkalega
efnaður maður.
Eyðir og spennir
Þar sem aldrei hafði fallið blettur
á orðspor Thomasar fór hann ekki
bónleiður til búðar er hann bað
um hönd dóttur vel stæðs bónda
í grenndinni. Heimanmundur
brúðarinnar var ekki amalegur;
heil 800 pund.
Það þarf skapgerðarstyrk til að
höndla þvílík umskipti og að fjór-
um árum liðnum, og sennilega
mun fyrr, var ljóst að Thomas bjó
ekki að slíkum styrk.
Hann var búinn að sólunda öllu
sínu fé og heimanmund eiginkon-
unnar að auki. Hann þurfti að taka
lán gegn veði í jörð sinni en gat þó
með engu móti látið af þeim dýra
lífsstíl sem hann hafði tamið sér.
Umburðarlyndir nágrannar
Thomas hafði aldrei verið annað
en bóndi og kunni ekkert annað,
en býlið gaf ekki nógu mikið af
sér eða nógu ört til að fjármagna
neyslu hans.
Thomas lagði höfuðið í bleyti
og datt í hug að beita nágranna
sína svikum og prettum. Ná-
grannarnir ákváðu í minningu for-
eldra Thomasar að horfa í gegnum
fingur sér með athæfi hans.
Thomas var kominn á bragðið
og sýndist sem frama væri að finna
í prettum og þjófnaði og taldi víst
að lánið yrði honum hliðhollt á
þeim vettvangi.
Rán um hábjartan dag
Í fyrstu var ekki annað að sjá en
Thomas hefði lagt rétt mat á nýj-
an starfsferil því á meðal þess sem
hann afrekaði var að ræna vell-
auðugan mann á veginum milli
Taunton Dean og Wellington.
Upp úr krafsinu hafði hann 46
gíneur og sverð með silfurhjöltum,
og komst undan án þess að kennsl
yrðu borin á hann.
En uppskeran varð skamm-
góður vermir og á skömmum
tíma tókst Thomasi að eyða fénu
og lánardrottnar sem sífellt vok-
uðu yfir honum kröfðust greiðslu
skulda.
Heimsókn til frænku
Voru nú góð ráð dýr og Thomas
fylltist örvæntingu, en reyndi þó
að bera sig mannalega. Einn góð-
an veðurdag sagði hann eiginkonu
sinni að hann hygðist leita ráða
hjá eiginmanni frænku hennar.
Sá var einn hans næstu nágranna
og lagði Thomas af stað á hestum
postulanna.
His rétta var að Thomas var
fullkunnugt um að frænka eig-
inkonu hans var ein heima með
börnin. Hún tók honum fagnandi
og bauð honum inn til að halda
henni selskap. Hún hafði verið ein
með börnum sínum fimm síðan
árla morguns og hugnaðist vel að
ræða við einhvern fullorðinn.
Móðir og fimm börn myrt
Thomas þóttist ætla að koma sér
vel fyrir í stól, en greip í sömu
andrá öxi eina sem var við eld-
stæðið og keyrði hana í höfuð
frænkunnar. Höfuð hennar var svo
gott sem klofið niður að hálsi og
hún féll sem slytti á gólfið, en þó
enn með lífsmarki. Í nokkrar mín-
útur fossaði blóðið úr svöðusárinu
og síðan gaf hún upp öndina.
Thomas lét ekki þar við sitja og
sneri sér að börnunum fimm. Skar
hann þau á háls, eitt á fætur öðru,
og hrúgaði líkunum ofan á látna
móður þeirra.
Að þessu loknu fór Thomas
upp á efri hæðina og hirti þar allt
fé sem hann fann, um 60 pund allt
í allt, og hraðaði sér heim á leið.
Fjölskyldan myrt
Eins og við var að búast var
þónokkuð blóð á Thomasi eftir
morgunverkin og fór ekki hjá því
að eiginkona hans tæki eftir því.
Hún spurði Thomas hverju það
sætti hann svaraði með tilþrif-
um: „Tíkin þín! Þú færð brátt að sjá
það.“ Að þeim orðum sögðum skar
hann hana á háls með rakhnífi.
Thomas notaði síðan sama hníf til
að myrða börn þeirra hjóna, það
eldra rétt um tveggja ára.
Enginn felldi tár
Eiginmaður frænkunnar nánast
gekk inn í viðbjóðinn því á leið
heim til sín ákvað hann að kíkja til
Thomasar. Þá vissi hann að sjálf-
sögðu ekkert um örlög sinnar eig-
in fjölskyldu, en hann réðst til at-
lögu við Thomas, hafði hann undir
og kom á hann böndum. Síðan
kom hann Thomasi í hendur rétt-
vísinnar sem sendi hann í fangels-
ið í Exeter.
Í ágúst 1694 var Thomas hengd-
ur og féllu engin tár enda ekkert
skyldmenni hans á lífi þegar þar
var komið. n
BLÓÐBAÐ
Í DEVON
n Thomas var vel stæður bóndi
n Greip til örþrifaráða þegar
pyngjan tæmdist
ERTU AÐ FARA Í FLUG?
ÞJÓNUSTUM ÞIG OG ÞÍNA Í MAT
OG DRYKK
Hafnargata 19a Keflavík / S. 421 4601
350.000 sterlingspunda líftrygging var ástæða þess að Fadi Nasri réð mann til að myrða eiginkonu hans, lögreglukonuna Nisha Patel-Nasri, í maí 2006. Í
hlutverki hins sorgmædda eiginmanns gaf hann lögreglunni upp nöfn fimm einstaklinga sem
hann sagði að hefðu vilja eiginkonu hans feiga. Fadi var skuldum vafinn en sá sér þó fært að
greiða morðingjanum 15.000 sterlingspund fyrir vikið. Hann komst ekki upp með glæpinn.SAKAMÁL
Eiginkonan myrt
Á Thomas rann mikið
æði og engum var eirt.