Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Síða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Síða 57
SAKAMÁL 5715. júní 2018 Þ að er margt í mörgu, er stundum sagt. Sophie Tieufri er frönsk kona sem í kringum 2005 bjó í Wasque hal, þorpi í Norður-Frakk- landi, þá um fertug að aldri. Sagan segir að bernska Sophie hafi ekki verið dans á rósum; móðir hennar var drykkfelld og sífellt haldandi framhjá föður hennar. Faðir henn- ar tók þá upp á því að þröngva „slæmum venjum“ sínum upp á hana, svo notuð séu orð Sophie. Talið er nokkuð ljóst að þar hafi hún átt við kynferðislegt ofbeldi. Sumir myndu segja að faðir Sophie hefði fengið makleg mála- gjöld, því þegar Sophie var á ung- lingsaldri brann hann til bana. Hann hafði tendrað sígarettu þar sem hann stóð við bensíntank og varð fyrr en varði alelda. Félagsráðgjafi í Havaí-skyrtu Fimmtán ára að aldri reyndi Sophie að fremja sjálfsvíg og síðan varð hún barnshafandi og, þrátt fyrir ungan aldur, gekk í hjóna- band. Áður en það hjónband rann sitt skeið voru börnin orðin tvö. Árið 1995 átti Sophie í deilum við vinnuveitanda sinn og brá á það ráð að kalla til fulltrúa stéttar- félagsins sér til fulltingis. Sá sem svaraði kalli hennar var Jean-Pierre Delvallez og mætti hann á fund hennar í Havaí-skyrtu og hvítum íþróttabuxum. Hvort klæðnaður Jean-Pierre reð úrslitum skal ósagt látið en hjá honum og Sophie hófst eldheitt ástarsamband. Sakaður um sifjaspell Ávöxtur sambands þeirra varð stúlkubarn og í kjölfar fæðingar- innar lýsti Sophie fjálglega ánægju sinni með þróun mála. Jean-Pierre mun ekki hafa verið sama sinnis og sagði hún að hann hefði reiðst ofsalega. „Hann fór að móðga mig og misbjóða, og þröngva sínum slæmu venjum upp á mig,“ sagði Sophie. Leiðir þeirra skildu en þrátt fyrir allt og allt þá kvartaði Jean- -Pierre yfir að fá ekki að sjá dóttur sína. Sophie svaraði umkvörtun- um hans með því að saka hann um sifjaspell. Óþroskuð og áhrifagjörn Starfsmenn félagsmálaþjón- ustunnar blönduðust í þessa deilu og töldu ekki fráleitt að Sophie væri farin að ruglast á raunveruleikan- um og ógeðfelldri bernsku sinni og þeirri óhæfu sem hún hafði ver- ið beitt af föður sínum. Sophie var að sögn læknis „einstaklega óþroskuð, mjög áhrifagjörn og brothætt í sálrænu tilliti.“ Sophie lét ekki af ásökunum sínum um blóðskömm af hálfu Je- an-Pierre og hann hafði ekki und- an að bera af sér sakir. Reyndar voru allir sem til þekktu á einum máli um að Jean-Pierreværi sak- laus af þeim ávirðingum sem Sophie bar á hann. Fjórtán hnífstungur Síðla kvölds 24. mars, 2005, dró til tíðinda í borginni Lille. Jean- -Pierre hafði setið fund í borginni og gekk að bifreið sinni að fund- inum loknum. Þegar hann var rétt ókominn að bílnum stöðvaði hjá honum manneskja á reiðhjóli. Sú var svartklædd frá toppi til táar og með hjálm sem huldi ásjónuna. Jean-Pierre átti orðastað við viðkomandi sem skyndilega mundaði hníf og stakk Jean-Pierre ítrekað. Jean-Pierre féll á bakið yfir húdd bifreiðar sinnar og veinaði: „Hvað ertu að gera mér.“ Fjórtán sinnum stakkst hnífur- inn í líkama Jean-Pierre, aðallega í kviðinn og var hann löngu látinn þegar hnífurinn var dreginn í síð- asta skipið út úr líkamanum. Vitni að þessu hafði á orði að þetta hefði verið líkara aftöku en morði.- Með leikfangabangsa í dómsal Tveimur klukkustundum síðar kom Sophie heim til sín í Wasque- hal og sagði við dóttur sína og Jean- Pierre: „Pabbi þinn mun ekki angra þig framar. Ég gerði það sem nauðsynlegt var.“ Vindur nú þessari frásögn fram til janúar 2009. Þá var Sophie formlega ákærð fyrir morð að yfir- lögðu ráði. Í dómsalnum í Douai, skammt frá Lille, minnti Sophie meira á barn en fullorðna konu þar sem hún sat og hélt leikfanga- bangsa þétt upp að sér. Trúði eigin órum Að sögn geðlæknis var Sophie ófær um að eiga í eðlilegu full- orðinssambandi við annað fólk og mátti rekja það til bernsku hennar. Annar sérfræðingur sagði að Sophie tryði í einlægni því sem hún fullyrti, þar á meðal að Jean- -Pierre hefði kynferðislega mis- notað dóttur þeirra. Árið 2005 hafði dóttur þeirra verið komið fyrir í fóstri og fé- lagsmálayfirvöld hvöttu til þess að Jean-Pierre hefði samband við hana. Við réttarhöldin kom í ljós að Sophie hefði ekki hugn- ast þessi þróun og talið fullvíst að Jean- Pierre mundi taka upp „fyrri háttu“. Nokkrum dögum síðar gerði hún Jean-Pierre fyrirsát í Lille með áður nefndum afleiðingum. Sátt við refsinguna Verjandi Sophie bar kviðdóm að sýna því skilning að hún væri nán- ast barn sjálf, hún hefði trúað að barnsfaðir hennar væri sekur um blóðskömm og orðið honum að bana í þeirri fullvissu að hún væri að bjarga dóttur sinni. Sophie fékk 17 ára dóm. „Já, já,“ sagði hún kjökrandi, „það sem ég gerði var hræðilegt. Ég sam- þykki þá refsingu sem ég hef verið dæmd til.“ n SÍMI SEM ÞÚ GETUR TREYST Á 16 MP MYNDAVÉL NOKIA 6.1 22 ára heróínfíkill og vændiskona, Tiffany Bresciani, varð síðasta fórn-arlamb bandaríska morðingjans Joels Rifkin. Tiffany hafði sest upp í Mazda-pallbíl Joels, sennilega í viðskiptaerindum, og sást ekki á lífi eftir það. Síðar vakti bíllinn athygli lögreglumanns því engin skráningarnúmer var að sjá á bílnum. Rotnandi líkamsleifar Tiffany fundust í bílnum. Talið er að Joel Rifkin hafi haft 17 mannslíf á samviskunni og fékk hann 183 ára fangelsisdóm. Firra veldur fjörtjóni n Bernska Sophie var ekki gleðirík n Fullorðinsárin báru þess merki„Pabbi þinn mun ekki angra þig framar. Ég gerði það sem nauðsynlegt var.“ /Faðir hennar tók þá upp á því að þröngva „slæmum venj- um“ sínum upp á hana. Við dómhúsið Sophie var barni líkust í dómsal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.