Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 57
SAKAMÁL 5715. júní 2018
Þ
að er margt í mörgu, er
stundum sagt. Sophie
Tieufri er frönsk kona
sem í kringum 2005 bjó í
Wasque hal, þorpi í Norður-Frakk-
landi, þá um fertug að aldri. Sagan
segir að bernska Sophie hafi ekki
verið dans á rósum; móðir hennar
var drykkfelld og sífellt haldandi
framhjá föður hennar. Faðir henn-
ar tók þá upp á því að þröngva
„slæmum venjum“ sínum upp á
hana, svo notuð séu orð Sophie.
Talið er nokkuð ljóst að þar hafi
hún átt við kynferðislegt ofbeldi.
Sumir myndu segja að faðir
Sophie hefði fengið makleg mála-
gjöld, því þegar Sophie var á ung-
lingsaldri brann hann til bana.
Hann hafði tendrað sígarettu þar
sem hann stóð við bensíntank og
varð fyrr en varði alelda.
Félagsráðgjafi í Havaí-skyrtu
Fimmtán ára að aldri reyndi
Sophie að fremja sjálfsvíg og síðan
varð hún barnshafandi og, þrátt
fyrir ungan aldur, gekk í hjóna-
band. Áður en það hjónband rann
sitt skeið voru börnin orðin tvö.
Árið 1995 átti Sophie í deilum
við vinnuveitanda sinn og brá á
það ráð að kalla til fulltrúa stéttar-
félagsins sér til fulltingis. Sá sem
svaraði kalli hennar var Jean-Pierre
Delvallez og mætti hann á fund
hennar í Havaí-skyrtu og hvítum
íþróttabuxum. Hvort klæðnaður
Jean-Pierre reð úrslitum skal ósagt
látið en hjá honum og Sophie hófst
eldheitt ástarsamband.
Sakaður um sifjaspell
Ávöxtur sambands þeirra varð
stúlkubarn og í kjölfar fæðingar-
innar lýsti Sophie fjálglega ánægju
sinni með þróun mála. Jean-Pierre
mun ekki hafa verið sama sinnis
og sagði hún að hann hefði reiðst
ofsalega. „Hann fór að móðga mig
og misbjóða, og þröngva sínum
slæmu venjum upp á mig,“ sagði
Sophie.
Leiðir þeirra skildu en þrátt
fyrir allt og allt þá kvartaði Jean-
-Pierre yfir að fá ekki að sjá dóttur
sína. Sophie svaraði umkvörtun-
um hans með því að saka hann um
sifjaspell.
Óþroskuð og áhrifagjörn
Starfsmenn félagsmálaþjón-
ustunnar blönduðust í þessa deilu
og töldu ekki fráleitt að Sophie væri
farin að ruglast á raunveruleikan-
um og ógeðfelldri bernsku sinni
og þeirri óhæfu sem hún hafði ver-
ið beitt af föður sínum.
Sophie var að sögn læknis
„einstaklega óþroskuð, mjög
áhrifagjörn og brothætt í sálrænu
tilliti.“
Sophie lét ekki af ásökunum
sínum um blóðskömm af hálfu Je-
an-Pierre og hann hafði ekki und-
an að bera af sér sakir. Reyndar
voru allir sem til þekktu á einum
máli um að Jean-Pierreværi sak-
laus af þeim ávirðingum sem
Sophie bar á hann.
Fjórtán hnífstungur
Síðla kvölds 24. mars, 2005, dró
til tíðinda í borginni Lille. Jean-
-Pierre hafði setið fund í borginni
og gekk að bifreið sinni að fund-
inum loknum. Þegar hann var rétt
ókominn að bílnum stöðvaði hjá
honum manneskja á reiðhjóli. Sú
var svartklædd frá toppi til táar og
með hjálm sem huldi ásjónuna.
Jean-Pierre átti orðastað við
viðkomandi sem skyndilega
mundaði hníf og stakk Jean-Pierre
ítrekað. Jean-Pierre féll á bakið yfir
húdd bifreiðar sinnar og veinaði:
„Hvað ertu að gera mér.“
Fjórtán sinnum stakkst hnífur-
inn í líkama Jean-Pierre, aðallega
í kviðinn og var hann löngu látinn
þegar hnífurinn var dreginn í síð-
asta skipið út úr líkamanum.
Vitni að þessu hafði á orði að
þetta hefði verið líkara aftöku en
morði.-
Með leikfangabangsa í dómsal
Tveimur klukkustundum síðar
kom Sophie heim til sín í Wasque-
hal og sagði við dóttur sína og
Jean- Pierre: „Pabbi þinn mun ekki
angra þig framar. Ég gerði það sem
nauðsynlegt var.“
Vindur nú þessari frásögn fram
til janúar 2009. Þá var Sophie
formlega ákærð fyrir morð að yfir-
lögðu ráði. Í dómsalnum í Douai,
skammt frá Lille, minnti Sophie
meira á barn en fullorðna konu
þar sem hún sat og hélt leikfanga-
bangsa þétt upp að sér.
Trúði eigin órum
Að sögn geðlæknis var Sophie
ófær um að eiga í eðlilegu full-
orðinssambandi við annað fólk og
mátti rekja það til bernsku hennar.
Annar sérfræðingur sagði að
Sophie tryði í einlægni því sem
hún fullyrti, þar á meðal að Jean-
-Pierre hefði kynferðislega mis-
notað dóttur þeirra.
Árið 2005 hafði dóttur þeirra
verið komið fyrir í fóstri og fé-
lagsmálayfirvöld hvöttu til þess
að Jean-Pierre hefði samband
við hana. Við réttarhöldin kom í
ljós að Sophie hefði ekki hugn-
ast þessi þróun og talið fullvíst að
Jean- Pierre mundi taka upp „fyrri
háttu“. Nokkrum dögum síðar
gerði hún Jean-Pierre fyrirsát í Lille
með áður nefndum afleiðingum.
Sátt við refsinguna
Verjandi Sophie bar kviðdóm að
sýna því skilning að hún væri nán-
ast barn sjálf, hún hefði trúað að
barnsfaðir hennar væri sekur um
blóðskömm og orðið honum að
bana í þeirri fullvissu að hún væri
að bjarga dóttur sinni.
Sophie fékk 17 ára dóm. „Já,
já,“ sagði hún kjökrandi, „það sem
ég gerði var hræðilegt. Ég sam-
þykki þá refsingu sem ég hef verið
dæmd til.“ n
SÍMI SEM ÞÚ GETUR
TREYST Á
16 MP MYNDAVÉL
NOKIA
6.1
22 ára heróínfíkill og vændiskona, Tiffany Bresciani, varð síðasta fórn-arlamb bandaríska morðingjans Joels Rifkin. Tiffany hafði sest upp í Mazda-pallbíl Joels, sennilega í viðskiptaerindum, og sást ekki á lífi
eftir það. Síðar vakti bíllinn athygli lögreglumanns því engin skráningarnúmer var
að sjá á bílnum. Rotnandi líkamsleifar Tiffany fundust í bílnum. Talið er að Joel
Rifkin hafi haft 17 mannslíf á samviskunni og fékk hann 183 ára fangelsisdóm.
Firra veldur
fjörtjóni
n Bernska Sophie var ekki gleðirík
n Fullorðinsárin báru þess merki„Pabbi þinn mun
ekki angra þig
framar. Ég gerði það sem
nauðsynlegt var.“ /Faðir
hennar tók þá upp á því að
þröngva „slæmum venj-
um“ sínum upp á hana.
Við dómhúsið
Sophie var barni
líkust í dómsal.